Bændablaðið - 31.01.2019, Side 21
Bændablaðið | Fimmtudagur 31. janúar 2019 21
og stærð, en hann hafi ekki séð
neina annars staðar sem er eins
upp byggð og Kalka. Fyrir utan
sorpið sem brennt er í Kölku, falla
til á Suðurnesjum um 6–7 þúsund
tonn af öðrum úrgangi sem er að
hluta til sendur í endurvinnslu
eða til urðunar. Stefnt er að því að
endurvinnsluhlutfall aukist með
flokkunarverkefni við heimili á
svæðinu sem hófst á síðasta ári.
Auk þess að þjóna sveitar-
félögunum fjórum á Suðurnesjum
tekur Kalka á móti úrgangi
frá flugþjónustusvæðinu á
Keflavíkurflugvelli. Þá tekur stöðin
einnig til brennslu sóttmengaðan
úrgang, m.a. frá sjúkrahúsum, sem
og ýmsa flokka spilliefna sem falla
til hér á landi.
Geta ekki annað brennslu á sorpi
af Suðurlandi
– Hvað með sorp af Suðurlandi,
hafið þið bolmagn til að taka það
til brennslu hjá ykkur?
„Nei, við erum að þjóna
sveitarfélögunum og fyrirtækjum
á Suðurnesjum og höfum verið
ásetnir með pláss hjá okkur og ekki
mjög aflögufærir að bæta miklu við.
Mögulega getum við þó tekið einn
og einn farm, en það er ekki til að
treysta á varðandi allt það magn
sem til fellur á Suðurlandi.
„Það er nægt landrými á Suður-
landi til að urða óvirkan úrgang og
við getum alveg verið sjálfum okkur
nóg í þessum efnum. Það þarf að
leita annarra leiða en að flytja sorpið
úr landi. Það kostar of mikið og er
í alla staði óhagkvæmt,“ segir Jón.
Hann segist ekki vita til að nein
áform séu uppi á vegum sveitarfélaga
að reisa aðra sorpbrennslustöð á
Íslandi, en Kalka hafi sótt um lóð
fyrir sorpbrennslustöð við hliðina
á athafnasvæði fyrirtækisins í
Helguvík og fengið lóðinni úthlutað
af Reykjanesbæ.
Sorpbrennsla umhverfisvænni
en urðun
– Nú er ljóst að landrými til
urðunar í Álfsnesi er óðum að
fyllast, er þá nokkuð annað til
ráða að þínu mati en að setja upp
sorpbrennslustöðvar?
„Nei, það held ég ekki. Við
höfum verið í góðu samstarfi með
ýmislegt við Sorpstöð Suðurlands,
Sorpu og Sorpurðun Vesturlands og
þar hefur þetta talsvert verið rætt.
Þróunin í þessum málum er dálítið
á þann veg að flokkun á sorpi,
endurvinnsla og endurnýting mun
aukast. Þá minnkar það magn sem
þarf að urða eða brenna.”
Bannað verður að mestu að urða
í Evrópu eftir 2030
„Reglur Evrópusambandsins sýna
fram á það að um 2030 verður
bannað að urða sorpi, nema því
sem óvirkt er og útilokað að gera
annað við, eins og byggingarúrgang
og annað slíkt. Þá er stefnan í
Evrópu að vera með brennslu til að
mæta þeim reglum. Það ber öllum
saman um að það er líka í raun
mun umhverfisvænni sorpeyðing
en urðunin.
Miðað við þá tækni sem orðin
er til að koma í veg fyrir mengun
frá slíkum stöðvum, þá er stöð
eins og okkar að skila mjög lítilli
loftmengun og langt innan þeirra
marka sem leyfileg eru, “ segir Jón.
