Bændablaðið - 31.01.2019, Side 16
Bændablaðið | Fimmtudagur 31. janúar 201916
Smokkfiskur vandi komur sínar
upp að Íslandsströndum hér á
árum áður. Hann var kærkominn
og var veiddur og nýttur í ferska
beitu um 100 ára skeið og ríflega
það. Hér var um spennandi og
nokkuð ævintýralegan veiðiskap
að ræða. Smokkurinn hvarf frá
ströndum landsins á seinni hluta
síðustu aldar.
Smokkfiskur er sérstætt
sjávardýr og þrátt fyrir nafnið
er hann ekki fisktegund heldur
telst hann til lindýra sem eru ein
fylking hryggleysingja á jörðinni.
Nánar tiltekið er hann af flokki
höfuðfætlinga líkt og frændi hans
kolkrabbinn. Smokkfiskar eru með
tíu arma með sogblöðkum sem koma
fram úr höfðinu og tveir þeirra eru
griparmar.
Ekki er vitað hvort smokkur
fannst hér við land á fyrstu öldum
Íslandsbyggðar en hans virðist fyrst
getið í rituðum heimildum árið
1637 en þá rak mikið af honum
á Vestfjörðum, að því er fram
kemur í Íslenskum sjávarháttum
eftir Lúðvík Kristjánsson. Stuðst
er aðallega við frásögn Lúðvíks
hér á eftir í umfjöllun um upphaf
smokkfiskveiða við Ísland.
Söfnuðu rekasmokki
Lengi vel höfðu Íslendingar ekki
lag á því að veiða smokkinn en
hann rak víða á land og var hann þá
hirtur í beitu og fékk hann nafnið
beitusmokkur. Nokkuð var um
rekasmokk víða á Vestfjörðum.
Norðanlands var einkum vart við
rekasmokk í Hrútafirði, Miðfirði
og Eyjafirði en oft með margra ára
millibili.
Á haustin gekk smokkur alveg
inn í botn Arnarfjarðar. Smokkur
hænist mjög að rauðum lit og var
hann notaður til að hafa áhrif á
rekið. Einnig laðast hann að ljósi.
Arnfirðingar kynntu bál á ströndinni
og höfðu stundum gegnsætt tjald
sjávarmegin við það. Brást þá ekki
að eitthvað af smokk hljóp á land.
Fyrstu smokkönglarnir
Um 1870 urðu umtalsverð þáttaskil
í beituöflun einkum á Vestfjörðum
og víða norðanlands. Þá kom til
sögunnar áhald eða öngull til þess
að veiða með smokkfisk. Heimildum
ber ekki saman um hvaða Íslendingur
hafi orðið fyrstur til að smíða
smokkfisköngla eða veiða með þeim
en þar koma nokkrir Vestfirðingar
við sögu. Voru önglarnir smíðaðir
að franskri fyrirmynd.
Smokköngullinn er nokkuð
sérstætt veiðarfæri. Hann er gerður
úr sökku úr blýi með mörgum
öngum. Eiginlegir önglar voru
margir á hverri sökku og gengu inn
í hana neðst. Sakkan var gjarnan
rauð að lit.
Hlupu frá heyskap
Smokkfiskveiðar voru mest
stundaðar í Arnarfirði, Ísafjarðar-
djúpi og Steingrímsfirði. Smærri
smokkur veiddist fyrst í stað og
varð hans stundum vart strax í júlí.
Stærri fiskar veiddust síðla sumars
og á haustin.
Sagt er frá því að þegar smokkur
var genginn inn í Arnarfjörð og
Djúpið hefði verið uppi fótur og fit.
Menn hlupu jafnvel frá heyskap ef
svo horfði við. Fjöldi fólks á öllum
aldri tók þátt í veiðunum, jafnt konur
sem karlar. Smokkbátar voru bæði
fjögurra manna för og áraskip með
8 til 10 manns í áhöfn.
Veitt á rauðu ljósi
Venjulegast var smokkurinn veiddur
skammt frá landi. Helst gaf hann sig
til þegar tók að dimma á kvöldin
og í birtuskilum á morgnana. Á
hverjum báti var lugt og glerið
rauðmálað. Lugtin var ýmist uppi í
mastri eða við borðstokkinn og lýsti
út frá bátnum. Erfitt var að veiða
smokkinn á 20 faðma dýpi en rauða
ljósið átti að laða smokkinn upp og
gerði það. Stundum óð smokkurinn
eins og síld við borðstokkinn. Gripu
menn hann þá með höndunum ef
færi gafst. Þá var eins gott að vera
vel klæddur til að verjast blekgusum
sem smokkurinn gat gefið frá sér.
