Bændablaðið - 31.01.2019, Qupperneq 44
Bændablaðið | Fimmtudagur 31. janúar 201944
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Niðurstöður skýrsluhaldsársins hjá mjólkurframleiðendum 2018
Niðurstöður skýrsluhaldsársins
í mjólkurframleiðslunni 2018
hafa verið reiknaðar og birtar á
vef Ráðgjafarmiðstöðvar land-
búnaðarins, www.rml.is. Hér
verður farið yfir helstu tölur úr
uppgjörinu.
Á árinu 2017 tók gildi sú breyting
að afurðaskýrsluhald er nú skilyrði
fyrir greiðslum samkvæmt samningi
um starfsskilyrði í nautgriparækt.
Þetta þýðir að skýrsluhald er í raun og
veru skylda fyrir alla framleiðendur
mjólkur og nautakjöts, í það
minnsta ætli menn að halda gripa-
og beingreiðslum. Vegna þessa er
þátttaka í skýrsluhaldi hérlendis um
100% sem mun vera einsdæmi eftir
því sem næst verður komist.
Þeir framleiðendur sem skiluðu
einhverjum, en þó mismiklum
upplýsingum um afurðir kúa sinna
á nýliðnu ári voru 569 en á árinu
2017 voru þeir 581. Niðurstöðurnar
eru þær helstar að 26.207,7 árskýr
skiluðu 6.275 kg nyt að meðaltali.
Það er afurðaaukning um 116
kg frá árinu 2017 en þá skilaði
26.352,1 árskýr meðalnyt upp á
6.159 kg. Jafnframt eru þetta mestu
meðalafurðir frá upphafi vega og
þriðja árið í röð sem þær ná yfir
6.000 kg eftir árskú. Umreiknaðar
í orkuleiðrétta mjólk (OLM) eru
meðalafurðir síðasta árs 6.516 kg/
árskú.
Meðalbústærð reiknaðist
47,1 árskýr á árinu 2018 en
sambærileg tala var 45,4 árið á
undan. Meðalbústærð reiknuð í
skýrslufærðum kúm var nú 63,0
kýr en 2017 reiknuðust þær 60,9.
Samtals voru skýrslufærðar kýr
ársins 35.823 talsins.
Breytingar á framsetningu
niðurstaðna
Á árinu 2018 var framsetningu
á mánaðarlegum niðurstöðum
skýrsluhaldsins breytt. Uppgjörs-
svæði voru stækkuð og látin fylgja
kjördæmunum að mestu í stað
birtingar á sýslugrunni áður. Þetta
var meðal annars gert til þess að
gera meðaltöl marktækari en vegna
fækkunar stóðu sums staðar orðið
æði fá bú bak við meðaltöl í hverri
sýslu. Þá var farið að birta mun
fleiri lykiltölur en áður sem lúta þá
að fleiri þáttum en einungis fjölda
gripa og afurðum. Má þar nefna
tölur er taka til frjósemi, heilsufars
og endingar.
Mestar meðalafurðir á
Austurlandi
Svæðaskipting er nú gjörbreytt
eins og áður hefur komið fram. Á
árinu voru mestar meðalafurðir á
Austurlandi, 6.649 kg, og síðan
kemur Norðurland eystra með 6.481
kg.
Stærst eru búin að meðaltali
á Austurlandi, 49,7 árskýr, en
næststærst eru þau á Suðurlandi,
49,0 árskýr.
Meðalbúið aldrei stærra
Meðalbúið stækkaði milli ára enda
jókst innlegg mjólkur milli ára og
innleggjendum fækkaði heldur.
Meðalinnlegg á bú með innlegg allt
árið nam 274.340 lítrum samanborið
við 262.961 lítra á árinu 2017.
Þetta er aukning upp á rúm 4%. Á
sama tíma fækkaði innleggjendum
mjólkur um þrettán og voru kúabú
í framleiðslu 556 talsins nú um
áramótin 2018/19.
Mestar meðalafurðir á Hóli í
Svarfaðardal 2018 – en metið á
Brúsastöðum stendur
Mest meðalnyt eftir árskú á
nýliðnu ári, 2018, var á búi þeirra
Karls Inga og Erlu Hrannar á Hóli
í Svarfaðardal en búið stóð annað
í röð afurðahæstu búa árið áður.
Afurðir kúnna á Hóli voru að
meðaltali 8.902 kg/árskú og fóru
nærri tveggja ára gömlu Íslandsmeti
kúnna á Brúsastöðum í Vatnsdal sem
er 8.990 kg. Brúsastaðir í Vatnsdal er
einmitt það bú sem skipar annað sæti
listans að þessu sinni með 8.461 kg/
árskú en hafði vermt efsta sætið árið
áður auk áranna 2013, 2014 og 2016.
Þriðja í röðinni við uppgjörið
nú var bú Guðlaugar og
Jóhannesar Eybergs á Hraunhálsi
í Helgafellssveit á norðanverðu
Snæfellsnesi en þar var meðalnyt
árskúnna 8.452 kg. Í fjórða sæti var
Hvanneyrarbúið ehf. á Hvanneyri
í Andakíl í Borgarfirði þar sem
meðalafurðir árskúnna voru 8.289
kg og fimmta búið var Félagsbúið
á Syðri-Grund í Grýtubakkahreppi
með 8.237 kg eftir árskú. Sjötta í
röðinni var bú Gunnbjarnar ehf.
