Bændablaðið - 31.01.2019, Síða 17
Bændablaðið | Fimmtudagur 31. janúar 2019 17
Gæðahurðirnar frá Lindab hafa sannað yfirburði sína með áratugaendingu við íslenskar
aðstæður. Þær fást með og án mótors og henta m.a. vel fyrir blautrými þar sem ryðfríir
fylgihlutir tryggja betri endingu. Allar Lindab-hurðir eru útbúnar klemmivörn og þeim
öryggisbúnaði sem reglur segja til um.
Kynntu þér Lindab á limtrevirnet.is eða hjá söludeild í síma 412-5350.
limtrevirnet.is
Aðalskrifstofa - Borgarbraut 74 - 310 Borgarnes
Söluskrifstofa - Lynghálsi 2 - 110 Reykjavík
Netfang - sala@limtrevirnet.is
Aðalnúmer: 412 5300 | Söludeild: 412 5350
Öflugar í samstarfi
-liprar og sterkar iðnaðarhurðir frá Lindab
Samtök sjávarútvegssveitarfélaga:
Akureyri sækir um aðild
Bæjarráð Akureyrar hefur
falið bæjarstjóra að sækja um
aðild að Samtökum sjávar-
útvegssveitarfélaga. Umræða
var um stöðu Akureyrarbæjar
sem sjávar útvegs sveitarfélags
á fundi bæjarráðs nýlega
sem og hvort sækja ætti um
aðild bæjarins að Samtökum
sjávarútvegssveitarfélaga.
Gunnar Gíslason, Sjálfstæðis-
flokki, hóf umræðuna og reifaði
mikilvægi og vægi sjávarútvegs
í Akureyrarbæ. Í tillögu sem
hann lagði fram segir að
Akureyrarbær hafi verulega
hagsmuni af starfsemi fyrirtækja
sem starfa í sjávarútvegi og megi
ætla að hlutfall heildarlauna af
starfsemi sem tengist beint eða
óbeint sjávarútvegi á Akureyri
sé um 25–30% að minnsta
kosti. Hlutfallið sé enn hærra
þegar litið sé til Hríseyjar og
Grímseyjar. Því hljóti það að
þjóna hagsmunum Akureyrarbæjar
að vera aðili að Samtökum
sjávarútvegssveitarfélaga. /MÞÞ
Siglufjörður:
Fleiri farþegar
með skipum
Gert er ráð fyrir að 39 skemmti-
ferðaskip hafi viðkomu á Siglufirði
á þessu ári, frá vori og fram á
haust. Fyrsta farþegaskip ársins,
Ocean Diamond, kemur til hafnar
þann 14. maí en hið síðasta kemur
20. september.
Alls koma 11 farþegaskip til
Siglufjarðar á þessu ári og með þeim
koma tæplega 8.000 farþegar, 7.925
nákvæmlega. Sami fjöldi skipa
kemur nú í sumar og gerði á liðnu
sumri en töluverð fjölgun farþega
er á milli ára, fleiri stærri skip koma
nú í ár miðað við fyrra ár. Þannig
eru skipakomur örlítið færri en var
í fyrrasumar, 39, sem fyrr segir, á
móti 42 í fyrra.
Nýtt farþegaskip, Saga Sapphire,
með um 600 farþega innanborðs,
bætist í hóp þeirra skipa sem staldra
við á Siglufirði í ár. Nokkuð er um að
skipin stoppi lengur í höfn en áður
en lengsta viðvera verður allt upp í
16 klst. /MÞÞ
Gert er ráð fyrir að tæplega 8.000 farþegar komi með þeim 39 skemmtiferða-
Mynd / Fjallabyggð
Mynd / Heiðar Marteinsson
Leiðrétting
Í grein Guðjóns Einarssonar í
síðasta Bændablaði um nytjar
hafsins fjallaði hann um sögu
loðnuveiða við Ísland. Þar láðist
að birta kvót með texta og rétta
myndatexta sem fylgdu greininni
og sjá má hér undir myndum.
Er Guðjón beðinn velvirðingar á
þessum mistökum.
Greinin var annars afar
áhugaverð og lýsir einkennilegri
afstöðu Íslendinga til þessarar
fisktegundar lengi vel og kölluðu
sjómenn loðnuna jafnvel ódrátt ef
hún kom í síldarnætur. Stjórnendur
fiskimjölsverksmiðjanna fussuðu
líka og sveiuðu yfir loðnunni en
útgerðarmenn línubáta tóku henni
fagnandi enda þótti hún fyrirtaks
beita. Nú er loðnan talin einn
mikilvægasti nytjastofn Íslendinga,
enda skapa loðnuafurðir mikinn
gjaldeyri í þjóðarbúið. /HKr.
Mynd / Þorbjörn Víglundsson
daæ
eb úa
B n
.
f r r