Bændablaðið - 31.01.2019, Side 48
Bændablaðið | Fimmtudagur 31. janúar 201948
MATARKRÓKURINN
LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR
Á Loðmundarstöðum búa Einar
Freyr Elínarson og Sara Lind
Kristinsdóttir.
Þau reka félagsbú með Elínu
Einarsdóttur og Jónasi Marinóssyni,
sem búa í Sólheimahjáleigu.
Býli: Býlið heitir Sólheimahjáleiga.
Staðsett í sveit: Í Mýrdalnum við
rætur Sólheimajökuls, þar sem
Loðmundur gamli nam land.
Ábúendur: Einar Freyr Elínarson
og Sara Lind Kristinsdóttir
(búa á Loðmundarstöðum) í
félagsbúi með Elínu Einarsdóttur
og Jónasi Marinóssyni (búa í
Sólheimahjáleigu).
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Börnin tvö; Gréta Björk, fimm ára
og Ásmundur Kristinn, þriggja
mánaða og tíkurnar Ronja og Perla.
Stærð jarðar? Um 50 hektarar af
túnum og nokkur þúsund hektarar
af svörtum sandi og heiðarlandi
milli jökuls og sjávar.
Gerð bús? Sauðfjárbú og ferða-
þjónusta. Köllum okkur ferða-
þjónustu bændur.
Fjöldi búfjár og tegundir? Erum
með 290 kindur, 4 geitur, 3 hesta, 14
hænur og 20 herbergja gistiheimili.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Gjafir í fjárhúsum um morgun og
seinnipart ásamt tilfallandi vinnu
við ferðaþjónustuna, s.s. framreiðsla
morgun- og kvöldverðar.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Leiðinlegast er að
hreinsa grindur í fjárhúsunum.
Skemmtilegast er að hleypa út
lambám á vorin í góðu veðri og elda
góðan mat fyrir ferðamenn.
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir
ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Þá
verðum við vonandi búin að þróa
heimavinnslu afurða hjá okkur enn
frekar og farin að græða pening á
sauðfénu í gegnum ferðaþjónustuna!
Hvaða skoðun hafið þið á
félagsmálum bænda? Þau eru
skemmtileg en mikilvægt er að
félagskerfið sé einfaldað og gert
markvissara.
Hvernig mun íslenskum
landbúnaði vegna í framtíðinni?
Honum mun vegna vel svo lengi
sem menn eru tilbúnir að berjast
fyrir honum!
Hvar teljið þið að helstu tækifærin
séu í útflutningi íslenskra
búvara? Besti útflutningurinn
er að selja ferðamönnum hér
heima og kynna þá fyrir öllum
þeim frábæru kennimerkjum
íslenskra matvæla; rekjanleika
og lítilli lyfjanotkun. Þeir bera
svo hróðurinn út um heim allan
og markaðir opnast.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Ostur, smjör, mjólk, egg og lýsið,
sem staðið hefur óopnað síðasta
árið. Og að sjálfsögðu er frystirinn
fullur af kjöti
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Kindahakk sem nýtist
í hina ýmsu rétti.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Þegar geiturnar voru
komnar upp á húsþak og það þurfti
að setja rafstreng á þakskeggið.
Einnig flutningur búfjár í
Meðallandið vorið 2010, vegna
eldgoss í Eyjafjallajökli.
Hráfæði og keto – sellerírótarhrásalat og steik
Á hverju ári koma fram nýir
matarkúrar sem fá athygli í
fjölmiðlum – þar sem hröðu
þyngdartapi og/eða betri heilsu
er lofað. Tveir af þeim vinsælustu
um þessar mundir eru Raw Food
Diet (hráfæði) og Ketogenic Diet
(keto).
Þótt það sé auðvelt fyrir
heilbrigðisstarfsmenn að segja:
„fólk á bara að borða hollt og
hreyfa sig“, þá ættu allir að vita
að þetta er í grunninn bara spurning
um hitaeiningar, sem þarf að neyta
í hófi til að léttast eða jafnvel að
auka inntöku á til að stækka vöðva
og þyngjast með æfingum. Með því
að borða meira en líkaminn brennir,
safnast upp forði í formi fitu. En hvort
sem fólk vill bæta við sig þyngd í
formi fitu eða vöðvamassa – eða losa
sig við auka orkuforða – þá eru allir að
leita að bragðgóðum lausnum í sínum
verkefnum við þyngdarstjórnun.