Hann segir að stöð eins og Kalka
þurfi að geta verið með stöðuga
brennslu allan sólarhringinn því
ekki gangi að brenna aðeins hluta úr
sólarhringnum. Hann segir að það sé
m.a. ástæðan fyrri því hve seint var
farið út í að flokka á Suðurnesjum,
því stöðin hafi þurft á öllu sorpinu
að halda. Nú sé staðan orðin önnur,
sorp á svæðinu hafi aukist og því
hafi verið ákveðið að fara út í
flokkun við heimili á svæðinu. Það
minnkaði umfangið á sorpinu, en
samt er það fyllilega nóg til að halda
stöðinni gangandi.
Íslensk endurvinnsla hefur átt
erfitt uppdráttar
Það er sjaldnast sem hugur og
aðgerðir í stjórnkerfinu hafa fylgt
fjálglegu tali stjórnmálamanna um
að gera þurfi átak í endurvinnslu.
Pure North Recycling er t.d.
eina plastendurvinnslufyrirtækið
á Íslandi. Það hefur stundað
það þjóðþrifaverk að taka til
endurvinnslu rúlluplast frá
bændum og ónýta plastkassa
frá matvælafyrirtækjum. Þar er
raforka frá endurnýjanlegum
orkulindum, heitt og kalt vatn notað
til að þvo og vinna plastúrgang í
nothæft hráefni til endurnýtingar í
margvíslegar iðnaðarvörur. Annar
verksmiðjan um 2.500 tonnum
af úrgangsplasti á ári sem er þó
aðeins brot af því sem til fellur frá
heimilum og margháttaðri starfsemi
á Íslandi. Sigurður Halldórsson,
framkvæmdastjóri Pure North
Recycling, hefur gagnrýnt að
takmarkaður áhugi hafi verið meðal
stjórnmálamanna á að styðja við
slíka endurvinnslu hér á landi. Þar
hafa samt ýmsir reynt fyrir sér, m.a.
við endurvinnslu á netum og öðrum
veiðarfærum, en skort fjárhagslegt
bolmagn og stuðning til að halda
því gangandi.
Vandi endurvinnslu á Íslandi er
lítið umfang á efni
Jón Norðfjörð hjá Kölku segir
vandann við endurvinnslu hér á landi
aðallega vera þann hvað magnið er
í raun lítið sem til fellur. Þó okkur
Íslendingum finnist oft nóg um, þá
sé efnismagnið oft ekki nægjanlegt
til að hægt sé að halda úti hagkvæmri
endurvinnslu nema að litlu leyti.
Þá er aðeins tvennt eftir í stöðunni,
annaðhvort að flytja efnið út með
ærnum kostnaði eða að brenna það
í fullkominni sorpbrennslustöð sem
mundi framleiða orku. Í fljótu bragði
virðist því ljóst að það sé farið að
verða aðkallandi að reist verði í það
minnsta ein öflug sorpbrennslustöð
og þá með orkuvinnslu í huga.
Engin framtíðarlausn
að flytja út sorp
„Það er ekkert annað í boði en að
fara að huga að þessu máli. Það er
ekki nein framtíðarlausn að flytja
sorp út til brennslu eða endurvinnslu.
Það er þegar mjög þungt í vöfum og
orðið erfitt með öll leyfi fyrir slíkum
flutningum. Við erum að flytja út
ösku til Noregs og það er bæði
mjög erfitt að fá útflutningsleyfi
og innflutningsleyfi í viðkomandi
landi.“ Þá telur Jón að ekki sé hægt
að treysta á að útlendingar taki við
sorpi frá okkur til langrar framtíðar.
Getum ekki vísað ábyrgðinni
yfir á útlendinga
„Við verðum að átta okkur á því
að sorpið heldur áfram að verða til
og það þarf að gera ráðstafanir til
að farga því. Við getum ekki vísað
ábyrgðinni af því yfir á útlendinga,
enda eigum við að geta verið sjálfum
okkur nóg í öllum þessum málum,“
segir Jón Norðfjörð.
