Bændablaðið - 31.01.2019, Blaðsíða 40
Bændablaðið | Fimmtudagur 31. janúar 201940
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Ég C!
– Nokkur orð um skeiðgensgreiningar og fleira, 2018
Seinnipart vetrar 2018 greindi
þekkingarfyrirtækið Matís
125 fyrirliggjandi sýni m.t.t.
skeiðgens (AA-CA-CC). Fjöldi
hrossaræktenda hafði sýnt
málinu áhuga og vildi forvitnast
um erfðaeiginleika valinna
ræktunargripa auk þess sem hægt
var að þoka greiningarkostnaði
niður með auknum fjölda
sýna. Úr þessum forvalda hópi
komu eftirfarandi niðurstöður
(Greining´18); rétt tæpur
helmingur hrossanna reyndust
vera CA-hross:
Að líkindum var niðurstaðan í
flestum tilfellum staðfesting á grun
og tilfinningu eigenda en í öðrum
tilfellum kom niðurstaðan á óvart.
WorldFengur birtir sérstök og lýsandi
tákn fyrir staðfesta skeiðgensarfgerð,
spá um skeiðgensarfgerð eða
óráðna óvissu. Ef arfgerðin hefur
verið greind eru táknin (AA-CA-
CC) á bláum grunni. Ef um er að
ræða spá WFengs er bakgrunnurinn
hvítur. Þriðji hópurinn telur hross
þar sem ekki er unnt að spá fyrir
um arfgerð en þar birtir WFengur
einfaldlega spurningarmerki (?) á
gráum grunni. Óráðin hross (?) eru
fjölmörg í afkvæmalistum staðfestra
CA-foreldra.
Til að leita uppi t.d. dæmda,
lifandi og staðfesta CA-stóðhesta,
á Íslandi, í WFeng, er raðað inn
leitarforsendum í Ítarlegri leit. Í
flettiglugga landa valið: Ísland. Í
flettiglugganum arfgerð er valið:
DMRT3 arfgerðargreining. Þá valið
CA. Í kynjavalglugga: stóðhestur.
Í flettiglugga afdrifa: lifandi. Í
flettiglugga valmöguleika: dómur.
Þann 27. des. 2018 gefur þessi
afmörkun leitar alls 29 stóðhesta
sem svara kröfunni. Ef kyninu er
breytt (hryssa) kemur Fengur með
lista yfir 62 sýndar og staðfestar
CA-hryssur, skráðar á lífi – á Íslandi.
Annar leitarmöguleiki væri
að skoða Dómaleit WFengs. Þar
mætti t.d. skilyrða leitina svo:
Kyn=Hestur, Afdrif=Lifandi, Land
staðsett=Ísland, Sýningarár=2018,
Sýningarland=Ísland, DMRT3-
arfgerðargreining, Arfgerð=CA.
Þessum forsendum svarar WFengur
með 5 greindum CA-stóðhestum,
sýndum á Íslandi árið 2018. Ef
forsendum er breytt þannig að beðið
er um sýnda hesta á Íslandi 2018
með DMRT3-arfgerðarspá (CA)
er svarið 20 hestar; á aldrinum 4-8
vetra.
C á LM
Á landsmóti í Víðidal 2018 komu alls
160 hross til reiðdóms. Af 160 voru 38
sýnd með einkunnina 5,0 fyrir skeið
eða 23,8%, alls 42 hross sýnd með 6,5
eða minna f. skeið eða 26,3% heildar.
Ef lesið er milli línanna í hraðsoðinni
tölfræði LM-hrossa (sjá töflu) má m.a.
greina eftirfarandi þætti:
Tafla I / LM2018 í Víðidal
• Skeiðlaus hross eiga ágæta
möguleika á því að komast
á landsmót í yngstu flokkum
kynbótahrossa en möguleikarnir
sýnast mjög þverrandi í elstu
flokkum.
• Sama á við um meint eða
staðfest CA-hross. Möguleikar
þeirra til að komast á LM
virðast helst liggja í yngstu
flokkum kynbótahrossa.
