Bændablaðið - 31.01.2019, Qupperneq 43
Bændablaðið | Fimmtudagur 31. janúar 2019 43
Engin hefðbundin árstíð eins og
við erum vön!
Pálmaolían mikilvægust
Fjölskyldurnar í Indónesíu sem
stunda landbúnað skipta tugum
milljóna og er hver þeirra með
tiltölulega lítið land hver um sig.
Þau bú sem stunda búfjárrækt eru
oftar en ekki smá í sniðum og þannig
eru t.d. kúabúin oft með 4–5 kýr en
einnig eru til kúabú með tugum
kúa, þó svo að þau séu ekki mörg.
Bændur sem ekki stunda búfjárrækt
eru í margs konar annarri framleiðslu
en þar er þó ræktun á pálmatrjám, til
framleiðslu á ávöxtum trjánna sem
svo fara til olíuframleiðslu, ein allra
mikilvægasta grein landbúnaðarins,
en Indónesía er stærsti framleiðandi
á pálmaolíu í heiminum. Þá eru
bændur landsins einnig stórtækir í
framleiðslu á náttúrulegu gúmmíi.
Búin í Indónesíu sem eru í
framleiðslu á pálmaolíu eru af öllum
stærðum og gerðum og bæði til lítil
og afar stór bú sem rekin eru af hinu
opinbera en einnig af einkaaðilum,
en um 40% af framleiðslunni kemur
frá litlum fjölskyldubúum. Önnur
framleiðsla sem er stórtæk í landinu
er framleiðsla á kaffibaunum og
tóbakslaufi sem og framleiðsla
á hrísgrjónum. Þá er framleiðsla
á ávöxtum og grænmeti einnig
þýðingarmikill landbúnaður í
Indónesíu.
Afurðalitlar kýr
Þegar horft er til mjólkur-
framleiðslunnar þá eru búin eins
og áður segir frekar smá í sniðum
en þar sem unnt er að framfleyta
sér af litlu í landinu þarf ekki
nema 4–5 kýr til þess að hafa
þokkalegar fjölskyldutekjur. Í dag
eru meðalafurðir kúnna, sem eru af
Holstein kyni, reyndar ekki nema
9–12 lítrar á dag og bú með 5 kýr
er oft að leggja inn aðeins um 50
lítra á dag. Þessar afurðir eru langt
undir eðlislægri framleiðslugetu
þessa kúakyns og felst skýringin á
slakri nýtingu kúnna fyrst og fremst
í vanþekkingu á réttri fóðrun og
hirðingu þessara kúa.
Nokkrir bændur í landinu hafa
hins vegar náð afargóðum tökum
á framleiðslunni og eru að nýta
Holstein kýrnar mun betur og eru
með í kringum 30 lítra á dag eftir
kúna. Þessi staðreynd hefur opnað
augu fagfólks innan stjórnkerfisins
og því hafa verið sett af stað
þróunarverkefni í Indónesíu m.a. í
samvinnu við afurðafélagið Arla og
þróunarstofnun Danmerkur, til þess
að efla þekkingu kúabænda landsins
á fóðrun og hirðingu. Það má því
búast við því að afurðasemi kúnna
í Indónesíu muni aukast verulega á
komandi árum.
Sækja fóðrið daglega
Til þess að sinna fóðurþörf 4–5 kúa
þarf kúabóndi í Indónesíu ekki að
hafa aðgengi að nema um þriðjungi
af hektara þar sem grasið vex allt árið
um kring og uppskeran er gríðarlega
mikil vegna hins frjósama jarðvegs,
hita, raka og 12 tíma daglengdar! Fá
lönd, ef nokkur í heiminum, hafa
viðlíka uppskeru af hverjum hektara.
Grasið sem flestir kúabændurnir
rækta heitir fílagras (Pennisetum
purpureum) sem er grófgert gras sem
getur vaxið afar hratt og skilað allt
að 80 tonnum af þurrefni á ári/ha!
Vegna stöðugs vaxtar þurfa búin
ekki að vera með geymslu fyrir
fóður heldur er það einfaldlega
sótt á hverjum degi. Fæstir nota
hefðbundnar vélar við fóðuröflunina
heldur er gróffóðrið slegið með
sigðum og svo flutt heim á litlum
vélhjólum. Stundum eru það
starfsmenn búanna sem sjá um þetta,
en einnig eru til verktakar sem sjá
um þessi verk.
Gefa kúnum brauð!
Þegar komið er inn á kúabú í
Indónesíu kemur einna helst á
óvart hvað kýrnar eru hreinar,
miðað við að vera bundnar á bása.
Skýringin felst í því að þær eru
þvegnar tvisvar á dag, bæði til
að halda þeim hreinum en ekki
síður til að kæla þær. Flest búin
eru með kýrnar á einhvers konar
gúmmímottum án undirburðar
og gefa þeim svo auk áðurnefnds
gróffóðurs kjarnfóður og ótrúlega
mörg búanna gefa einnig kúnum
brauð!
