Bændablaðið - 31.01.2019, Blaðsíða 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 31. janúar 2019 35
TANNI TRAVEL
www.tannitravel.is
SUMARFERÐ TANNA TRAVEL
Sviss 2019
26. maí til 6. júní
Flogið frá Keflavík til München og heim aftur frá Zürich með Icelandair. Gist á þremur stöðum,
við Bodensee, í Weggis og í Lugano. Förum í heimsókn til Ítalíu.
Fararstjóri Sveinn Sigurbjarnarson, leiðsögukona Sigurbjörg Árnadóttir.
Allar nánari upplýsingar eru í síma
476-1399 eða á www.tannitravel.is
Austur vegur 69 - 800 Selfoss // Sími 480 0480 // byggingar@jotunn.is // www.jotunn.is
Glæsileg
smáhýsi
14,95m2
Eigum í pöntun þessi glæsilegu smáhýsi
sem við afhendum fullbúin með gólfefnum,
húsgögnum, frágengnu baði og sólpalli. Henta
t.d. vel sem lítil ferðaþjónustuhús, gestahús,
skrifstofa eða viðbótarherbergi í garð.
Húsin eru ekki byggingarleyfisskyld þar sem þau eru undir 15m2 stærð en þau eru byggð í
samræmi við og uppfylla íslenskar Byggingarreglugerðir.
Gerum tilboð í aðrar útfærslur eftir óskum viðskiptavina.
Tilboðsverð til loka febrúar
á fullbúnu húsi kr:
*V
erð
m
iða
ð v
ið
EU
R 1
33
3.210.000
án vsk (3.980.400 m. vsk)*
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
HEYRÐU
BETUR!
Við sérhæfum okkur í öryggisbúnaði m.a.
heyrnarhlífum og samskiptabúnaði.
Hugaðu að heyrninni, hún er mikilvæg!
Hafðu samband.
Við veitum þér faglega aðstoð.
Umsóknir um styrki
vegna vatnsveitna á lögbýlum
Í samræmi við reglugerð um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga
til vatnsveitna á lögbýlum nr. 180/2016 skal umsóknum um stuðning
skilað inn rafrænt á Bændatorginu eigi síðar en 1. mars 2019.
Umsóknarfrestur verður ekki framlengdur.
Fylgigögn sem skila þarf með umsókn eru:
a. Mat Búnaðarsambands á þörf býlis fyrir framkvæmd.
b. Kostnaðar- og framkvæmdaráætlun.
c. Sé um byggingu að ræða skulu fylgja teikningar.
Stuðningur fyrir hvern framkvæmd getur að hámarki numið
44% af stofnkostnaði við vatnsveitu til heimilis- og búsþarfa.
Hjá mörgum er nú tími yfirbótar
og hreinsunar í mataræði eftir
óhóf jólahátíðarinnar og ára mót-
anna með tilheyrandi kjötátsæði.
Fyrir þá sem vilja taka aðeins til
í sínu mataræði en samt leyfa sér
góðan, hollan og vandaðan borgara
án þess að fá samviskubit, gæti
matreiðslubókin Góðborgarar eftir
Ninu Olsson verið málið, þar sem
lögð er áhersla á grænmetisborgara
í fjölmörgum girnilegum tilbrigðum.
Það er bókaforlagið Angústúra sem
gefur bókina út og Helga Soffía
Einarsdóttir þýðir.
Kaflaskipt eftir heimshlutum
Í bókinni er að finna uppskriftir
að næringarríkum
grænmetisborgurum,
brauði, sósum og ýmsu
hnossgæti. Bókinni er
skipt upp í kafla eftir
heimshlutum og er í
hverjum þeirra að finna
einkennandi bragð
og keim fyrir hvern
þeirra. Nina gefur
einnig grunn að góðum
grænmetisborgara
fyrir þá sem vilja
hanna sinn eigin.
