Bændablaðið - 31.01.2019, Side 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 31. janúar 2019 39
Handboltinn færir okkur Íslend-
ingum eina þjóðarsál, gleði og
hrifningu. Og hvernig sem það
má nú vera þá eigum við landslið
aftur og aftur sem slær stórþjóðir
út. Við Íslendingar erum í
fremstu röð og nú í fótboltanum
einnig, á það jafnt við um karla
og kvennaliðin. Eða eins og
forsetafrúin okkar, hún Dorrit
Moussaieff, sagði í hrifningu
sinni þegar við unnum silfrið á
Ólympíuleikunum í Peking 2008:
„Ísland er ekki lítið land. Ísland
er stórasta land í heimi.“
Nú er handboltalandsliðið
í mikilli endurnýjun og hefur
aldrei leikið yngra eins og á HM,
þeir voru aðeins 23 ára gamlir
að meðaltali. Nú vakti það mikla
athygli að Selfyssingar voru margir
í liðinu, fjórir talsins ,og þar af
þrír þeirra náfrændur, komnir af
Hurðarbaksætt. Og enn fremur er
spútniklið Selfoss sem Patrekur
Jóhannesson þjálfar og leiðir til
stórra sigra oft skipað að hálfu
strákum af þessari ætt. Haukur
Þrastarson sá ungi aðeins sautján
ára sem leikstýrði landsliðinu gegn
heimsmeisturum Frakka og Teitur
Örn Einarsson eru systkinasynir
og hinn frábæri Elvar Örn Jónsson
náfrændi þeirra og Árni Steinn
Steinþórsson markaskorarinn snjalli
sem leikur með Selfoss einnig. Í
Selfossliðinu hafa einnig leikið þeir
Örn Þrastarson, bróðir Hauks og
besti þjálfari hans frá barnsaldri,
og svo Rúnar Hjálmarsson frá
Langsstöðum sem var leikmaður
og fyrirliði liðsins. En þessir sex
strákar eiga allir sömu formóðurina,
Þuríði Árnadóttur frá Hurðarbaki,
hennar maður var Guðmundur
Kristinn Gíslason.
Einstök íþróttagen
og afreksfólk í keppnisíþróttum
Uppruni þessa fólks er frá
Hurðarbaki í Flóa, frá hjónunum
Árna Pálssyni og Guðrúnu
Sigurðardóttur. Þau eignuðust
tólf börn, níu syni og þrjár dætur.
Það fór magnað orð af hreysti og
dugnaði þessara systkina, þau eru
eftirminnileg öllum þeim sem
þeim kynntust og fara af þeim
héraðs- og þjóðsögur. Keppnisskap
þeirra var orðlagt og drengskapur
í leik og starfi. Þessi ættarfylgja
erfist kynslóð fram af kynslóð
og fáar ættir eru jafn vel búnar
til íþróttaafreka og þetta fólk.
Fyrrnefnd Þuríður og Guðmundur
eignuðust níu börn og út af þeim
hefur sprottið afreksfólk sem bar
uppi sigra Héraðssambandsins
Skarphéðins og gerir enn.
Synir Þuríðar og Guðmundar
voru tveir, þeir Gísli og Rúnar,
fjölhæfir frjálsíþróttamenn, m.a. í
glímu, hástökki og köstum. Rúnar
glímukóngur Íslands og Gísli vann
það sér m.a. til afreka í glímu að
leggja ofurmennið Ármann J.
Lárusson, sem fáir gerðu. Systur
þeirra bræðra á Hurðarbaki voru
liðtækar í íþróttum og börn þeirra
ekki síður. Má þar fyrst nefna
Guðmund Kr. ,Sigurð, Kára og
Þuríði Jónsbörn og Sigríðar frá
Hurðarbaki,en hún sjálf var óvenju
spretthörð. Systkinin öll margfaldir
Íslandsmeistarar í spretthlaupum og
stökkum og Þuríður átti Íslandsmet
í 200 metra hlaupi. Þá ber að nefna
Jón Arnar Magnússon, son Þuríðar
Jónsdóttur, sem er tvímælalaust
einn mesti afreksmaður íslenskra
íþrótta og hafa fáir tugþrautarmenn
í heimi komist með tærnar þar sem
hann hafði hælana.