Glatt á hjalla
Glatt var á hjalla þar sem bátar
voru í hnapp og margir menn við
smokkfiskveiðarnar. „Smokkdráttur
þótti hvorki létt né þrifaleg vinna
en samt var eftir því sóst að fara til
smokks. Þar fór saman skemmtileg
tilbreyting og von um meiri og
skjótfengnari tekjuauka en almennt
gerðist einkum eftir að sala á
beitusmokki hófst. Afli reyndist að
vísu misjafn en ekki var ótítt að einn
maður drægi 700-1100 smokkfiska
yfir nóttina og dæmi voru um
smálestarafla hjá einum manni á
sólarhring. Þyngd færasmokks gat
verið frá ¼ kg þegar hans varð fyrst
vart og allt upp í 2 kg síðla haust,“
segir í Íslenskum sjávarháttum.
Margir veiddu smokkfiskinn
eingöngu til að afla beitu fyrir eigin
útgerð en hann var einnig seldur.
Verslun með smokk hófst ekki að
ráði fyrr en upp úr aldamótunum
1900. Ef mikið barst
að landi var hann
einnig saltaður og
hertur í einhverjum
tilvikum.
Vex hratt
Lítið er vitað um
beitusmokkfiskinn
og lífsferil hans.
Smokkurinn er
úthafstegund og
kom hingað í
fæðuleit. Smokkur-
inn er það kvikindi
sjávar hér við land
sem vex hvað
hraðast. Talið er að smokkurinn
nái kynþroska og fjölgi sér á aðeins
rúmlega einu ári og þar með sé
lífshringnum lokað og dýrin deyi
flest eftir þessa fyrstu hrygningu.
Smokkfiskurinn finnst við strendur
Evrópu allt frá Barentshafi í norðri
og meðfram Afríkuströndum.
Einnig hefur orðið vart við hann
við úthafseyjar eins og Ísland.
Beitusmokkfiskurinn gekk jafnan
að ströndum Norður-Evrópu og þar
með til Íslands í ágúst og hvarf síðan
síðla hausts. Allt voru þetta göngur
ókynþroska ungsmokks og hér við
land hefur aldrei fengist kynþroska
beitusmokkur.
Hvarf frá ströndum
Norður-Evrópu
Áður fyrr gekk smokkfiskur nokkuð
reglulega að landinu en það var samt
ekki árvisst. Eins og áður er getið
hófust veiðar á smokkfiski á áttunda
áratug nítjándu aldar. Göngur voru
algengastar vestanlands en um 1970
tók fyrir þær. Þó komu tvær göngur
eftir það, árin 1979 og 1984, og
var smokkurinn þá veiddur á ný.
Við norðanverðar Evrópustrendur,
þar sem smokkgöngurnar voru
árvissar, gerðist það sama og hér.
Haustgöngurnar hættu smám saman
að koma.
Engar viðhlítandi skýringar hafa
verið settar fram um hvað olli því
að smokkurinn hvarf en ofveiði er
ekki kennt um.
Mest veitt 1.600 tonn
Veiðarnar þróuðust smám saman en
afli á beitusmokki hér við land hefur
verið illa skráður í gegnum tíðina
enda veiddu margir hann í beitu til
eigin nota. Á tímabilinu 1958 til
1966 veiddust nokkur hundruð tonn
á ári en mest var veiðin um 900 tonn
árið 1966.
Veiðin var góð þegar smokkurinn
kom hér aftur árið 1979 og 1.600
tonn veiddust árið 1984. Aldrei hefur
veiðst meira en árið 1984 en þá voru
komnar til sögunnar véldrifnar
færavindur sem ef til vill má að
stórum hluta þakka þennan metafla
frekar en mikilli smokkgengd.
Eftir það hefur ekki orðið vart
við göngur smokkfisks inn á firði
hér við land.
Finnst í haustralli
Vel er fylgst með því hvort
smokkfiskur láti sjá sig í
á r legum s tofnmælingum
Hafrannsóknastofnunar, bæði í
leiðöngrum að hausti og vori. Lengst
af hefur lítillega fundist af smokki
í haustrallinu á eða yfir
landgrunnsköntunum úti fyrir
Suður- og Vesturlandi og úti á
Reykjaneshrygg. Smokksins hefur
hins vegar lítt orðið vart uppi á
landgrunninu og því síður inni á
fjörðum.
Nokkuð eftir síðustu aldamót
fannst heldur meira af smokki en
árin á undan þótt aldrei væri það
mikið. Árið 2008 skar sig þó úr en þá
veiddust tæplega 400 smokkfiskar í
haustrallinu á 97 stöðvum.
Leiðangur á Dröfninni
Haustið 2010 var farið í leiðangur
á Dröfn RE til að kanna hvort
smokkfiskur veiddist hér við land
á handfæri. Skipið var vel búið
veiðarfærum og tilheyrandi ljósum.
Svæðið suður og vestur af landinu
var kannað en lítil sem engin veiði
var. Helst veiddust nokkrir smokkar
við Suðurlandið.