Hér eru dæmi um mataræði þessara
tveggja matarkúra sem nefndir eru
hér að ofan og uppskriftir fyrir hvorn
þeirra.
Hráfæði (óeldað hráefni)
Mataræðið miðast við þá forsendu
að við eldun á hráefni eyðileggjast
næringarefni og ensími sem eru í
matnum og stuðla að betri meltingu,
sjúkdómavörnum og almennt betri
heilsu. Sumir sem kjósa hráfæði eru
vegan og borða aðeins matvörur á borð
við ávexti, grænmeti, hnetur, fræ, korn
og belgjurtir, en aðrir vilja óeldaðar
dýraafurðir eins og ógerilsneydda
mjólk og osta – sem getur verið erfitt
að fá hér á landi nema „beint frá býli“.
Margir bændur telja slíka hrámjólk
bestu mjólkina.
Kostur: Ekki þarf að elda, bara sneiða
og krydda.
Ókostur: Að borða aðeins hráan
mat getur valdið erfiðleikum að
uppfylla daglega orkuþörf eða að
fá öll nauðsynleg næringarefni.
Fólk sem aðhyllist þetta mataræði
ætti því að hugsa sig vel um og
vanda sig við skipulagningu á
mataræðinu til að ævinlega sé
„nóg á tankinum“ af orku og
næringarefnum.
Sellerírótar -og eplahrásalat
Mjög ferskt salat, þunnar ræmur af
sellerírót, blaðselleríi og eplum í
sítrónu-sinneps vinaigrette.
Sinneps dressing
› 2 tsk. Dijon sinnep
› 2 msk. eplasafi eða hvítvíns edik
› 4 msk. ólífuolía (eða 2 msk. ólífuolía og
2 msk. valhnetuolía)
› Sjávarsalt og ferskur malaður pipar
eftir smekk
Hrásalat
› 1 miðlungsstór sellerírót
› 1 miðlungsstórt epli (eins og Granny
smith eða Fuji)
› 4 miðlungsstórir blaðsellerísstilkar
› 2 msk. fersk-kreistur sítrónusafi (um ½
stór sítróna)
› 2 matskeiðar fersk selleríblöð, fínt
söxuð
› 1/4 bolli fersk steinselja fínt söxuð
› ¼ bolli / 28 g valhnetur, ristaðar
Blandið saman sinnepi og ediki og
hrærið vel saman. Bætið olíunni
við, kryddið með salti og pipar eftir
smekk. Setjið til hliðar.
Skrælið sellerírót og rífið niður með
mandólíni, beittum hnífi eða rifjárni.
Kryddið með einni matskeið af
sítrónusafa. Kjarnhreinsið og skerið
eplið eins með beittum hnífi. Skerið
líka blaðselleríið eins og blandið
saman við sellerírótina og eplið.
Gott er að krydda með fínt söxuðum
selleríblöðum, steinselju-sinneps
vinaigrette og skreyta með ristuðum
valhnetum og smá salti, áður en það
er borið fram.
Ketogenic mataræði (keto)
Keto-mataræði er kolvetnissnautt.
Flest afbrigði mataræðisins gera ráð
fyrir að aðeins um fimm prósent af
kaloríum komi úr kolvetni – um 25
grömm á dag ef þú borðar í kringum
2.000 hitaeiningar. Markmið þessa
mataræðis er að setja líkamann í
ketosis-ástand, þannig að hann vinni
orkuna úr fituforða líkamans, vegna
skorts á glúkósa frá kolvetnum.