Jón Birgir og Ólafur, synir
Guðmundar Kr. og Láru Ólafsdóttur,
voru einnig og eru afburðamenn í
frjálsíþróttum og Jón Birgir er faðir
Elvars Arnar sem fyrr er nefndur.
Eins má nefna Árna Stein og
Kristrúnu Steinþórsbörn en þau hafa
verið lykilmenn með liði Selfoss í
handbolta og verið valin í landslið,
móðir þeirra er ein Þuríður enn
Einarsdóttur í Oddgeirshólum, dóttir
Eyrúnar frá Hurðarbaki. Þuríður og
systkini hennar frá Dalsmynni unnu
einnig til afreka í Skarphéðni. Og
enn ber að nefna Þuríði til leiks
Ingvarsdóttur en sonur hennar er
Teitur Örn Einarsson, hún sjálf
var góð frjálsíþróttakona í HSK.
Ragnar Sverrisson Járnkarl er
einn Hurðarbaksmanna sem fer
mikinn, kominn um sextugt, þar er
það Stefanía Pálsdóttir frá Litlu-
Reykjum sem er móðirin, dóttir
Páls Árnasonar frá Hurðarbaki.
Haukur Þrastarson, sem nú er
talinn eitt mesta efni í heiminum,
er sonur Þrastar Ingvarssonar
og Guðbjargar Bjarnadóttur og
Örn Þrastarson einnig sonur
þeirra en þau eiga líka dæturnar
Hrafnhildi Hönnu og Huldu Dís,
báðar í handboltaliði Selfoss og
Hrafnhildur Hanna í landsliði
kvenna í handbolta og Hulda Dís
í unglingalandsliðinu í handbolta.
En Helga Guðmundsdóttir frá
Hurðarbaki er móðir Þrastar, og
því amma þeirra systkina.
Tvíburabróðir Þrastar er Svanur
en þeir voru miklir afreksmenn í
sundi. Í þessari ætt er eitthvað meira
afl en gerist og gengur, óvenjulegir
hæfileikar á sviði íþrótta og gæti
ég talið margt fólk til viðbótar
sem frækið er. Nefni Sævar Þór
Gíslason, afburðamann í fótbolta
og lykilmann Selfoss um langa
hríð. Genin eru góð og auðvitað
má ekki gleyma að allir eru líka
annarrar ættar, enginn er eingetinn
nema Jesús Kristur. Og ég verð
að nefna í lokin að Guðbjörg,
móðir Hauks og þeirra systkina,
er sjálf af magnaðri handboltaætt,
sjálf var hún handboltakona og
sunddrottning, átti Íslandsmet.
En systkini hennar, þau Sigurjón,
Gústaf og Hulda afreksfólk í
handboltanum og öll í landsliðinu.
Og Gústi Bjarna á enn Íslandsmet
í markaskorun í landsleik, hann
skoraði 21 mark af 32 mörkum
Íslendinga gegn Kínverjum í sínum
heimabæ þá Selfossi 1997. Rammir
íþróttahæfileikar í báðum ættum
þeirra Guðbjargar og Þrastar. Svo
hjálpar auðvitað lýsið, lambakjötið,
mjólkin og skyrið.
Guðni Ágústsson
ÞVOTTAHÚSINNRÉTTINGAR, FATASKÁPAR & RENNIHURÐIR
HÁGÆÐA DANSKAR
STYRKUR - ENDING - GÆÐI
OPIÐ:
ÚRVAL INNRÉTTINGAVIÐ HÖNNUM OG TEIKNUM VÖNDUÐ GÆÐAVARAGOTT SKIPULAG
LESENDABÁS
Hurðarbaksmenn hetjur handboltans og íþróttanna
Guðni Ágústsson.
Laugardaginn 2. febrúar opnar
Áskell Þórisson, fyrrum ritstjóri
Bændablaðsins, ljósmyndasýningu
í veitingastaðnum Energia í
Smáralind. Áskell verður með á
annan tug mynda sem allar eru
tengdar íslenskri náttúru.
Meðfylgjandi mynd tók Áskell
í leirhver á Suðurlandi.
Áskell sýnir í Energia
í Smáralind
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300