Beitusmokkfiskur gæti
hugsanlega orðið nytjafiskur á ný hér
við land ef réttu skilyrðin skapast.
Til mikils er að vinna því erlendur
beitusmokkur er árlega keyptur inn
fyrir hundruð milljóna króna. Um
er að ræða smokk sem aðallega
er veiddur við Falklandseyjar á
handfæri.
Kjartan Stefánsson
kjartanst@simnet.is
Valencia er höfuðborg sam-
nefnds héraðs á eystrihluta
Íberíu-skaga. Héraðið er á
frjósamri sléttu nærri ósum
Turia-árinnar sem fellur
til Miðjarðarhafs. Þar er
markaður fyrir landbúnaðar-
vörur og miðstöð iðnaðar og
samgangna.
Valencia er þriðja stærsta
borg Spánar og 24. fjölmennasta
borgin í Evrópusambandinu.
Höfnin í Valencia er sú stærsta
við vestanvert Miðjarðarhafið og
þaðan er flutt mikið af mat og
drykkjarvöru.
Í borginni er talsvert framleitt
af vefnaðarvöru, efnavöru,
málmum og öli. Heiti borgarinnar
var upphaflega rómversk
Valentina, sem þýðir styrkur á
latínu, en með tímanum breytist
framburðurinn í Valencia.
Á þeim tíma sem márar eða
múslimar réðu Spáni fékk borgin
viðurnefnið Borg gleðinnar eða
Borg sandsins eftir því sem hvor
sín heimildin segir.
Samkvæmt frásögnum
rómverska sagnfræðingsins Livy
lögðu Rómverjar Valenciasvæðið
undir sig árið 138 fyrir Krist og
stofnuðu borgina. Pompeius
mikli lagði hluta borgarinnar í
rúst árið 75 fyrir Krist í stríði
gegn her uppreisnarforingjans
Quintus Sertorius og var Valencia
rómversk borg til 413 eftir Krist.
Márar tóku borgina árið 714 og
gerðu hana að höfuðborg hins
sjálfstæða konungsríkis Valencia.
Árin 1021 til 1319 var Valencia
sjálfstjórnarhérað.
Borgin blómstraði fram
á fyrri hluta 17. aldar, þegar
verslun þar hnignaði. Í
N a p ó l e o n s s t y r j ö l d u n u m
hersátu Frakkar borgina
og hún var höfuðborg
lýðveldishreyfingarinnar um tíma
í spænsku borgarastyrjöldinni.
Áin Turia skipti borginni í
tvo hluta áður fyrr en hún flæddi
yfir bakka sína um miðja síðustu
öld og olli gríðarlegu tjóni og
var árfarvegur hennar fluttur
í kjölfarið. Vegna flutnings
árinnar varð til gríðarlega
fallegur garður í miðri borginni,
Turia-garðurinn.
Í borginni er mikið um fallegan
arkitektúr þar sem bæði gamlar og
nýjar byggingar fá að njóta sín.
Valencia er meðal annars þekkt
fyrir klasa bygginga sem kallast
Borg lista og vísinda sem er að
finna á Turia-svæðinu. Borg lista
og vísinda samanstendur af fimm
aðalbyggingum, óperuhúsinu
Palau de les Arts Reina Sofia,
kvikmyndahúsinu Imax,
vísindabyggingunni The Prince
Felipe, viðburðabyggingunni
Agora og hópi bygginga í
gríðarlega stórum garði sem
saman mynda sædýrasafnið
Oceanografic.
Grasagarðurinn í Valencia er
hluti af háskóla borgarinnar og
í garðinum hafa verið ræktaðar
krydd- og lækningajurtir frá því
á sextándu öld en háskólinn var
stofnaður árið 1499. Garðurinn
skemmdist mikið þegar áin Turia
flæddi yfir bakka sína 1957 og í
kjölfar þess voru gerðar miklar
endurbætur á garðinum.
Við Plaza de la Virgen torg
í hjarta Valencia er dómkirkja
og í henni er geymdur heilagur
kaleikur og skammt frá er
ráðhús borgarinnar. Þar skammt
hjá er Plaza del Ayuntamiento,
nautaatshringur sem var byggður
1850 og er enn í notkun.
Rétturinn paella er
einkennismatur Valencia.
Afbrigði réttarins eru mörg og
eiginlega jafnmörg og þeir sem
hann elda. Drykkur sem kallast
orxata er einnig upprunninn í
Valencia-héraði. /VH
STEKKUR
NYTJAR HAFSINS
Kveiktu eld til að laða
smokkinn á land
Haustið 1955 var mikil smokkveiði í Ísafjarðardjúpi. Þessi mynd var tekin þegar skipverjar á Víkingi II eru að
Ísafjarðar.
Beitusmokkur
Mynd / Bæringur Cecilsson
Valencia á Spáni