Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1999, Side 9

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1999, Side 9
“EITTHVAÐ ER NÚ AД “Á þriðja þúsund einstaklingar þurftu að þiggja aðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar fyrir nýliðin jól, og það í mesta góðæri íslandssögunnar. Þetta fólk er flest öryrkjar sem ættu samkvæmt viðurkenndum grundvallarsiðgildum okkar þjóðar að njóta velferðar og stuðnings samfélagsins. Eitthvað er nú að.” Úr nýársprédikun herra Karls Sigurbjörnssonar biskups. Janúar 1999. Athyglisvert rit Umhyggju Hingað barst á borð hið glæsi- legasta rit Umhyggju sem er félag til stuðnings sjúkum börnum. Ritið fylgdi reyndar Morgunblaðinu laugardag einn í febrúar og fór því afar víða. Fyrir utan fróðleik og fallegt útlit fangaði augun hið höfðinglega boð Prentsmiðjunnar Odda, sem gaf Umhyggju prentuninatil að auðvelda allt kynningarstarf samtakanna. Þama birtist ávarp forseta íslands Ólafs Ragnars Grímssonar. Þakkarávarp er til Odda og Morgunblaðsins frá framkvæmdastjóranum, Esther Sig- urðardóttur, sem jafnframt kynnir skrifstofu Umhyggju að Laugavegi 7, Reykjavík. Umhyggja á tímamótum nefnist svo grein formanns Um- hyggju, Daggar Pálsdóttur, þar sem hún m.a. greinir frá þeim þáttaskilum sem urðu með daglegri starfsemi Umhyggju og ráðningu framkvæmda- stjóra frá 1. maí 1998. I grein Daggar segir einnig frá Styrktarsjóði Umhyggju sem er orð- inn öflugur en til hans stofnað fyrir tveim árum rúmum með höfðinglegri gjöf frá fyrirtækinu Haraldur Böðv- arsson hf. Þá kemur kynning á félög- um og sjúkdómum er við sögu koma. að vekur vægast sagt undrun hve margra grasa kennir þar - miður góðra. Aðildarfélög Umhyggju eru: Breið bros - samtök aðstandenda barna sem fædd eru með skarð í vör og góm; Einstök börn - foreldrafélag barna með alvarlega sjaldgæfa sjúk- dóma; Félag axlarklemmubarna; Foreldrafélag flogaveikisamtakanna - Lauf; Foreldrafélag Tourette - sam- takanna; Foreldrahópur barna með psoriasis og exem; Foreldrasamtök sykursjúkra barna og unglinga; Neist- inn - styrktarfélag hjartveikra bama; PKU félagið á íslandi; Félag um arfgenga efnaskiptagalla; Styrktar- félag krabbameinssjúkra barna. Öll eiga þessi félög sínar ágætu kynningar í ritinu svo og er kynntur erfðagallinn: Noonan syndrom og svo börn með astma og ofnæmi. Það sem vekur athygli hér er hve mörg aðildarfélaga Öryrkjabanda- lagsins eiga þarna deildir eða a.m.k. 5, enda hafa forystukonur Umhyggju átt með okkur fund um nánara samstarf. Framtakið nú er fjarska gott, færir með sér afar gagnlegan fróðleik sem fer svo víða og kemur þeim vonandi best að gagni sem eiga börn með einhver þessara einkenna og hafa ekki vitað af slíkum félagsskap þó vel kynntur sé. Umhyggju er alls góðs óskað í framtíðarstarfi um leið og þeim er árnað heilla með þennan ágæta kynningaráfanga. H.S. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 9

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.