Um 50% af sorpi í Svíþjóð
er brennt
Svíar segjast „endurvinna“ um 99%
af um 4,4 milljóna tonna úrgangi
sem til fellur þar í landi árlega, en
það hlutfall var 38% árið 1975. Þar
af er um 50% eða 2,2 milljónum
tonna brennt í orkuvinnslustöðvum
eða svokölluðum „waste-to-energy
(WTE)“ stöðvum. Fyrsta stöðin af
svipuðum toga var reist þar í landi
á fimmta áratug síðustu aldar. Um
1% af sorpinu fer í landfyllingar,
sem hafa að mestu verið bannaðar
í landinu. Áætlanir gera ráð fyrir
að 100% af sorpi í Svíþjóð verði
„endurunnið“ í landinu á næsta
ári. Talsverður hluti er lífrænn
úrgangur sem nýttur er til moltu-
eða jarðvegsgerðar.
Um 800.000 tonn af sorpi eru
flutt árlega til endurvinnslustöðva
í Svíþjóð frá Bretlandi, Noregi,
Íslandi, Írlandi og frá Ítalíu. Þar er því
brennt í 32 WTE brennslustöðvum.
Svíar hafa verið að standa sig
þjóða best í þessum efnum, en það
væri þeim gjörsamlega ómögulegt
nema að tileinka sér nýjustu tækni til
brennslu á sorpi til orkuframleiðslu.
Eigi að síður eru samt fjölmargir á
móti öllum bruna á sorpi.
Kínverjar fengu nóg af því
að stunda sorpeyðingu fyrir
Vesturlandabúa
Hluti af íslenska útflutnings sorpinu,
og þá einkum plast sem sent var úr
landi, var um árabil áframsent til
Kína. Ekki er þó auðvelt að nálgast
áreiðanlegar tölur um þá flutninga.
Þetta var gert til áramóta 2017 er
Kínverjar hættu að taka við slíkum
úrgangi.
Á árinu 2017 var sorp farið að
hlaðast upp í Kína í gríðarlegu magni,
eða sem nam um 520.000 tonnum
á dag. Svonefnd „endurvinnsla“
Kínverja á plastúrgangi frá
Vesturlöndum og öðru sorpi fólst
í að stórum hluta í brennslu og
framleiðslu á hitaorku og rafmagni.
Kínversk stjórnvöld telja brennslu
á sorpi æskilegustu leiðina. Þar horfa
þau til hátækni brennslustöðva eins
og Gao'antun orkustöðina sem rekin
er af Chaoyang-hverfisstjórninni í
Beijing. Sú stöð getur brennt með
yfir 1000° hita á Celsíus og er að
skila raforkuframleiðslu fyrir 140
þúsund heimili. Kínversk stjórnvöld
höfðu stefnt að því að á árinu 2020
yrði um 40% af öllu sorpi sem félli
til í landinu brennt í slíkum stöðvum.
Gallinn við þá áætlun var sagður að
flestar stöðvarnar eru einkareknar
og þær sem hafa boðið lægsta
móttöku- eða endurvinnslugjaldið
[undir 4 dollurum á tonnið] hafa
jafnframt verið að brenna við
mjög ófullkominn bruna og við
lægra hitastig. Það þýðir stórfellda
loftmengun.
Kínverjar reisa stærstu
sorpbrennsluorkustöð í heimi
Í borginni Shenzhen í Kina er nú
verið að reisa stærstu sorpbrennslu-
orkustöð í heimi sem brenna mun
um 5.000 tonnum af sorpi á dag.
Hún á að vera komin í gagnið
2020 og er ætlað að stemma stigu
við stjórnlausa losun á sorpi í
landfyllingar á svæðinu.
Á árinu 2015 létust þar tugir
manna í Shenzhen þegar ruslahaugur
gaf sig. Þak nýju sorpbrennslunnar
í Shenzhen verður 44.000 fermetrar
og verður þakið með sólarsellum
til raforkuframleiðslu. Þessi stöð er
ein af 300 waste-to-energy (WTE)
sorpbrennslustöðvum sem Kínverjar
hyggjast reisa í landinu. Það bætist
þá við ríflega 400 stöðvar sem
brenna rusli til raforkuframleiðslu
sem fyrir eru.
