Bændablaðið - 31.01.2019, Side 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 31. janúar 201924
LÍF&STARF
Þessi fallega pottaplanta hefur
fengið nafn sitt vegna lögunar
sinnar en neðsti hluti stofnsins
á ungum plöntum myndar
nánast hnöttóttan, trékenndan
forðahnúð sem geymir vatn og
næringarefni. Upp af honum
vex grannur trékenndur stofn
sem ber þéttan krans ílangra,
gljáandi laufblaða sem veita
plöntunni sérstakt og heillandi
útlit.
Flöskupálmi (Beaucarnea
recurvata) er ekki eiginlegur
pálmi þótt nafnið gefi það til
kynna heldur er hann skyldari
liljum og aspas.
Kemur frá Mexíkó
Tegundin vex villt á þurrlendum,
björtum og hlýjum stöðum í
Mexíkó. Nú teljast 12 tegundir
innan ættkvíslarinnar. Mjög
hefur þrengt að náttúrulegum
vaxtarstöðum þeirra í S-
Ameríku vegna ágangs manna.
Því hafa verið settar alþjóðlegar
takmarkanir á sölu tegundanna
í þeirri viðleitni að viðhalda
náttúrulegum stofnum þeirra
en pottaplönturnar okkar eru
framleiddar af ræktuðu fræi í
gróðurhúsum.
Í náttúrunni myndast fræin á
plöntum sem hafa náð 10–15 ára
aldri. Tegundin er sérbýlisplanta,
því þarf bæði karl- og kvenplöntu
til að þroskuð fræ myndist.
Varla er hægt að búast við að
flöskupálminn myndi fræ í
heimahúsum. Eldri plöntur í
pottum geta orðið mannhæðar
háar eða hærri.
Ungar plöntur mynda einn
háan trékenndan miðstöngul en
á eldri plöntum geta allmargir
sjálfstæðir sprotar vaxið upp
úr neðsta hlutanum og gefur
það plöntunni enn sérstæðara
yfirbragð. Hægt er að sníða
aukasprota af með beittum hníf
og reyna að láta þá mynda rætur
í vikurblandaðri mómold.
Þrífst best á björtum stað
Sem pottaplanta nýtur flösku-
pálminn sín best á björtum
stað en hún þolir hálfskugga.
Venjulegur stofuhiti hentar
henni ágætlega. Sökum þess að
hún vex fremur hægt má hafa
hana í fremur litlum pottum. Ef
ætlunin er að leyfa plöntunni að
ná sem mestum vexti er ágætt að
koma henni fyrir í stærri potti.
Þá þarf að vanda til verka, skola
moldina varlega af rótunum
með volgu vatni, greiða síðan
vandlega úr rótarkerfinu þannig
að það dreifist sem jafnast í nýja
pottinum. Notuð er góð vikur –
eða sandblönduð pottamold. Best
er að umpotta að áliðnum vetri.
Flöskupálmi þarfnast ekki
mikillar vökvunar og skyldi
gæta þess að fjarlægja allt
umframvatn úr pottahlífinni að
vökvun lokinni, um hálftíma
eftir að vökvað hefur verið.
Ofvökvun fer illa með ræturnar
og er algengasta dánarorsök
plantnanna. Frá vori til hausts er
vökvað með daufri áburðarlausn
öðru hvoru en í skammdeginu
er dregið mjög úr vökvun og
áburðargjöf hætt með öllu.
Plöntum sem vaxa í mjög smáum
pottum er helst hætt við ofþornun
en eldri plöntur í stærri pottum
þarf yfirleitt aðeins að vökva
vikulega eða sjaldnar.
Auðvelt að halda plöntunni
við
Almennt er auðvelt að halda
plöntunni heilbrigðri og fallegri
árum saman sé þess gætt að halda
vökvun og áburðargjöf í réttu
horfi. Meindýr sækja ekki mikið í
laufið, helst eru það spunamítlar.
