Bændablaðið - 31.01.2019, Page 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 31. janúar 2019 45
svæðinu búa. Meðalnytin þar var
8.223 kg eftir árskú. Þessum búum
til viðbótar náðu átta bú yfir 8.000
kg meðalafurðum eftir árskú eins og
sjá má í meðfylgjandi töflu og hefur
fjöldi svo afurðahárra búa aðeins
einu sinni verið meiri, árið 2017
þegar þau voru 15.
Randafluga 1035 í Birtingaholti
4 mjólkaði mest
Nythæsta kýrin á landinu árið 2018
var Randafluga 1035 í Birtingaholti
4 í Hrunamannahreppi, undan
Bola 620 Kastalasyni 07003,
en hún mjólkaði 13.497 kg með
4,17% fitu og 3,13% próteini.
Burðartími Randaflugu féll mjög
vel að almanaksárinu en hún
bar sínum fjórða kálfi 3. janúar
2018. Randafluga fór hæst í 55,1
kg dagsnyt á nýliðnu ári en var
komin í geldstöðu í desember
s.l. Hún sýndi strax á sínu fyrsta
mjólkurskeiði mikla afurðagetu er
hún fór í 30 kg dagsnyt og náði
mjaltaskeiðsafurðum upp á 9.344
kg. Skráðar æviafurðir hennar á
fjórum mjaltaskeiðum voru 44.998
kg um síðustu áramót. Randafluga
stendur þegar þetta er skrifað
með 113 í kynbótamat, þar af 132
fyrir afurðir og á nautastöðinni á
Hesti sinnir nú rétt um ársgamall
sonur hennar og Úranusar 10081,
Humall 18001, því hlutverki sínu
að gefa sæði til kynbóta á íslenska
kúastofninum.
Önnur í röðinni árið 2018 var
kýr nr. 1038 í Hólmi í Austur-
Landeyjum, undan Vindli 05028,
en hún mjólkaði 13.736 kg með
4,53% fitu og 3,24% próteini.
Þessi kýr bar öðrum kálfi sínum
17. desember 2017 og fór hæst
í 48,1 kg dagsnyt á árinu 2018.
Skráðar æviafurðir hennar eru
22.112 kg. Þriðja nythæsta kýrin
var kýr nr. 848 í Flatey í Hornafirði,
undan Otri 11021, en nyt hennar
á árinu var 13.678 kg með 3,69%
fitu og 3,16% próteini. Hún bar
sínum þriðja kálfi 23. nóvember
2017, fór hæst í 48,1 kg dagsnyt
og skráðar æviafurðir hennar eru
23.559 kg. Fjórða nythæsta kýrin
var kýr nr. 482 á Syðri-Grund í
Grýtubakkahreppi, dóttir Kambs
06022, en hún mjólkaði 13.521
kg með 3,94% fitu og 3,41%
próteini. Hún bar þriðja sinni og þá
tvíkelfingum á Þorláksmessudag
2017, fór hæst í 43,5 kg dagsnyt á
árinu 2018 og skráðar æviafurðir
eru 29.221 kg. Fimmta í röðinni
var Drottning 1945 í Birtingaholti
1 í Hrunamannahreppi, dóttir 1780,
sonar Kola 06003. Drottning bar
öðrum kálfi sínum 16. desember
2017 og fór hæst í 50,5 kg dagsnyt
á mjólkurskeiðinu en hún skilaði
13.481 kg á árinu með 4,13% fitu og
3,46% prótein. Skráðar æviafurðir
Drottningar eru 23.737 kg.
Alls skilaði 91 kýr afurðum yfir
11.000 kg og þar af 16 yfir 12.000
kg. Árið 2017 náðu 77 kýr nyt yfir
11.000 kg.
Braut 112 á Tjörn á Skaga
við 100 tonna múrinn
Af þeim kúm sem eru á lífi í dag státar
nú Braut 112 á Tjörn á Skaga, dóttir
Stígs 97010, af mestum æviafurðum.
Um áramótin hafði hún mjólkað
98.955 kg þannig að óðfluga styttist
í 100 tonnin en við sjáum gjarnan í
erlendum nautgriparæktartímaritum
kýr sem ná 100 tonna æviafurðum
heiðraðar. Rétt er að hafa í huga
að þar er oftar en ekki um að ræða
Holstein-kýr sem mjólka mun meira
að meðaltali en íslenskar kýr. Það er
því mikið afrek hjá kúm af kyni þar
sem meðalafurðir eru ríflega 6.000
kg á ári að ná 100 tonna æviafurðum.
Braut 112 er fædd 12. september
2005 og átti sinn fyrsta kálf 23.
október 2007 en alls hefur hún borið
10 sinnum að meðtöldum tveimur
fósturlátum. Þrátt fyrir þau áföll er
Braut nú búin að mjólka 98.955 kg
mjólkur eins og áður sagði. Mestum
afurðum á einu almanaksári náði hún
2011, 10.961 kg, en á árinu 2017
hjó hún nærri því er hún mjólkaði
10.699 kg. Mestum afurðum á einu
mjólkurskeiði, í það minnsta hingað
til, hefur hún náð á yfirstandandi
mjólkurskeiði, 18.354 kg um síðustu
áramót. Þetta mjólkurskeið er orðið
langt en hún bar síðast 7. febrúar
2017. Endist henni aldur og heilsa
verður það enn lengra. Hún var
hins vegar enn að og við mælingu í
desember var Braut í 23 kg dagsnyt.