Borgarar við allra
hæfi
Borgararnir eru fjölbreyttir og
girnilegir og ættu að höfða til þeirra
sem borða kjöt eins og hinna sem
vilja sneiða hjá því.
Nina Olsson heldur úti vefnum
Nourishatelier.com til að deila
ástríðu sinni fyrir grænmetisfæði.
Hún er fædd og uppalin í Svíþjóð
en býr núna í Hollandi. Hún hefur
unnið í rúmlega tíu ár á skapandi
hátt með mat og hlotið verðlaun
sem listrænn stjórnandi, stílisti og
hönnuður.
Grillborgari
Svartbaunir / Karamellugljáður
laukur / Grillsósa
Grillborgarinn sækir innblástur
til Rómönsku-Ameríku með
svartbaunum og chilipipar.
Svartbaunir og hrísgrjón gera
klattana fastari í sér og það má leika
sér með að nota mismunandi krydd.
Þið getið prófað ólíkar tegundir af
chilipipar, hér nota ég ancho-
pipar. Ancho er
þurrkað afbrigði
af poblano-
piparnum frá
Mexíkó. Hann
er frekar mildur
en veitir akkúrat
nógu mikið bit til
að gera borgarann
áhugaverðan. Berið
fram löðrandi í
sætri og reyktri
appelsínu-grillsósu,
með karamellu-
gljáðum lauk og,
ef þið viljið gera
sérstaklega vel við ykkur, með sneið
af hörðum, þroskuðum osti.
Klattarnir
› 300 g svartar baunir úr dós, skolaðar,
sigtaðar og stappaðar með gaffli
› 2 hvítlauksgeirar, marðir
› 200 g sveppir, skornir
› 2 msk. ólífu- eða jurtaolía
› ¾ tsk. salt, meira eftir smekk
› 50 g valhnetur, muldar
› 100 g panko-raspur eða venjulegur
brauðraspur
› 50 g soðin hýðishrísgrjón
› 2 msk. næringarger eða rifinn
› parmesan-ostur
› 1 msk. sinnep
› 1 msk. balsamikedik
› 1 tsk. ancho-chiliduft eða annars konar
chili
› 1 tsk. milt chiliduft
› ¼ tsk. malaður svartur pipar
› 4 brauð, skorin til helminga og léttristuð
á grillinu
Ofanálag
› Appelsínu-grillsósa
› 4 sneiðar af osti eða vegan-osti
› Karamellugljáður laukur
Aðferð
1. Hitið ofninn í 220°C. Setjið
bökunarpappír í ofnskúffu
og setjið í hana baunirnar,
hvítlaukinn og sveppina. Úðið
olíu og sáldrið salti yfir. Bakið í
20 mínútur, gætið þess að snúa
öllu við eftir 10 mínútur. Takið
úr ofninum. Stappið hvítlaukinn
með gaffli og saxið laukinn
smátt. Setjið í stóra skál og
blandið restinni af hráefnunum
í klattana saman við.
2. Stillið matvinnsluvél á púls og
blandið deigið í skömmtum
þangað til áferðin er gróf,
kornótt og klístruð. Smakkið til
og saltið og piprið eftir þörfum.
Látið standa í kæli í 15–30
mínútur eða allt að sólarhring
undir loki. Ef þið eruð með
útigrill skuluð þið stilla það á
meðalháan hita.
3. Skiptið deiginu í fernt og mótið
fjóra klatta. Salt og pipar eftir
smekk. Setjið klattana á grillið
í u.þ.b. 2 mínútur á hvorri hlið
þangað til þeir eru fallega
brúnir, eða grillið lengur ef þið
óskið eftir meira grillbragði.
Hægt er að steikja klattana á
pönnu eða baka þá í 15–20
mínútur í 200°C heitum ofni.
4. Takið klattana af grillinu og
setjið þá á brauð með ofanálagi
og sósu.
Gerir fjóra borgara. /smh
BÆKUR&MENNING
Góðborgarar grænkerans
– og annarra sem unna góðum borgurum
ilbb . s obcFa e ok