Bændablaðið - 31.01.2019, Blaðsíða 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 31. janúar 201926
LÍF&STARF
Spinder fjósainnréttingar eru
hannaðar og prófaðar eftir
ströngustu gæðakröfum og miða
að velferð bæði dýra og manna.
Áralöng reynsla hefur leitt af
sér innréttingakerfi sem auðvelt
er að aðlaga að nánast öllum
þörfum nútímafjósa.
Við afgreiðum stíur, jötugrindur
og milligerði í mörgum stærðum
og gerðum og í flestum tilfellum
er afgreiðslutíminn stuttur og
varan flutt heim í hlað.
Hafðu samband:
bondi@byko.is
INNRÉTTINGAR
byko.is
UTAN ÚR HEIMI
Í flestum tilfellum var kjötið innkallað vegna alvarlegrar salmónellusýkingar, það sem í Bandaríkjunum kallast „Class
One“ sýking og getur hugsanlega valdið alvarlegri sýkingu og jafnvel dauða neytenda.
Bandaríki Norður-Ameríku:
Innkallanir á sýktu kjöti
tvöfaldast á fimm árum
Samkvæmt tölum sem Land-
búnaðar ráðuneyti Bandaríkjanna
hefur birt tvöfölduðust innkallanir
á sýktu rauðu og hvítu kjöti í
landinu á árunum 2013 til 2018.
Innkallanir á alvarlega sýktu
kjöti voru 97 árið 2018, eða fjórða
hvern dag og alls rúm 5,4 milljón
tonn.
Í flestum tilfellum var kjötið
innkallað vegna alvarlegrar
salmónellusýkingar, það sem í
Bandaríkjunum kallast „Class One“
sýking og getur valdið alvarlegri
sýkingu og jafnvel dauða neytenda.
Samkvæmt nýlegri skýrslu um
sýkingar í kjöti í Bandaríkjunum
segir að því miður sé það staðreynd
að sífellt meira af hættulega sýktu
kjöti sé á markaði og að berast inn á
borð þjóðarinnar og breytir þá engu
hvort um sé að ræða rautt kjöt eða
kjúklinga.
Kjötframleiðendur í Banda-
ríkjunum hafa svarað skýrslunni og
segja að auknar innkallanir séu vegna
aukins eftirlits en ekki vegna þess
að meira af sýktu kjöti sé í umferð.
Þrátt fyrir aukið eftirlit eru skráð
um 48 milljón tilfelli af völdum
mataeitrunar á ári í Bandaríkjunum.
Um 120.000manns lenda á spítala
og um 3.000 manns látast af völdum
matareitrana í Bandaríkjunum á ári.
Í skýrslunni er eftirlit með
matvælum og matvælaframleiðslu
í Bandaríkjunum gagnrýnt
harðlega. Meðal annars vegna
þess að þrátt fyrir að afbrigði
sýklalyfjaónæmrar salmónellu
greinist í kjöti sé sala þess
leyfileg.
Svar kjötframleiðenda við þessu
er að salmónella sé náttúruleg
baktería sem ekki sé hægt að losna
við að fullu. Í svari sínu greina
þeir ekki á milli salmónellu sem
hefur öðlast sýklalyfjaónæmi
vegna ofnotkunar á sýklalyfjum
í landbúnaði og salmónellu sem
finnst víða í umhverfinu. /VH
Byggðastofnun styrkir meistaranema:
Framtíðarsýn bænda á heima-
vinnslu og viðskipti
Stjórn Byggðastofnunar hefur
ákveðið að styrkja þrjá meist ara -
nema sem vinna að loka verkefnum
á sviði byggðamála. Heild ar upphæð
styrkjanna er ein milljón króna.
Veittir eru tveir styrkir að upphæð
350.000 krónur, en þriðja verkefnið
hlýtur styrk að fjárhæð 300.000
krónur. Tvær rannsóknanna eru
á sviði heilbrigðismála en þriðja
verkefnið er könnun varðandi
heimavinnslu landbúnaðar afurða.
All s bárust níu umsóknir um
styrkina, sem er nokkur fjölgun
frá síðasta ári. Styrkirnir eru
fjármagnaðir af byggðaáætlun og
skulu verkefnin sem sótt er um styrk
til hafa skírskotun til markmiða eða
aðgerða byggðaáætlunar.
