Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1990, Blaðsíða 29
Sesselja Eysteinsdóttir og Sölvi Sigurðsson á vinnustofu Blindraiðnar.
ingar á heimilinu á Bjarkargötu gegn-
um árin og enn er þar gamall blindur
maður sem hefur fæði og þjónustu á
vegum Blindravinafélagsins.
Einnig leigir sjónskert stúlka og
fjölskylda hennar íbúð hjá félaginu.
Blindraskólinnvarstofnaður 1933.
Fyrir þann tíma hafði engin kennsla
verið fyrir blinda í landinu, þannig að
hér var um stórmerkan áfanga að ræða.
Kennslugögn voru engin og varð kenn-
arinn og fleira gott fólk hjá Blindra-
vinafélaginu að útbúa námsefni fyrir
nemendurna. Lengi framan af varekki
um annað að ræða en að vélrita bæk-
urnar á venjulega blindraritvél og árið
1956 var staðan sú að ífórum Blindra-
vinafélagsins voru til 90 bindi bóka á
blindraletri. Aðstaða til blindrabóka-
gerðar stórbatnaði er fjölritari var
tekinn í notkun 1956 og félagið fékk
svorafmagnsritvél 1970. Varþaðmik-
il munur frá því, sem áður var.
Fyrsti kennari skólans var Ragn-
heiður Kjartansdóttir og var hún kost-
uð af félaginu til náms. Ríkið greiddi
laun hennar en hún hætti eftir þrjú ár
og tók þá félagið við og rak skólann,
ýmist eingöngu á eigin vegum eða
með styrk frá ríkinu.
Næstur var kostaður til náms Einar
Halldórsson og starfaði hann við
skólann þar til hann lést 1968.
Auk skyldunámsgreina við skól-
ann var þar handmenntakennsla, vél-
ritun, sund-, orgelkennsla og kennsla
á fleiri hljóðfæri.
Geta má þess, að margt fullorðið
blint fólk fékk þama kærkomið
tækifæri til mennta. Þórsteinn
Bjarnason var stefnumarkandi um
Blindraskólann eins og margt annað,
sem heyrði til Blindrafélaginu og hann
sótti á um að koma skólanum inn í
almenna skólakerfið.
Afangasigur varð er Blindraskól-
inn flutti árið 1971 inn í Laugarnes-
skóla. Margrét Sigurðardóttir blindra-
kennarikomfránámiíblindrakennslu
um svipað leyti og skólinn flutti. Mar-
grét lagði mikla áherslu á að koma
blindum og sjónskertum bömum inn í
almenna bekki með sjáandi börnum.
Margrét veitir nú forstöðu deild blindra
og sjónskertra við Alftamýrarskóla.
Ríkið tekur svo endanlega við Blindra-
skólanum árið 1977.
Blindravinafélag Islands beitti sér
snemma fyrir fræðslu um augnsjúk-
dóma og margir útvarpsfyrirlestrar
voru haldnir og fræðsluefni dreift eftir
föngum. Margar ferðir voru farnar út
um land, bæði til fræðslu og skráningar
á blindu fólki.
Einnig sá félagið um að útvega
blindu fólki útvaipstæki sér að kostn-
aðarlausu, ef það hafði ekki efni á að
eignast þau.
Okkur finnst það ef til vill fjar-
stæðukennt í dag, að fólk hafi átt í
erfiðleikum með að eignast útvarps-
tæki en fyrir milligöngu félagsins var
sótt um lán á útvarpstækjum og
niðurfellingu afnotagjalda til Við-
tækjaverslunar ríkisins. V ar þetta mikil
hjálp og gleðigjafi fyrir blint fólk,
sem átti ekki kost á svo dýmm tækjum.
Asamt Viðtækjaversluninni lánaði
félagið útvarpstæki. Einnig vora keypt
tæki sérstaklega ætluð blindum, svo
sem úr, klukkur, stafir og síðar segul-
bandstæki og þurfti að sækjaum niður-
fellingu aðflutningsgjalda við hverja
sendingu.
Nú er komið í lög að margt af
hjálpargögnum fyrir blinda era án að-
flutningsgjalda og er það vel.
Starfsemi félagsins hefur á seinni
árum beinst æ meira að því að styrkja
aldraða bl i nda og sjónskerta. B1 i ndra-
vinafélag íslands hefur styrkt nokkur
dvalarheimili aldraðra víðs vegar um
landið með það í huga að blindir og
sjónskertir eigi greiðari aðgang að
dvöl þar og fái að dvelja áfram í sinni
heimabyggð.
A síðasta ári keypti félagið tvö
vistrými á HrafnistuDAS íReykjavík
sem blindir og sjónskertir hafa forgang
að.
Fjáröflun Blindravinafélags Is-
lands hefur aðallega verið með merkja-
sölu einu sinni á ári. Að öðru leyti á
það líf sitt og starf að þakka frjálsum
framlögumogmargargjafirhafafélag-
inu áskotnast sökum vináttu og vel-
vildar við Þórstein.
Styrktarsjóður félagsins hefur um
áraraðir styrkt fólk bæði til lækninga,
náms og kynnisferða og enn er þörfin
mikil fyrir stuðning í ýmsum málum
blindra.
Undanfarið hafa verið viðræður
milli Blindrafélagsins og Blindravina-
félags Islands um samstarf í elli- og
hjúkrunarmálefnum og væntum við
góðs árangurs af því starfi.
Blindravinafélag Islands er aðili
að Öryrkjabadalagi íslands og teljum
við það bandalag mikinn stuðning fyrir
öll öryrkjafélög landsins.
Ritstjóri þakkar því góða fólki sem
tók saman þennan mikla og dýrmæta
fróðleik um Blindravinafélag Islands,
alveg sér í lagi Helgu Eysteinsdóttur,
sem hafði veg og vanda af þessari þörfu
samantekt um fórnfúst starf og
frumherjann Þórstein Bjarnason.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
29