í Gnúpverjahreppi hinum forna
eða Eystrihreppi eins og hann var
áður nefndur og er jafnvel enn
meðal staðkunnugra og þeirra er á
Guðmundur Jóhannesson
ábyrgðarmaður í
nautgriparækt
mundi@rml.is
Sigurður Kristjánsson
skýrsluhald og
prófarkalestur
sk@rml.is
Bú þar sem meðalnyt var yfir 8.000 kg/árskú
Fjöldi Afurðir
Bú - árslok 2018 Skýrsluhaldarar árskúa kg/árskú
49,0 8.902
52,1 8.461
26,6 8.452
72,2 8.289
50,4 8.237
60,4 8.223
62,0 8.192
46,1 8.187
73,2 8.166
64,1 8.144
63,7 8.133
54,5 8.055
52,9 8.042
62,8 8.003
Fjöldi Afurðir
Uppgjörssvæði Bú - árslok 2018 Skýrsluhaldarar árskúa kg/árskú
Vesturland 370179 Hraunháls Guðlaug og Eyberg 26,6 8.452
Vestfirðir 460128 Hvammur Ólöf og Valgeir 46,1 8.187
Norðurland vestra 560112 Brúsastaðir Brúsi ehf 52,1 8.461
Norðurland eystra 650231 Hóll Karl Ingi og Erla Hrönn 49,0 8.902
Austurland 761412 Núpur Björgvin Rúnar Gunnarsson 105,3 7.730
Suðurland 870909 Skáldabúðir Gunnbjörn ehf 60,4 8.223
Nythæstu kýrnar 2018
Árs- Prót-
Kýr Faðir afurðir ein Fita Bú
1035 Randafluga 0620 Boli 13.947 3,13 4,17 871065 Birtingaholt 4
1038 05028 Vindill 13.736 3,24 4,53 860315 Hólmur
1639001-0848 11021 Otur 13.678 3,16 3,69 770190 Flatey
482 06022 Kambur 13.521 3,41 3,94 660220 Syðri-Grund
1945 Drottning 1780 13.481 3,46 4,13 871078 Birtingaholt 1
0756 Krissa 06010 Baldi 13.142 3,26 3,97 560112 Brúsastaðir
1526461-2113 06019 Logi 13.018 3,53 4,25 651014 Hranastaðir
0643 Rúna 12004 Tárus 12.897 3,22 4,03 650231 Hóll
0278 Lóa 04041 Stíll 12.895 3,40 3,79 550178 Bakki
765 02003 Lykill 12.707 3,59 3,78 651005 Espihóll
1639001-0895 767 12.609 3,42 3,99 770190 Flatey
1639001-0821 668 12.598 3,15 3,99 770190 Flatey
617 11011 Stólpi 12.445 3,23 4,35 460128 Hvammur
0972 Perla 05043 Birtingur 12.386 3,44 4,50 860315 Hólmur
1377801-0653 05001 Stöðull 12.211 3,17 3,83 380184 Lyngbrekka
0573 Sól 07046 Toppur 12.205 3,41 3,78 350802 Ásgarður
Mest meðalnyt eftir árskú á nýliðnu ári, 2018, var á búi þeirra Karls Inga og
Erlu Hrannar á Hóli í Svarfaðardal. Mynd / HKr.
Mynd / Sigurður Ágústsson í Birtingaholti.
Uppgjör fyrir
tímabilið Vesturland Vestfirðir
Norðurland
vestra
Norðurland
eystra Austurland Suðurland Landið allt
Fjöldi búa alls 86 18 92 130 29 203 558
Fjöldi búa með skil 86 18 92 128 29 203 556
Fjöldi kúa alls 3.805 687 4.195 6.302 1.440 10.118 26.547
Meðalbústærð, kýr 44,2 38,2 45,6 49,2 49,7 49,8 47,7
Fjöldi árskúa 3.775,7 709,9 4.136,2 6.191,3 1.440,3 9.954,4 26.207,7
Meðalbústærð,
árskýr 43,9 39,4 45,0 48,4 49,7 49,0 47,1
Fjöldi 1. kálfs kúa 1.349 227 1.528 2.517 480 3.922 10.023
Fjöldi kvígna eldri
en 24 mán 622 187 669 845 248 1.831 4.402
Endurnýjunarhlutfall 35,5 33,0 36,4 39,6 33,3 38,8 37,7
Hlutfall kúa með
förgunarástæðu 100,0 100,0 100,1 100,2 100,0 100,2 100,1
Mjólkurframleiðsla síð. 12 mán.
Meðalbústærð,
innlögð mjólk 237.305 196.563 264.396 298.110 305.724 282.273 274.340
Mjólk/árskú 5.989 5.606 6.368 6.481 6.649 6.208 6.275
Fita kg 254 236 273 276 280 264 267
Fita % 4,25 4,21 4,28 4,27 4,21 4,25 4,26
Prótein kg 201 190 217 221 225 209 212
Prótein % 3,35 3,38 3,40 3,42 3,38 3,36 3,38
Kg OLM/árskú 6.200 5.794 6.644 6.757 6.868 6.434 6.516
Mjólkurnýting 90 89 92 93 93 92 92
Frumutala (reiknuð) 273 273 288 247 258 269 267
Mjólkandi kýr
Dagsnyt/kú 15 14 16 16 18 16 16
Dagsnyt OLM/kú 15 15 17 17 18 16 17
Kjötframleiðsla síð. 12 mán.
Kýr
Hlutfall með
sláturgögn 87,4 85,3 84,9 85,4 84,9 88,8 86,9
Flokkun 2,51 2,65 2,75 2,59 2,50 2,64 2,62
Dagar frá burði
við förgun 227,4 271,8 258,7 217,3 227,2 226,9 230,4
Meðalþungi, kg 193,6 196,0 203,5 198,5 199,1 197,2 198,0