Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1999, Síða 2

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1999, Síða 2
fréttabréf ÖRYRKJABANDALAGS ÍSLANDS 1. TÖLUBLAÐ 12. ÁRGANGUR 1999 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: HELGI SELJAN Umbrot og útlit: Fjóla Guðmundsdóttir. Prentun: Steindórsprent/ Gutenberg ehf. Forsíðumynd: Björn G. Eiríksson. Aðrar ljósmyndir: Hafliði Hjartarson, Ingólfur Örn Birgisson o.fl. Frá ritstjóra Enn eitt útgáfuár þessa blaðs er hafið, hið tólfta frá upphafi. Útbreiðsla Fréttabréfsins er einstaklega mikil eða töluvert á sautjánda þúsund útsendinga, enda eðlilegt að alltaf bætist við í ljósi þess að sífellt fjölgar aðildarfélögum bandalagsins. Ritstjóri var á dögunum inntur eftir því, hvort þetta afkvæmi hans væri ekki orðið byrði á honum meðfram öðrum önnum. Ritstjóri svaraði því til að enn meiri hætta væri á hinu þ.e. að hann væri byrði á blaðlesendum, litið til þess hversu hann setti um of mark sitt á blaðið, ætti þar jafnan nokkra ofgnótt efnis. Sannleikurinn enda sá að enn fleiri mættu leggja lið svo blaðið mætti almennt endurspegla enn fleiri viðhorf og er ritstjóra þá hugsað til allra þeirra ágætu krafta í aðildarfélögum okkar sem langt um of halda að sér höndum. í einlægni sagt þá mun aðsent efni, óumbeðið vart ná einum tíunda af efni þess og eitthvað er það nú ekki eðlilegt. Hlutverkin eru tvíþætt: annars vegar fréttahlutverkið s.s. blaðsnafnið bendir til og svo hins vegar að það sé á hverri tíð öflugur og vökull málsvari þeirra sem að baki standa. Fjölbreytni efnis mætti eflaust meiri vera, en er þó allnokkur og því ætti hver lesandi ævinlega að finna eitthvert efni í hverju blaði sem athygli og áhuga vekti. En enn ein áskorun til hinna ótalmörgu ritfæru vel sem of sjaldan láta að sér kveða að gjöra nú bragarbót. Veturinn líður og vor er í nánd í náttúrunni, þegar nýir lífssprotar spretta úr mold og auka yndi okkar. Megi einnig vora í lífsaðstæðum öryrkja þannig að ekki þurfi virtir þjóðfélagsþegnar að vitna um það að svo bágar séu kjaratölur öryrkja að með þær megi ekki “fara í aðra hreppa”. Slíkt vor yrði öllu samfélaginu til farsældar. Helgi Seljan. EFNISYFIRLIT Frá ritstjóra..............................2 Hverjir vinna með fötluðum?................3 Skyggnst á bak við Lottóhattinn............4 Höfðingleg gjöf............................8 Athyglisvert rit Umhyggju .................9 Aðventa og öryrkjar......................10 Kynningarátak............................11 Samstöðuhátíð í Reykjanesbæ..............12 Ávarp á Samstöðuhátíð....................12 Ávarp á Samstöðuhátíð....................13 Af stjómarvettvangi......................14 Viljinn til að sigra.....................16 Daufblindrafélag íslands ................18 Norræn menntastofnun.....................19 Meiri mér................................19 Kynning framkvæmdastjóra.................20 Orlofshús í athugun......................21 Múlalundur 40 ára........................22 Hlerað................... 23, 34, 37, 45, 47, 53 Alþjóðadagur fatlaðra....................24 Reglur Tryggingastofnunar................26 Duldar fatlanir..........................28 Ráðstefna Sjálfsbjargar..................29 Af Húsbyggingarsjóði Þroskahjálpar...30_ Með austangjólunni............................31 Smellin sending...............................31 Afléttum aðskilnaðarstefnunni.................32 Árbæjarlaug...................................34 Innlitið......................................35 Búrið.........................................36 Ógn umferðarslysanna..........................36 Breyting til bóta.............................37 Alnæmissamtökin á Islandi 10 ára..............38 Dágóð stund í Dvöl............................40 í garði konu minnar...........................41 Framtíðarsýn..................................42 Ágæt viðbrögð og afdráttarlaus................42 Félagsstarf aldraðra..........................44 Ráðstefna MG félagsins .......................46 Bæklingar LHS.................................46 Lítil gullkorn úr læknaskýrslum...............46 Gátur.........................................46 Frá Örva......................................47 Styrkir til samstarfs.........................48 Leiðrétting...................................49 Tvö ljóð......................................49 Öfugmælavísur.................................51 Úr mannréttindayfirlýsingu SÞ.................51 Hönnun fyrir alla.............................52 Úr draumaljóðum...............................53 I brennidepli.................................54 %

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.