Bændablaðið - 31.01.2019, Síða 14
Bændablaðið | Fimmtudagur 31. janúar 201914
Miðhraun 2 210 Garðabær Sími 587 1300 kapp@kapp.is www.kapp.is
KLEFAR
Kæli- & frystiklefar
í miklu úrvali.
Vottaðir gæðaklefar með
mikla reynslu á Íslandi.
Einfaldir í uppsetningu.
HILLUR
fyrir kæli- & frystiklefa.
Mikið úrval og auðvelt að setja saman.
Sérhannaðar fyrir matvæli.
KÆLI & FRYSTI
BÚNAÐUR
Hafðu samband í síma 587 1300
og við sérsníðum lausn sem hentar þér!
Sprenghlægilegur farsi sýndur í Hveragerði:
Tveir tvöfaldir á fjölunum í
Leikhúsinu Austurmörk 23
Laugardaginn 2. febrúar
kl. 20.00 frumsýnir Leik-
félag Hveragerðis hinn
spreng hlægilega farsa
Tveir tvöfaldir í Leik húsinu
Austurmörk 23 í Hvera-
gerði.
Tveir tvöfaldir er eftir
breska leikskáldið Ray
Cooney, í islenskri þýðingu
Árna Ibsen. Ray Cooney
er einn virtasti gaman-
leikjahöfundur samtímans.
Meðal verka hans eru t.d. Nei
ráðherra, Viltu finna milljón?
og Með vífið í lúkunum, sem
Leikfélag Hveragerðis setti á
svið árið 2013.
Leikritið gerist á Hótel
Höll en þar tekst formanni fjárlaga-
nefndar Alþingis að koma sér og
aðstoðarmanni sínum í ótrúleg
vandræði, þekkt staðreynd úr
heimi stjórnmálanna! Þingmaðurinn
hefur sem sé ákveðið að skrópa á
nefndarfundi til að eiga stund
með hjákonu sinni. Hreinlyndur
og saklaus aðstoðarmaður þing-
mannsins klúðrar hins vegar
málunum og úr verður hrærigrautur
misskilnings og lyga!
Æfingar hófust seinni partinn
í október á síðasta ári þannig að á
laugardaginn 2. febrúar kl. 20.00
kemur afraksturinn í ljós af löngu
og ströngu æfingaferli. Eins og
gengur og gerist hefur ýmislegt
komið upp á, t.d. heltust tveir af
þeim sem voru í aðalhlutverkum
úr lestinni þegar liðið var á
æfingatímann, þannig að það þurfti
að finna nýja leikara til að taka við
hlutverkum þeirra.
Næstu sýningar verða svo
sunnudaginn 3. febrúar, föstudaginn
8. febrúar og laugardaginn 9. febrúar.
Allar sýningar byrja kl. 20.00.
Miðapantanir í síma 863-8522. Er
fólk hvatt til að nota tækifærið til að
sjá þessa sprenghlægilegu sýningu,
því margsannað þykir að hláturinn
lengi lífið.
FRÉTTIR
Orkustofnun mun á þessu ári
veita tvo styrki allt að 500.000
kr. vegna rannsókna eða náms-
verkefna til meistaraprófs (MSc.)
á sviði smá virkjana til raforku-
framleiðslu.
Markmið með styrkveitingunni
er að stuðla að aðgengilegu efni
fyrir þá sem hyggjast nýta landgæði
til framleiðslu raforku í byggðum
landsins.
Styrkirnir standa til boða
öllum sem stunda rannsóknir á
meistarastigi svo fremi sem verk-
efnin styðja við smávirkjana-
verkefni Orku stofnunar.
Viðfangsefni geta til dæmis
tengst litlum jarðvarmavirkjunum,
áhrifum dreifðrar raforku fram-
leiðslu á flutnings- og dreifikerfi
raforku, áhrifum á orkuöryggi,
þróun raforkuverðs og áhrif á
arðsemi smærri virkjana, líkan
fyrir kostnað við uppbyggingu
og rekstur á smærri virkjunum,
áhrif upprunavottorða á aukna
uppbyggingu smávirkjana, hvernig
hægt er að stuðla að aukinni virkni
raforkumarkaðar og þannig mætti
lengi telja. Allar nánari upplýsingar
og umsóknareyðublað er að finna
á vef Orkustofnunar á vefslóðinni;
https://orkustofnun.is/orkustofnun/
frettir/orkustofnun-uthlutar-
styrkjum-vegna-rannsokna-a-svidi-
smavirkjana-1
Orkustofnun úthlutar styrkjum vegna
rannsókna á sviði smávirkjana
Mynd / Mast
Riða greinist í Skagafirði
Riðuveiki hefur verið staðfest
á bænum Álftagerði í nágrenni
Varmahlíðar í Skagafirði. Síðast
greindist riða á þessu svæði í
september síðastliðinn á bænum
Vallanesi. Matvælastofnun vinnur
nú að öflun upplýsinga og undir-
búningi aðgerða.