Þjóðir heims sjái sjálfar um
sína sorpeyðingu
Nú brenna Svíar öllu sem þeir
geta brennt, líka plasti, en eftir
að Kínverjar lokuðu á móttöku á
úrgangsplasti fóru ruslahaugar að
hlaðast upp í Evrópu, Bandaríkjunum
og víðar. Hefur því verið vaxandi
krafa uppi um að þjóðir heimsins
sjái sjálfar um að eyða sínu sorpi
og úrgangsefnum. Því hlýtur að
vera óhjákvæmilegt að Íslendingar
endurskoði sína afstöðu m.a. til
brennslu á sorpi með eins vistvænum
hætti og mögulegt er.
Á árinu 2017 voru starfræktar
í Bandaríkjunum 71 WTE
sorpeyðingarstöð í 20 ríkjum með
samanlagða raforkuframleiðslugetu
upp á 2,3 gígawött. Fyrsta stöðin
af þeim toga var Palm Beach
Renewable Energy í Flórída sem
reist var 1995. Árið 2018 voru
stöðvarnar þar orðnar 11. Þá voru
10 slíkar stöðvar í New York.
San Francisco í Bandaríkjunum
stefnir að því að ekkert sorp fari
til urðunar eða í landfyllingar árið
2020, en fram undir þetta hefur um
80% af sorpi í borginni verið hlaðið
upp í landfyllingar, en nú á að snúa
þessu við. Svipuð áform eru upp á
teningnum víðar um lönd og virðast
fullkomnar sorpbrennslustöðvar
vera þar efst á blaði til að umbreyta
ruslinu í raforku.
Í Þýskalandi eru 72 stöðvar,
Hollandi 12, í Danmörku 29
og 24 í Bretlandi svo eitthvað
sé nefnt, samkvæmt vefsíðu
YaleEnviroment360.
Skiljum eftir okkur þyngd okkar í
rusli á tveggja mánaða fresti
Á vefsíðu The Atlantic kemur fram
að meðalmanneskja í þróuðum
OECD-ríkjum heims er að skilja
eftir sig um 1,17 kg af sorpi á dag.
Það þýðir að hver meðalmaður á
Íslandi skilur eftir sig ígildi þyngdar
sinnar í rusli á rúmlega tveggja
mánaða fresti.
Um 59% af öllu sorpi heimsins
er urðað og nýtt í landfyllingar. Það
sorp mun á endanum m.a. valda
mengun og eitrun á grunnvatni. Um
13–33% er hent á ruslahauga á landi.
Af öllum ruslaúrgangi heimsins
er lífrænn úrgangur talinn vera um
46%. Þá er pappír 17%, plast 10%,
gler 5%, málmar 4% og annað
óskilgreint er 18%.
Það vekur athygli að þrátt fyrir
allt tal um endurvinnslu, þá er
einungis endurnotað og endurunnið
um 1% af öllu ruslinu. Auðvitað er
þetta svo mjög mismunandi eftir
ríkjum eins og tölur frá Svíþjóð
benda til.
Fæst hjá dýralæknum og í
hesta- og búvöruverslunum
um allt land
www.primex.is
s. 460 6900
Mjög græðandi og bakteríudrepandi
Hefur reynst vel við hnjóskum á hrossum
Dregur úr blæðingu
Íslenskt
hugvit, hráefni
& framleiðsla
Íslenskt sárasprey
fyrir öll dýr, stór og smá
Nýja sorporkustöðin sem verið er að reisa í Shenzhen í Kína verður stærsta sorporkustöð í heimi. Hún getur
brennt 5.000 tonnum af sorpi á dag. Á þaki hennar verða sólarsellur til að auka enn frekar við raforkuframleiðslu
stöðvarinnar. Þessi stöð er hluti af áformum Kínverja um byggingu hundraða sorporkustöðva til viðbótar um 400
stöðvum sem fyrir eru í landinu.
Úr stjórnstöð sorporkustöðvar í Kína.