Aðeins 3 af 160 LM-hrossum
eru með skeiðgensgreiningu;
staðfestingu á DMRT3-arfgerð
sinni (1,9%).
• Af 160 hrossum eru 13 (8,1%)
með CA-spá/staðfestingu
eða óvissu (?) í WFeng. Sem
fyrr segir 38 LM-hross með
einkunnina 5,0 fyrir skeið. Af
þessu mætti áætla að +/- 25
LM-hross (15,6% heildar)
séu í grunninn AA-arfgerðar
en skeiðgeta engu að síður
takmörkuð eða um val knapa
og eigenda að ræða, að hreyfa
ekki við skeiði.
• Af sömu tölum má draga þá
ályktun að liðlegur meirihluti
þeirra hrossa sem sýnd eru
skeiðlaus á LM2018 séu
AA-hross.
• Til viðbótar má geta þess um
afkvæmahesta á LM2018 að
allir, 14 að tölu, eru staðfestir
eða ætlaðir AA-hestar (aðeins 5
með skeiðgensgreiningu).
Nú er fróðlegt, til að setja hluti í
stærra samhengi, að skoða sömu
gögn fyrir aðra kynbótasýningu
á árinu 2018. Fyrir valinu verður
stærsta einstaka sýning ársins,
Vorsýning á Gaddstaðaflötum,
seinni vika 11.-15. júní. Þar voru
alls hæfileikadæmd 218 hross, að
geldingum frátöldum. Eitt og annað
er hér allrar athyglivert:
Tafla II / Vorsýning Gaddst.
flötum – seinni vika 11.–15. júní
• Sýnd hross með 5,0 fyrir skeið
eru hér 30,7% heildar – í stað
23,8% á LM.
• Fast að helmingi 5v. hesta eru
með 5,0 fyrir skeið.
• Klárhross eru meira áberandi í
eldri flokkum en á LM – ef frá
er talinn flokkur 6v. hesta.
• Hross með CA-spá/staðfestingu
eða óvissu (?) eru 17,9%
heildar – í samanburði við
8,1% á LM (aðeins tvö hross
í sýningunni með staðfesta
skeiðgensgreiningu).
• Tæpur helmingur þeirra hrossa
sem sýnd eru skeiðlaus eru
líkleg AA-hross.
Nokkrar grundvallarspurningar
og hugleiðingar vakna þegar rýnt
er í gögnin. Meðal annars þessar:
Er þegar nóg að gert til að tryggja
sýnileika klárhrossa á stærsta
„sviðinu“, þ.e. LM? Klárhross eru
tæp 24% LM-hrossa en tæp 31%
sýndra á stærstu einstöku sýningu
ársins. Sýnileiki klárhrossa er afar
breytilegur eftir aldursflokkum á LM.
Gefur það tilefni til breytts verklags
við val inn á mótið? CA-hross virðast
eiga verulega dræma möguleika á að
komast alla leið á LM. Er það eitt og
sér ástæða til umhugsunar eða aðgerða
í ljósi nauðsynjar þess að varðveita
erfðafjölbreytni til framtíðar?
Er ástæða til að tryggja meiri
aðgengilegar upplýsingar, fyrir
ræktendur/áhorfendur/dómara, um
þau hross sem sýnd eru sem klárhross
á LM? T.d. ef lagt er upp með 5,0 fyrir
skeið, þá komi til skeiðgensgreining;
AA-CA-CC? Enn fremur og róttækari
hugleiðingar væru: Á að stilla
AA-klárhrossum upp í sama hópi og
CA-klárhrossum? Og úr því þangað
er komið er þá ekki stutt í stærstu
spurninguna: Getum við áfram, og
með sanngjörnum hætti, borið hross
saman á okkar gamla trausta grunni
aðaleinkunnar með skeiði, vitandi af
möguleikunum AA-CA-CC?