Máltíðir byggjast á kjöti,
alifuglum, fiskum, eggjum,
fituríkum mjólkurvörum (smjöri,
osti og rjóma), góðri fitu (olíu,
hnetum, fræjum og avókadó)
og grænmeti sem inniheldur
lítið kolvetni (grænt grænmeti,
tómatar, laukur, paprika o.fl.). Allt
sterkjuríkt grænmeti, korn, ávextir,
mjólkurvörur eins og mjólk og
jógúrt, náttúrulegan og hvítan
sykur og sætuefni – og hvaðeina
sem eykur kolvetnainntöku þannig
að hún fari yfir fimm prósent af
heildarkaloríufjöldanum – ætti að
forðast.
Kostir: Aukin neysla á
dýrapróteinum og notkun á
góðum olíum og fitu –eitthvað
sem ekki er alltaf gert í mataræði
með kolvetnaskertu hráefni og er
þá gott fyrir bændur. Annað gott
sem er í aðalhlutverki, grænmeti í
næstum öllum máltíðum og snarli.
Ef fjölbreytt grænmeti er valið er
líklegt að hægt sé að ná ráðlögðum
skammti af trefjum og vítamíni.
Gæti hjálpað fólki með endalaust
hungur og löngun í sykur, prótein
og fita er meira mettandi í sama
hitaeiningarfjölda og kolvetni.
Ókostir: Getur reynt á líkamann
þegar glúkósastig er lágt. Ekki
endilega æskilegt ástand fyrir
líkama sem er í fullri virkni – og
fyrstu dagarnir einkennast oft af
„keto-flensu“; höfuðverkjum og
máttleysi. Ekki gott mataræði fyrir
vegan-fólk því það er næstum
ómögulegt að finna allt það prótein
sem þarf eingöngu úr plöntum.
Steik með hvítlaukssmjöri, aspas
og sveppum
Þetta er auðveld uppskrift er einnig
glútenfrí, lítið kolvetni, paleo og keto.
Fyrir fullkomna pönnusteik er
mikilvægt að velja fitusprengdan
vöðva – því fitan bætir bragðið og
steikin verður safaríkari að auki.
Aðferð
1. Láttu steikina ná stofuhita.
Þurrkið með pappírsþurrku og leyfðu
steikinni að ná stofuhita til að hún
eldist jafnt.
2. Brúnið á háum hita fyrst.
Hár hiti mun gefa kjötinu góða skorpu
ásamt góðu bragði.
Sumir kjósa steypujárnspönnu til
að steikja kjötið vegna þess að hún
heldur hita frábærlega og gefur
betri steikingaráferð en ryðfríu
stálpönnurnar.
3. Kryddið steikina.
Það er mikilvægt að pensla kjötið
með smá ólífuolíu, svo smá salt og
nýmalaður svartur pipar. Þá er líka góð
hugmynd að bæta við kryddtegundum
sem þér líkar; hvítlauk, söxuðum lauk,
chili-flögum og svo framvegis.
4. Snúðu steikinni einu sinni á
pönnunni.
Snúðu steikum aðeins einu sinni – ef
snúið er of oft kemur það í veg fyrir
að hún nái réttri steikingaráferð.
5. Notkun kjöthitamælis til að fá
ákjósanlega eldun.
Það fer eftir þykkt steikurinnar hversu
lengi hún er að eldast, en með hitamæli
er auðvelt að tryggja að steikin verði
samkvæmt smekk.
Mjög rare: 55 °C
Miðlungs rare-: 58–60 °C
Miðlungs: 60–62 °C
Vel elduð : 65 °C og hærra
6. Bætið við hvítlauk eða
kryddjurtasmjöri.
Að steikja kjötið með smjöri eða
kryddjurtasmjöri í lok eldunartímans
bætir bragð og gerir kjötið safaríkara.
7. Hvílið steikina.
Þegar steikin er tilbúin fyrir þig,
taktu hana af hitanum, breiddu yfir
hana með filmu og láttu hvíla í fimm
mínútur áður en hún er skorin, til að
tryggja að kjötsafinn leki ekki út.
8. Berið fram með uppáhalds
meðlætinu.
Til dæmis ristaðan aspas á pönnu,
smjörsteikta sveppi, og salat.
Bjarni Gunnar Kristinsson
Matreiðslumeistari
Sólheimahjáleiga