Langvinnir sjúkdómar fjarri
sérfræðiþjónustu
Þórunn Björg Jóhannesdóttir,
meistaranemi á heilbrigðis-
vísindasviði í Háskólanum á
Akureyri, hlaut 350 þúsund króna
styrk vegna verkefnis sem heitir
„Að takast á við langvinnan sjúkdóm
fjarri sérfræðiþjónustu: upplifun
einstaklinga með kransæðasjúkdóm“.
Markmið rannsóknarinnar er
að lýsa upplifun fólks með
kransæðasjúkdóma á landsbyggðinni
af eftirliti, endurhæfingu, fræðslu
og stuðningi við sjálfsumönnun
og lífsstílsbreytingar og hins vegar
að lýsa sýn þátttakenda á þeirri
heilbrigðisþjónustu sem veitt er og
þeim úrbótum sem hópurinn telur
mikilvægar.
Krabbameinsmeðferð fjarri
heimabyggð
Reynsla fólks af landsbyggðinni
af krabbameinsmeðferð fjarri
heimabyggð er verkefni sem
Halldóra Egilsdóttir, meistaranemi
í hjúkrunarfræði við Háskóla
Íslands, hlaut 350 þúsund króna
styrk til að gera. Markmið
rannsóknarinnar er að veita
innsýn í reynslu einstaklinga
af landsbyggðinni af því að
fá krabbameinsmeðferð fjarri
heimabyggð. Niðurstöður
rannsóknarinnar gætu verið
leiðbeinandi við þróun þjónustu,
bæði í dreifbýli og á Landspítala
og stuðlað að því að betur verði
mætt þörfum einstaklinga óháð
búsetu.
Viðhorf bænda til heimavinnslu
Þriðja styrkinn fékk Elfa Björk
Sævarsdóttir, meistaranemi í mat-
væla fræði við Háskóla Íslands, 300
þúsund krónur, vegna verkefnis
sem nefnist Heima vinnsla land-
búnað ar afurða – framtíðarhorfur. Í
verkefninu verður viðhorf bænda
til heimavinnslu og heimasölu
búafurða kannað sem og skoðað
hver framtíðarsýn bænda er varðandi
vöruþróun og milliliðalaus viðskipti.
Eins verður kannað hversu margir
bændur sjá fyrir sér fullvinnslu heima
á býli eða í héraði og milliliðalausa
sölu afurða. Einnig verður skoðað
hvernig matvælaöryggi er tryggt í
heimavinnslu. /MÞÞ
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Næsta blað kemur út
14. febrúar
Fyrsta alvarlega tilfelli greni-
barkarbjöllu var staðfest í Kent
í Englandi fyrir skömmu.
Skógfræðingar á Bretlands-
eyjum segja að skaðinn sem
grenibarkarbjallan geti valdið
nái hún fótfestu í landinu sé
mun meiri en áhrif útgöngu
Evrópusambandsins verði nokkurn
tíma. Talið er að grenibarkarbjalla,
Ips typographus, geti valdið
talsverðum skaða í skógrækt á
Bretlandseyjum takist ekki að hefta
útbreiðslu hennar. Áætlað er að
skaði vegna bjöllunnar í Svíþjóð og
Noregi síðustu hálfa öldina eða svo
nemi um níu milljón rúmmetrum
af timbri.
Grenibarkarbjöllur eru 4 til 5
millimetrar að lengd og brúnar eða
svartar á litinn. Lirfa bjöllunnar er
hvít og eftir að hún umbreytist í
fullorðið dýr veldur hún trjánum
skaða með því að naga viðinn eftir
að hún klekst úr eggi. Auk þess
sem sveppasýking fylgir iðulega
í kjölfarið.
Yfirvöld skógarmála á
Bretlandseyjum hafa sívaxandi
áhyggjur af því að sífellt fleiri
tegundum meindýra og sjúkdóma
eru að berast til landsins og eykst
fjöldi þeirra á hverju ári og tíu nýjar
plöntuóværur skráðar á mánuði.
Skógfræðingar á Bretlandseyjum
segjast sérlega áhyggjufullir yfir
þeim skaða sem bjöllurnar geta
valdið sitkagreni, en um 29% skóga
landsins eru vaxnir sitkagreni.
Auk þess sem sitka er helsta
nytjatré landsins þegar kemur að
viðarframleiðslu. /VH
Bretlandseyjar:
Fyrsta tilfelli grenibarkarbjöllu
Eftir að lirfur grenibarkarbjöllunnar klekja út eggi og umbreytast í fullorðin
dýr naga þær við sitkagrenis og geta hæglega drepið trén.