Bændablaðið - 31.01.2019, Side 27
Bændablaðið | Fimmtudagur 31. janúar 2019 27
Fiskræktarsjóður starfar á grundvelli laga nr. 72/2008. Megin-
hlutverk sjóðsins er að veita lán eða styrki til verkefna sem þjóna
þeim markmiðum að efla fiskrækt, bæta veiðiaðstöðu, styðja
við rannsóknir í ám og vötnum og auka verðmæti veiði úr þeim.
Umsóknarfrestur um lán og styrki úr Fiskræktarsjóði, sem koma
til greiðslu árið 2019, er til og með 28. febrúar 2019.
Þeir sem fengið hafa styrk úr sjóðnum og sækja aftur um vegna
sama verkefnis, skulu skila inn framvinduskýrslu með nýrri umsókn.
Umsóknareyðublöð vegna styrkveitinga úr Fiskræktarsjóði má
nálgast á www.fiskistofa.is undir lax- og silungsveiði. Þar má
einnig nálgast verklagsreglur sjóðsins. Einnig er hægt að hafa
samband við Höllu Björk Garðarsdóttur, starfsmann Fiskistofu, í
síma 569 7900.
Umsóknum um styrki eða lán úr sjóðnum skal skila til formanns
Fiskræktarsjóðs á eftirfarandi heimilisfang:
Fiskistofa
v/Fiskræktarsjóðs
Borgum v/Norðurslóð
600 Akureyri
Styrkir 2019
Ertu að gleyma þér?
Samkvæmt reglugerð nr 916/2012 skulu
ásetningsmerki vera kominn í við 6 mánaða aldur
Minnum á pöntunarvefinn www. bufe.is
Iðjulundur – Furuvöllum 1 – 600 Akureyri.
Opið frá kl. 8 - 16 alla virka daga
Sími 414-3780 – pbi@akureyri.is
Micro
lambamerki
Bonito ehf. • Praxis • Faxafen 10 • 108 Reykjavík • Sími 568 2870
www.praxis.is •
Fatnaður og skór
fyrir fagfólkið
Gæða bómullarbolir fyrir dömur
og herra, stutterma og síðerma,
í mörgum fallegum litum.
...Þegar þú vilt þægindi
Erum með fatnað og skó
fyrir þá sem gera kröfur
Mikið úrval
af klossum
Mikið úrval af fatnaði sem þolir hátt
hitastig í þvotti, ótrúlega góð efni.
Kíkið á
praxis.is
1 4. rúrbef aAustur vegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
Kálflugudúkar
Við tökum við pöntunum á kálflugudúk til 15. mars n.k.
Garðyrkjubændur athugið!
Við tökum við pöntunum
á kálflugudúk til 15. mars n.k.
Stærðir: 13x100m og 13x200m
Samtök ungra bænda vilja innlausnar-
markað í mjólkurframleiðslu
Samtök ungra bænda héldu
aðalfund sinn á Öngulsstöðum í
Eyjafirði á dögunum. Á fundinum
var samþykkt stefnumótun sam-
tak anna til næstu fimm ára sem
verður kynnt á næstu misserum.
Á dagskrá fundarins voru meðal
annars ályktanir um afstöðu sam-
takanna til framleiðslu stýringar
í sauðfjárrækt og mjólk ur fram-
leiðslu.
Vilja áfram framleiðslustýringu í
mjólk og fagna tilkomu markaðar
með greiðslumark í sauðfé
Fundurinn telur að hagsmunum
ungra bænda í mjólkurframleiðslu
sé best varið með því að
viðhalda framleiðslustýringu í
greininni. Vísað var í tilvonandi
atkvæðagreiðslu um framtíð
kvótakerfis í mjólk og því beint
til stjórna Bændasamtakanna og
Landssambands kúabænda að ef
greiðslumark verði kosið áfram
þá verði settur á endurbættur
innlausnarmarkaður með útgefnu
verði sem yrði tvöfalt afurðaverð.
Ungir bændur leggja áherslu á að
nýliðar verði áfram í forgangshópi
að greiðslumarki.
Í ályktun í tengslum við efni
endurskoðaðs sauðfjársamnings
kemur fram að fundurinn
fagni tilkomu markaðar fyrir
greiðslumark í sauðfjárrækt. „Það
er von samtakanna að fyrirkomulagi
markaðsins verði þannig komið fyrir
að ungir bændur verði í forgangi
á kaupum á greiðslumarki,“ segir
jafnframt í ályktuninni.
Jóna Björg áfram formaður
Ný stjórn var kjörin á fundinum
en tveir stjórnarmenn höfðu lokið
kjörtímabili sínu, þeir Jóhannes
Kristjánsson og Jón Elvar
Gunnarsson. Þeim var þakkað gott
starf í þágu samtakanna á liðnum
árum.
Jóna Björg Hlöðversdóttir
er áfram formaður en að öðru
leyti skipa stjórn Samtaka ungra
bænda þau Guðmundur Bjarnason,
varaformaður, Steinþór Logi
Arnarsson, gjaldkeri, Þórunn Dís
Þórunnardóttir, ritari og Birgir Örn
Hauksson, meðstjórnandi.
Stjórn Samtaka ungra bænda. Steinþór Logi Arnarsson, Birgir Örn Hauksson,
Jóna Björg Hlöðversdóttir, Þórunn Dís Þórunnardóttir og Guðmundur
Bjarnason. Mynd / SUB