Bændablaðið - 31.01.2019, Síða 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 31. janúar 2019 41
Niðurstöður skýrsluhaldsársins
í nautakjötsframleiðslunni 2018
hafa verið reiknaðar og birtar á
vef Ráðgjafarmiðstöðvar land-
bún aðarins, www.rml.is. Hér
verður farið yfir helstu tölur úr
uppgjörinu.
Á árinu 2017 tók gildi sú breyting
að afurðaskýrsluhald er nú skilyrði
fyrir greiðslum samkvæmt samningi
um starfsskilyrði í nautgriparækt.
Þetta þýðir að skýrsluhald er í raun og
veru skylda fyrir alla framleiðendur
mjólkur og nautakjöts, í það minnsta
ætli menn að halda gripa- og
beingreiðslum. Þetta hefur orðið til
þess að skapa grunn að skýrsluhaldi
í nautakjötsframleiðslu, nokkuð sem
er nýtt hérlendis.
Undir lok síðasta árs var
byrjað að birta uppgjör fyrir
nautakjötsframleiðsluna og nær
það til búa þar sem haldnar eru
kýr til slíkrar framleiðslu. Sá galli
er þó á gjöf Njarðar að þessar
niðurstöður ná þá ekki yfir slíkar
kýr sem eru á búum þar sem einnig
er mjólkurframleiðsla. Þetta má líta
á sem bæði kost og galla. Kosturinn
er að uppgjörið tekur til sérhæfðra
búa þar sem nautgripir eru eingöngu
haldnir til kjötframleiðslu en gallinn
að uppgjörið nær ekki til allra kúa í
slíkri framleiðslu.
Skýrsluhald nautakjöts-
framleiðslunnar árið 2018 nær
til 105 búa og þar af er að finna
holdakýr skráðar af erlendu kyni
á 67. Fjöldi kúa á þessum búum
var við uppgjör ársins 2.217 talsins
og var meðalfjöldi kúa á bú 21,1
sem reiknast yfir í 17,1 árskú á bú.
Alls var um að ræða 1.747 burði
á þessum búum á árinu 2018 sem
jafngildir 0,79 burðum/kú.
Kjötframleiðsla og flokkun
ársins 2018
Heildarframleiðsla ársins á þessum
105 búum nam rúmlega 488 tonnum
sem þýðir að þau framleiða rétt rúm
10% alls nautgripakjöts á landinu.
Meðalframleiðsla á bú var 4.650
kg en heildarfjöldi slátraðra gripa
var 2.041. Meðalþungi kúa frá
þessum búum var 203,8 kg og
meðalþungi ungneyta var 246,1 kg
og voru þau að jafnaði 732,3 daga
gömul við slátrun. Það jafngildir
vexti upp á 320,5 g/dag, sé reiknað
út frá fallþunga. Til samanburðar
var slátrað 9.314 ungneytum á
landinu öllu sem vógu 240,2 kg
að meðaltali við 738,8 daga aldur.
Þessi sérhæfðu bú sem yfirlitið nær
til ná því gripunum heldur þyngri
við lægri aldur að jafnaði.
Ef litið er á flokkun gripanna var
meðalflokkun ungneyta á þessum
búum 4,8 á meðan meðalflokkun
ungneyta yfir landið er 4,0. Flokkun
er því betri á þessum búum til
jafnaðar. Rétt er að hafa í huga að
meðalflokkun er reiknuð þannig að
flokkunum er gefið tölugildi þar sem
P = 2, O = 5, R = 8, U =11 og E
= 14. Meðalgripurinn á búunum
í yfirlitinu er því nálægt því að
flokkast í O.
Frjósemi
Eins og áður sagði fæddust 1.747
kálfar á þessum búum á árinu 2018
og reiknast meðalbil milli burða 453
dagar. Það þýðir að meðalkýrin nær
ekki einum burði á ári sem hlýtur að
teljast grunnforsenda þess að um
arðbæran búskap sé að ræða. Þegar
við bætist að hlutfall dauðfæddra
kálfa við 1. burð er 17,9%, 7,5%
við aðra burði og vanhöld frá 0-6
mánaða 2,6%, verður fjöldi kálfa
til nytja töluvert langt innan við kálf
á kú á ári.
Sæðingar á þessum búum eru
nánast óþekkt fyrirbæri þar sem
aðeins 124 kýr eða 5,6% voru sæddar
á árinu. Þar af voru aðeins 36 kýr af
erlendu kyni sæddar. Til jafnaðar
voru þessar örfáu kýr sæddar 1,4
sinnum og að meðaltali liðu 127,2
dagar frá burði til 1. sæðingar. Þær
kýr sem eru sæddar svo löngu eftir
burð munu ekki bera með 12 mánaða
millibili.
Af framansögðu verður að ráða
að þessi bú eigi mikil tækifæri
í notkun nýs erfðaefnis úr þeim
Angus-gripum sem eru að vaxa úr
grasi á einangrunarstöðinni á Stóra-
Ármóti. Þangað á að vera hægt að
sækja meiri vaxtarhraða, betri
flokkun auk móðureiginleika en
horft var sérstaklega til þess við val
nauta þegar keyptir voru fósturvísar
frá Noregi.
Mestur þungi og vöxtur
Hér á eftir er litið yfir alla
nautakjötsframleiðslu í landinu,
þar sem kjöt frá búum með
mjólkurframleiðslu er ekki
undanskilið.