Hún á því góða möguleika á að rjúfa
100 tonna múrinn á allra næstu
misserum.
Næst Braut 112 stendur Jana 432 á
Ölkeldu 2 í Staðarsveit á Snæfellsnesi
en hún hafði um síðustu áramót
mjólkað 95.069 kg. Þessi kýr er
fædd 8. mars 2005, bar fyrsta kálfi
18. september 2007 og hefur borið
níu sinnum til viðbótar, nú síðast 28.
desember 2017. Hún er með fangi og
væntanlegur burðardagur er þann 2.
Júlí í sumar. Jana hefur verið farsæl
kýr en mestum afurðum á einu ári,
allavega hingað til, náði hún 2103
er hún mjólkaði 10.372 kg. Mestum
mjaltaskeiðsafurðum náði hún á sínu
sjötta mjaltaskeiði eða 11.614 kg. Á
yfirstandandi mjaltaskeiði hefur hún
mjólkað 10.314 kg þannig að líklega
verður það hennar afurðamesta en
hún var í 18 kg dagsnyt við mælingu
í desember s.l. Rétt er að taka fram
að Jana hefur skilað reyndu nauti til
notkunar en Öllari 11066 var sonur
hennar og Ófeigs 02016.
Núverandi Íslandsmet í
æviafurðum á Mókolla 230, dóttir
Snarfara 93018, á Kirkjulæk 2 í
Fljótshlíð, 117.635 kg.
Á síðastliðnu ári var ein þeirra kúa
sem telja má til afrekskúa í íslenska
kúastofninum felld eftir langa og
farsæla ævi. Vorkoma 534 í Garði
í Eyjafirði var fædd á Torfufelli í
Eyjafirði 7. maí 2004, dóttir Prakkara
96007, en flutti aðsetur sitt að Garði
strax að lokinni mjólkurfóðrun eða
við þriggja mánaða aldur. Hún var
felld í ágúst s.l. Fyrsta kálfi bar hún
24. september 2006 og hún bar 11. og
síðasta sinni 30. apríl 2018. Vorkoma
náði að mjólka 96.215 kg á æviskeiði
sínu en mestum afurðum á einu
almanaksári náði hún 2014 þegar
hún mjólkaði 9.523 kg. Afurðamesta
mjólkurskeið hennar var það þriðja
þegar hún mjólkaði 11.332 kg.
Mjólkurframleiðendum öllum,
en ekki síst ábúendum á Hóli í
Svarfaðardal og Birtingaholti 4 í
Hrunamannahreppi, óskum við til
hamingju með glæsilegan árangur
og þökkum samstarfið á nýliðnu
ári.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Brúsastaðir í Vatnsdal sem eru í eigu Gróu Margrétar Lárusdóttur og Sigurðar
Mynd / HKr.
Mynd / HKr.
*Ö
ll v
erð
m
iða
st
við
ge
ng
i E
UR
13
3.
Austur vegur 69 - 800 Selfoss // Sími 480 0480 // byggingar@jotunn.is // www.jotunn.is
Lítið hús 31 - 80m2 2 fullbúin herbergi - 40m2
Sælureitur
Bjóðum vönduð heilsárshús, hönnuð og
framleidd fyrir íslenskar aðstæður sem henta
jafnt sem lítil íbúðarhús, sumarhús og til útleigu.
Vönduð viðarklæðning á veggjum í lit að eigin vali.
150mm einangrun í gólfi og veggjum.
225mm einangrun í lofti.
Vandað vinilparket á gólfum.
18m2 viðarpallur fylgir með.
Aðrar stærðir fáanlegar.
Fullbúið 31m2 hús með gólfefnum, húsgögnum og palli.
Öll húsin eru íslensk hönnun og byggðar í samræmi
við íslenskar byggingareglugerðir.
Verð aðeins
kr. 6.990.000
án vsk (8.667.600 m. vsk)*
Náttstaður
Bjóðum fullbúið 40m2 heilsárshús með 2 íbúðum
sem hentar mjög vel til útleigu eða sem aðstaða
fyrir starfsmenn.
Vönduð viðarklæðning á veggjum í lit að eigin vali.
150mm einangrun í gólfi og veggjum.
225mm einangrun í lofti.
Vandað vinilparket á gólfum.
Góð hljóðeinangrun á milli herbergja.
22m2 viðarpallur fylgir með.
Öll húsin eru íslensk hönnun og byggðar í samræmi
við íslenskar byggingareglugerðir.
Fullbúið hús með gólfefnum, húsgögnum og palli.
Tilboðsverð
kr. 7.980.000
án vsk (9.895.200 m. vsk)*