Flöskupálmi er ein af þessum
sérkennilegu, karaktermiklu
pottaplöntum sem gera ekki
flóknar ræktunarkröfur en
gefa bæði heimilum og
stofnanaumhverfi glæsilegt
yfirbragð.
Ingólfur Guðnason,
brautarstjóri
garðyrkjuframleiðslusviðs
GARÐYRKJUSKÓLI LBHÍ REYKJUM
Flöskupálmi getur orðið
mannhæðar hár
„Það eru mörg spennandi verk-
efni í farvatninu hjá okkur,“ segir
Þorgeir Pálsson, sveitarstjóri í
Strandabyggð. Hann telur að
komandi ár verði mikilvæg og
áhugaverð fyrir byggðalagið. Ekki
sé ólíklegt að samstarf sveitar-
félaga á svæðinu muni aukast,
hvort sem um verði að ræða
formlegar sameiningar eða aukið
samstarf. Mannlíf í Strandabyggð
er gott, fjölbreytni mikil og þar
vantar fólk til starfa.
Íbúar í Strandabyggð eru
hátt í 500 talsins, staðsetning
sveitarfélagsins er nokkurn veginn
miðja vegu á milli Reykjavíkur
og Ísafjarðar, en sveitarfélagið
samanstendur af þéttbýliskjarnanum
Hólmavík og sveitunum þar í kring.
„Strandabyggð er fyrst og fremst
þjónustukjarni þar sem boðið er
upp á hátt þjónustustig,“ segir
Þorgeir, en meðal þess sem finna
má í sveitarfélaginu er Heilsugæsla,
Vegagerð, Orkubúið, Kaupfélagið,
Sparisjóðurinn, Pósturinn,
Sýslumaðurinn, Lögreglan,
slökkvilið, björgunarsveitin
Dagrenning, Íþróttamiðstöð,
grunn-, og leikskóli auk
tónlistarskóla. Ferðaþjónusta er
rekin í sveitarfélaginu, m.a. hótel,
gistiheimili og veitingastaðir,
en einnig er þar útgerðarfélag,
öflugur landbúnaður og
matvælaframleiðsla bæði er varðar
landbúnaðarvörur og sjávarafurðir.
Einnig er í sveitarfélaginu öflug
menningarstarfsemi, leikfélag
starfandi, tveir kórar og söfn svo
eitthvað sé nefnt.
Fólk vantar til starfa á Ströndum
en vandinn er sá að sögn Þorgeirs
að meira mætti vera til af lausu
húsnæði á staðnum líkt og gildir
víða á landsbyggðinni. „Engu að
síður eru nokkur hús til sölu hér,“
segir Þorgeir.
Skoða möguleika á hitaveitu
Þorgeir segir að verið sé að skoða
möguleika á uppbyggingu hitaveitu í
sveitarfélaginu með því að leiða vatn
úr Hveravík í Kaldrananeshreppi
yfir til Hólmavíkur. „Fram undan
er álagsprófun á holu sem þar er
og eftir að því er lokið vitum við
hvort þarna er nægilegt vatn fyrir
hitaveitu. Það er ekki spurning að
það myndi breyta miklu fyrir okkur
og auka lífsgæðin verulega, sem þó
eru mikil fyrir,“ segir Þorgeir.
Annað verkefni sem verið er að
ýta úr vör er viðamikið umhverfis-
og hreinsunarátak, þar sem tekin
verða fyrir viss svæði í þorpinu
og dreifbýlinu og þau markvisst
hreinsuð. „Það hefur um árin safnast
töluvert saman af bílum, dekkjum,
vélum og öðru sem öllum er til
ama en nú ætlum við að ráðast í
heilmikið hreinsunarátak í samstarfi
við íbúana og atvinnurekendur á
staðnum.“
Þorgeir segir staðsetningu
Hólmavíkur góða með tilliti til
ferðaþjónustu, einkum hafsækinnar
ferðaþjónustu. Undanfarin ár
hafi hvalaskoðun verið rekin frá
Hólmavík, af fyrirtækinu Láki Tours
frá Grundarfirði og hafi það gefist
sérlega vel. „Steingrímsfjörður
hefur verið iðandi af hval dag eftir
dag undanfarin ár. Það má segja að
Strandabyggð sé hið raunverulega
anddyri að Hornströndum og því
kjörinn staður til að leggja upp
frá í ferðir norður á Strandir og á
Hornstrandir,“ segir Þorgeir.