Brauðát er algengt í landinu og
mjög oft eru miklir afgangar til
sem kúabúin geta fengið fyrir lítið
og með því að blanda brauðinu
saman við kjarnfóðrið fást kýrnar
til að éta það.
Afhenda mjólkina tvisvar á dag
Þar sem flest kúabúin eru frekar
smá í sniðum eru mjaltavélar
óalgengar og kýrnar því
handmjólkaðar. Mjólkin er
svo sett í brúsa og eftir hverjar
mjaltir er farið með hana ókælda
í næstu móttökustöð mjólkur.
Þessar móttökustöðvar eru oftast
reknar af samvinnufélögum
en samvinnufélög bænda eru
nokkuð algeng í Indónesíu, en
það er allfrábrugðið því sem sést
í mörgum öðrum löndum í Asíu.
Mörg þessara félaga eru enn í
dag með umfangsmikla starfsemi
bæði varðandi móttöku og sölu á
landbúnaðarvörum sem og ýmsa
aðra þjónustu fyrir félagsmenn
sína eins og rekstur á banka,
verslunum, heilsugæslu og margs
konar annarri þjónustu.
Enn sem komið er, er
mjólkinni ekki safnað saman af
afurðastöðvum eða móttöku-
stöðvum og þurfa bændurnir
því sjálfir að fara með mjólkina.
Stundum koma bændurnir
gangandi með mjólkurbrúsann
sinn, aðrir á mótorhjólum og bú
með margar kýr senda mjólkina
með pallbílum.
Kæla mjólkina og senda áfram
Í móttökustöð mjólkurinnar er
tekið sýni af mjólkinni, fyrst og
fremst til að tryggja að hún sé ekki
vatnsblönduð eða súr og svo er hún
vigtuð og sett í sameiginlegan tank
til kælingar. Móttökustöðvarnar
eru með fasta opnunartíma og eftir
lokun að morgni og seinnipart
dags er mjólkin kæld niður og svo
er henni ekið í næstu afurðastöð
sem getur verið bæði einkarekin,
rekin af erlendum aðilum eða í
rekstri samvinnufélags.
Breytingar fram undan?
Í dag er mjólkurframleiðslan í
Indónesíu langt frá því að geta
sinnt heimamarkaði sínum og
geta bú landsins ekki annað
nema tæplega 20% af þörfinni og
er innflutningur til landsins því
stórtækur. Ríkisstjórnin hefur
lýst yfir áhuga á því að þetta
hlutfall hækki verulega, en það
er hreint ekki einfalt að auka
hlutfallið því eftirspurnin eftir
mjólkurvörum í landinu vex ört
þessi árin með vaxandi efnahag.
Á sama tíma hefur framleiðsla
landsins á pálmaolíu mætt mikilli
gagnrýni þar sem vöxtur þeirrar
búgreinar hefur komið niður á
umfangi regnskógsins. Enn er þó
ekki nema 30% af landmagninu í
Indónesíu nýtt til landbúnaðar og
því finnst mörgum heimamönnum
í Indónesíu gagnrýnin á þeirra
landnotkun ekki sanngjörn.
Það að bændur í Indónesíu
hafi byrjað nýtingu á sínu landi
síðar en bændur í mörgum þróaðri
löndum, eigi ekki að hefta þeirra
möguleika á að afla sér og sínum
tekna. Í samanburði hafa verið
nefnd dæmi eins og að bæði í
Frakklandi og Þýskalandi sé um
helmingur landsins nýttur til
landbúnaðar og mörg þróuð lönd
hafi hærri nýtingu á landi en það.
Það verður án nokkurs vafa
fróðlegt að fylgjast með þróun
landbúnaðarins í Indónesíu
á komandi árum og vonandi
tekst heimamönnum og
alþjóðasamfélaginu að finna
góða lausn svo bændur landsins
geti haldið áfram að nýta þetta
einstaka land með sem bestum
hætti.
Víkurvagnar ehf. – Hyrjarhöfði 8. – 110 Reykjavík
Sími 577-1090 – www.vikurvagnar.is – sala@vikurvagnar.is
STYRKUR, ÞJÓNUSTA OG ÁREIÐANLEIKI
MIKIÐ ÚRVAL KERRUVARAHLUTA
VÍKURVAGNAR EHF.
RAFMAGNSBÚNAÐUR
BREMSUR
BEISLI
DEKK
LJÓS
LED LJÓS
Stærri kúabúin eiga pallbíla og koma
með marga brúsa í móttökustöðina
tvisvar á dag.
Hér sést bóndi standa í litlum akri með fílagrasi. Þetta gras verður á þriðja metra að hæð og er hægt að slá það á
45–50 daga fresti.
Verktakar sem sjá um að slá og koma gróffóðri heim á kúabúin. Konan bar
verkfærin á höfði sér en karlinn ók með 2–3 kýrfóður á vélhjólinu.