Perlur - 01.01.1930, Side 6
4
CPeríu-.
*
hlaupandi, til þess að ná í björgina. Þarna kom járnsmiðurinn og fór
sér rólega að öllu, af því að hann vissi, að hann var sterkur. Litill
maur kom hlaupandi í hendingskasti eftir lynginu. Þegar hann var
kominn að hrúgunni, þá lét hann sig detta niður í hana og kom niður
á fæturna, — hvílík skelfing! — rétt við hliðina á járnsmiðnum, sem
sneri sér þunglamalega við og leit illilega á þennan óboðna gest. En
maurinn stóð grafkyr og virtist bjóða honum byrginn. Járnsmiðurinn
lét sér nægja þetta augnaráð og hélt síðan áfram að éta. En maur-
inn réðist á gríðarstóran brauðmola, mörgum sinnum stærri en hann
sjálfur, og tók að rogast í burtu með hann. Hans hló sig máttlausan
að aðförum hans. Hvað eftir annað valt hann um koll og brauðmol-
inn yfir hann, en allt af komst hann þó á fætur aftur. Loksins, þegar
hann var búinn að tosa honum út á brún á brauðbingnum, þá festi hann
lappirnar utan í molann og lét sig velta með honum niður á jafnsléttu.
Hans hugsaði sér, að í augum þessara smákvikinda, þá hlyti hann
að vera guð þeirra. — Hann hafði það álit á sér, að hann væri miklum
hæfileikum búinn, og að hann hefði getað flest, ef ekki allt, hefði hann
aðeins viljað. Þessi fjögur orð: »hefði hann aðeins viljað* vörpuðu
ljóma yfir líf hans og gerðu honum það margfalt léttbærara. — Að
hugsa sér, að í þessum kaupstað, varð að engu annað eins afarmenni
og Hans Engelín! Og það skemmtilegasta var, að þarna gekk hann
dag eftir dag innan um þessa þumbaldalegu menn^án þess að þá
renndi eitt augnablik grun í, hvílíkt ofurmenni væri hulið í snjáðum
boldangsfötunum. Jafnvel þegar hann talaði við sýslumanninn, þá ýskr-
aði ánægjan í honum. »Vafalaust«, hugsaði hann með sjálfum sér, »var
hann ekki í augum sýslumannsins annað en vesall bókhaldari með
1200 krónur í árslaun. En það skrítnasta af öllu var, að hann vildi
alls ekkert, og honum fannst hann stríða lífinu afskaplega með því.
Hann hugsaði sér það, sem gríðarmikinn sorgarleik, þar sem hann
væri aðalleikarinn, en ósýnilegur. Honum hefði verið hægðarleikur að
stjórna rás heimsins. En í stað þess lét hann sér nægja, að búa í
smábæ innan um sofandi sálir, og ef til vill að vera guð skordýra.
Var það ekki hroðaleg bruðlun á dýrmætu efni?
Og Hans teygði ánægður úr sér. Hann horfði á skýjafarið. Við
og við sá til sólar, og þá féll rauðleit birta yfir berjalyngið, pöddurnar
og Hans Engelín. Langt úti í geyminum hugsaði Hans sér, að guð
sæti og ef til vill horfði hann á Hans á þessari stundu. Hvernig
mundi honum lítast á reikningsskap Hans Engelíns?
Hans var kominn yfir fertugt og hafði aldrei verið við kvenmann