Þyngsta ungneytið sem slátrað var
árinu var naut nr. 1132 á Breiðabóli
á Svalbarðsströnd. Sá gripur var
holdablendingur af Angus-kyni
undan Anga 95400 og vóg 532,5 kg
er honum var slátrað við 29 mánaða
aldur. Hann flokkaðist í UN U2+. Í
töflu 2 má sjá þau ungneyti sem náðu
yfir 450 kg fallþunga á árinu 2018 en
þau voru sex talsins og frá þremur
búum, Breiðabóli á Svalbarðsströnd,
Nýjabæ undir Eyjafjöllum og Hamri
í Hegranesi.
Í töflu 3 má sjá þau ungneyti sem
náðu hröðustum vexti í grömmum
á dag, reiknuðum út frá fallþunga.
Reiknað er með 20 kg fallþunga við
fæðingu. Mestan vöxt ársins átti
kvíga númer 462 á Halldórsstöðum
í Skagafirði. Henni var slátrað
tæplega 15 mánaða og vóg fallið þá
309 kg. Kvígan var 60% Galloway
og flokkaðist í UN R+2+.
Það er von okkar að birting
niðurstaðna skýrsluhalds í
nautakjötsframleiðslunni verði til
þess að efla þessa framleiðslu og
auka arðsemi hennar. Niðurstöðurnar
sýna okkur glöggt að það er hægt
að gera vel en jafnframt að það eru
tækifæri til þess að gera mun betur.
Holdablendingarnir
skara fram úr
Við skoðun á þessum tölum sem
og listunum yfir þyngstu gripina og
þá sem vaxa hraðast sést ákaflega
glöggt að holdablendingarnir
skara fram úr. Það eru svo sem
engin ný sannindi. Eðlilega taka
gripir af kynjum sem hafa verið
ræktuð m.t.t. vaxtar og kjötgæða,
gripum sem eru ræktaðir til
mjólkurframleiðslu fram. Það
sýnir okkur jafnframt að hið nýja
erfðaefni sem væntanlega mun
standa til boða síðsumars skapar
greininni gríðarmikil tækifæri.
Þetta eru tækifæri sem menn mega
undir engum kringumstæðum láta
fram hjá sér fara og það er brýnt
að hefja nú þegar undirbúning
að því að taka þetta erfðaefni til
notkunar. Við drögum stórlega í efa
að það muni skila árangri að reka
saman hóp villtra kúa og sæða einn
góðan veðurdag. Það þarf að spekja
gripina, venja þá við umgengni
og meðhöndlun auk þess sem til
staðar þarf að vera aðstaða til þess
að handsama þá og meðhöndla.
Sæðingar eru vandaverk og það
má ekki kasta til þeirra höndunum.
Eigi að nást góður árangur þarf
undirbúning og vandvirkni.
Að lokum er full ástæða til
þess að óska þeim framleiðendum
sem náð hafa góðum árangri við
framleiðslu á nautakjöti til hamingju
með þann árangur og vart á neinn
hallað þó ábúendur á Breiðabóli,
Nýjabæ, Hamri, Halldórsstöðum,
Svertingsstöðum 2 og Lækjartúni
séu sérstaklega nefndir í því
sambandi.
Niðurstöður skýrsluhaldsársins í nautakjötsframleiðslunni 2018
Gripur Bú Faðir Stofn Aldur, mán. Þungi, kg Flokkun
1132 (naut) Breiðaból Angi 95400 AA x IS 29 532,5 UN U2+
1115 (naut) Breiðaból Álfur 95401 AA x IS 29,4 488,7 UN U3
1133 (naut) Breiðaból Angi 95400 AA x IS 28,8 469,1 UN U2+
843 (naut) Nýibær 751 (AA x IS) AA x LI x IS 24,6 468,1 UN R+3+
872 (naut) Nýibær 770 (IS x AA x LI) IS x AA x LI 25,4 457,6 UN R+3+
599 (naut) Hamar 420 (AA x IS x LI) LI x IS x AA 27,6 452,6 UN U3
Tafla 3. Ungneyti með mestan daglegan vöxt á árinu 2018 (yfir 600 g/dag).
Aldur, Þungi, Vöxtur,
Gripur Bú Faðir Stofn mán. kg Flokkun g fall/dag
462 (kvíga) Halldórsstaðir 384 (GA x IS) GA x IS 14,8 309,2 UN R+2+ 653
1090 (naut) Svertingsstaðir 2 Angi 95400 AA x LI x IS 22,2 446,4 UN R+3 639
610 (naut) Lækjartún 1026 (IS x AA) IS x AA x GA 17,2 346,4 UN R+3 633
604 (naut) Lækjartún 549 (GA x IS) GA x IS 17,9 358,9 UN R+3+ 632
843 (naut) Nýibær 751 (AA x IS) IS x AA x LI 24,6 468,1 UN R+3+ 606
IS Hurðir I Sími 564 0013 I www.ishurdir.is I ishurdir@ishurdir.is
IÐNAÐARHURÐIR
BÍLSKÚRSHURÐIR
• Íslensk framleiðsla, smíði og samsetning.
• Allar hurðir smíðaðar samkvæmt máli.
• Áratuga reynsla starfsmanna í hurðum.
• Hágæða hráefni.
• Þolir íslenskt veðurfar.
• Sér meðhöndlaðar brautir gegn ryði og álagi.
• Stuttur afgreiðslutími.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Guðmundur Jóhannesson
ábyrgðarmaður í
nautgriparækt
mundi@rml.is
Sigurður Kristjánsson
skýrsluhald og
prófarkalestur
sk@rml.is
Tafla 1