Samkvæmt því sem segir á vef
Matvælastofnunar greindist riðan í
sýnum úr tveimur kindum frá bænum
þar sem nú eru um 370 fjár. Bóndinn
hafði samband við héraðsdýralækni
vegna kindanna sem sýndu einkenni
riðuveiki. Kindurnar voru aflífaðar
og sýni tekin og send á Tilraunastöð
Háskóla Íslands að Keldum þar
sem riðuveiki var staðfest í báðum
sýnum.
Búið er í Húna- og Skagahólfi
og í því hólfi hefur riðuveiki komið
upp á átján búum á undanförnum
20 árum en á þessu búi greindist
veikin síðast árið 2008. Riðuveiki
hefur komið upp á mörgum bæjum
í Varmahlíð í gegnum tíðina og
má segja að um þekkt riðusvæði
sé að ræða.
Þetta er fyrsta tilfelli riðuveiki
sem greinist á árinu en á síðasta ári
greindist eitt tilfelli. Fram til ársins
2010 greindist riða á nokkrum
bæjum á landinu á hverju ári en
engin tilfelli hefðbundinnar riðu
greindust á árunum 2011 til 2014.
Riðan er því á undanhaldi en þetta
sýnir að ekki má sofna á verðinum.
Á undanförnum árum hafa
sýni verið tekin við slátrun úr
um það bil þrjú þúsund kindum
á ári. Jafnframt hafa bændur
verið hvattir til að senda hausa
til Keldna af fé sem drepst eða er
lógað heima vegna vanþrifa, slysa
eða sjúkdóma, eða hafa samband
við dýralækni um að taka sýni úr
slíku fé. Aukin áhersla er á að fá
slík sýni þar sem það eykur líkur
á að finna riðuna.
Héraðsdýralæknir vinnur að
öflun faraldsfræðilegra upplýsinga
og úttekt á búinu til að meta
umfang aðgerða við förgun fjár,
þrif og sótthreinsun. Því næst
fer málið í hefðbundið ferli
hvað varðar gerð samnings um
niðurskurð. /VH
Tillögur um eflingu innanlandsflugs:
Vilja gera flug að hagkvæmum
kosti fyrir landsbyggðina
Starfshópur sem hafði það hlut-
verk að móta tillögur um upp-
byggingu flugvallakerfisins á
Íslandi og eflingu innanlandsflugs
sem almenningssamgangna hefur
skilað skýrslu til samgöngu- og
sveitarstjórnarráðherra.
Í skýrslunni eru gerðar tillögur
um breytingar á fyrirkomulagi
innanlandsflugs og rekstri
flugvalla og að innanlandsflug
verði hagkvæmur kostur fyrir íbúa
landsbyggðarinnar.
Farmiðar á völdum svæðum
niðurgreiddir
Starfshópurinn kynnti tillögur
um hvernig jafna má aðgengi
landsmanna að þjónustu sem aðeins
er í boði á suðvesturhorni landsins.
Tillaga er gerð um að farmiðar með
lögheimili á völdum svæðum á
landsbyggðinni verði niðurgreiddir.
Isavia ohf. ábyrgð
Lagðar eru fram tillögur um að
auka fjárhagslega sjálfbærni þeirra
flugvalla, sem gegna hlutverki sem
varaflugvellir í millilandaflugi,
með því að skilgreina þá sem
kerfi flugvalla með sameiginlegan
kostnaðargrunn og Isavia ohf. falin
fjárhagsleg ábyrgð á rekstri, viðhaldi
og uppbyggingu þeirra. Lagt er til
að þjónustugjöld verði samræmd á
millilandaflugvöllunum og hóflegt
þjónustugjald sett á til að standa
straum af uppbyggingu vallanna.
Slíkt gjald gæti orðið á bilinu 100
kr. til 300 kr. á hvern fluglegg.
Mikilvægi öryggishlutverks
varaflugvalla tengt millilandaflugi
hefur aukist og starfshópurinn telur
nauðsynlegt að taka tillit til breyttra
aðstæðna á grundvelli þróunarinnar
undanfarin ár.
Þjónustusamningur til fimm ára
Þá er lagt til að þjónustusamningur
ríkisins við Isavia verði framvegis
gerður til fimm ára í senn svo að
hægt verði að þróa flugvallakerfið
til lengri tíma og stuðla að aukinni
dreifingu ferðamanna.
Starfshópurinn leggur til að
tillögurnar verði útfærðar nánar
á næsta ári svo þær geti komið til
framkvæmda árið 2020. /VH
Mynd HKr.