Kyn knapa
Af einskærri forvitni er hér
horft til kynjahlutfalls knapa á
sömu sýningum, Vorsýning á
Gaddstaðaflötum – seinni vika
og LM2018. Hestamennska er
áhugamál, atvinna og ástríða kvenna
og karla. Félagar aðildarfélaga LH
eru svo til í hnífjafnt karlar og
konur. Útskrifaðir Hólanemar með
BS í reiðmennsku og reið-kennslu á
árabilinu 2013-2018 er 76,2% konur.
Að því sögðu er hlutur kvenna í
kynbótasýningum einkennilega rýr,
hverjar sem orsakirnar kunna að vera
og e.t.v. fróðlegt að gera sams konar
úttekt á kynjahlutfalli í íþrótta- og
gæðingakeppni.
Hlutur kvenknapa í seinni viku
á Gaddstaðaflötum var heilt yfir
36 af 218 sýningum, eða 16,5%.
Mestu flugi ná þær í flokkum 4v.
og 7v. og eldri stóðhesta (27,8%)
en lakast er hlutfallið í flokki 6v.
hryssa (8,3%). Stóðhestar sýning-
ar innar voru í 20,3% tilfella sýndir
af konu, en hryssurnar í 14,6%
tilfella. Konur sýndu 21,2%
LM-hrossa, tæp 26% hryssnanna
og tæp 16% stóðhesta.
Fleiri skeiðgensgreiningar
Rík ástæða væri til að greina
mun fleiri ræktunarhross m.t.t.
skeiðgensins, hryssur og stóðhesta.
Athygli hrossaræktenda og orka
ætti fyrst og síðast að beinast að
þeim hrossum, klárhrossum, sem
mögulega eru CA-arfgerðar; þ.e.
eiga foreldri/foreldra sem mögulega
eða sannarlega eru CA eða CC. Þess
utan má benda á þann ávinning sem
hlýst af því að vita fyrir víst um CA-
arfgerð í ungviði, áður en kemur
að tamningaferlinu. Uppbygging
tamningar hlýtur að draga dám af
þeim verkefnum sem hrossið er yfir
höfuð fært um að leysa og CA/CC
hross eru ekki að fara að skeiða.
Sjálfsagt er að endurtaka leikinn
frá síðasta vori og safna saman í hóp
þeim hrossum, með fyrirliggjandi
DNA-sýni (strok- eða blóðsýni),
lifandi eða dauðum, sem eigendur
kjósa að vita meira um. Með auknum
fjölda sýna til skeiðgensgreiningar
Matís nást alla jafna hagstæðari kjör
fyrir þjónustuna. Áhugasömum er
bent á að setja sig í samband við
undirritaðan fyrir 15. febrúar 2019.
Nánar um skeiðgensgreiningar og
DNA-sýnatökur m.a. hér:
https://www.rml.is/is/radgjof/
hrossaraekt/dna-synatokur
Tafla I / LM2018 í Víðidal AA-spá/Eða staðf. % CA-spá/ ? /Eða staðf. % Eink. 5 f. skeið. %
100 0,0 6,3
42,1
83,3 16,7
100 0,0
Sýnd / LM2018 (160): 147 91,9 13 8,1 38 23,8
Pétur Halldórsson
ráðunautur í hrossarækt
petur@rml.is
Greining ´18 AA % CA % CC Fjöldi
Alls (125): 66 53% 59 47% 0 125
Tafla II / Vorsýning Gaddst.flötum - seinni vika 11.-15. júní
AA-spá/Eða staðf. % CA-spá/ ? /Eða staðf. % Eink. 5 f. skeið. %
94,4 5,6
11,8
66,7 33,3 47,6
Sýnd / Fulln.dóm. (218): 179 82,1 39 17,9 67 30,7
Hannaðar á Íslandi fyrir einstaka aksturseiginleika
FÁANLEGAR FYRIR 3 TIL 6 HESTA
www.hrimnir.shop
r u n a r @ h r i m n i r. s h o p
861-4000 / 897-9353
Hrímnis hestakerrur