Aukin verðmæti á hvern íbúa
áhugavert markmið
Viðfangsefni sveitarfélags á
borð við Strandabyggð segir
Þorgeir vera endalaus, alltaf sé
eitthvað við að fást og engir tveir
dagar eins. Fjölbreytileikinn sé
einkennandi fyrir daglega lífið.
„Svona lítil sveitarfélög hafa oft
og tíðum sams konar markmið;
að auka útsvarstekjur svo hægt
sé að fara í frekari framkvæmdir
og uppbyggingu, laða að nýtt fólk
og fjölskyldur og efla og styrkja á
þann hátt mannlífið. En við getum
líka séð fyrir okkur markmið sem
lúta að því einfaldlega að viðhalda
því sem við höfum og skapa
aukin verðmæti. Það er ekki allt
fengið með fjöldanum og aukin
verðmæti á hvern íbúa er áhugavert
markmið,“ segir Þorgeir og bendir
á að á Hólmavík sé rækjuvinnsla,
útgerðarfyfirtæki, landbúnaður sé
í sveitarfélaginu og innan þessara
atvinnugreina gætu legið tækifæri
til frekari verðmætasköpunar.
Fylgjast með
nágrannasveitarfélögum
Þorgeir nefnir að næstu þrjú ár
verði áhugaverð og mikilvæg
fyrir Strandabyggð. Í Árneshreppi
sem liggur að Strandabyggð
eru virkjunarframkvæmdir í
undirbúningi og í öðru nærliggjandi
sveitarfélagi, Reykhólahreppi,
er vindmyllugarður til skoðunar
og gangi þær framkvæmdir eftir
munu þær skapa heilmikil tækifæri
til sóknar sem einnig ná inn í
Strandabyggð. „Við fylgjumst
með þessum undirbúningi og
metum hvaða tækifæri geta falist
í þessum framkvæmdum fyrir
okkur. Strandabyggð er mikilvægur
þjónustukjarni fyrir svæðið og öll
uppbygging í kringum okkur skapar
tækifæri,“ segir Þorgeir.
Samstarf mun aukast
Samstarf sveitarfélaga mun að
hans mati aukast á komandi árum,
hvort heldur er undir formerkjum
sameiningar eða með öðrum hætti.
„Við hér í Strandabyggð erum
staðráðin í að gera okkar samfélag
enn betra, fjölskylduvænna og
skemmtilegra. Um það snúast öll
okkar verkefni, sama hversu stór
þau eru. Vissulega er staðan sú að
við megum við litlu þegar að því
kemur að halda atvinnu og fólki í
sveitarfélaginu, það vitum við. Nýtt
ár kallar því á enn frekari samstöðu
um að viðhalda þeirri stöðu sem nú
er uppi og berjast fyrir því sem við
höfum,“ segir Þorgeir. /MÞÞ
„Nýtt ár kallar á enn frekari samstöðu um að viðhalda þeirri stöðu sem nú er uppi og berjast fyrir því sem við
höfum,“ segir Þorgeir Pálsson, sveitarstjóri í Strandabyggð. Mynd / Jón Jónsson
Strandabyggð mikilvægur þjónustukjarni:
Mörg spennandi verkefni fram undan
– Öll uppbygging í nágrannasveitarfélögum skapar tækifæri, segir sveitarstjóri
Veitt í höfninni á Hólmavík.