Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1999, Page 13
tréð og þann hlýhug sem bak við
stæði. Hann dró upp úr vasa sínum
bækling þann er samtök fatlaðra
sendu sveitarstjórnarmönnum á
síðustu vordögum vegna yfirfærslu
málefna fatlaðra frá ríki til sveitar-
félaga. Hann sagði hann geymdan en
ekki gleymdan hjá sveitarstjórnar-
mönnum sem gerðu sér glöggt grein
fyrir, hve vandasamt og viðkvæmt
verkefnið væri. Hét liðsinni sveitar-
stjórnarmanna á Suðurnesjum við
málefni fatlaðra.
Helgi Seljan þakkaði góðar
móttökur, fór yfir stöðu mála í dag,
bæði hvað lagasetningu og fjármagn
snerti og færði Sigríði Daníelsdóttur
og hennar fólki einlægar þakkir fyrir
svo veitult veisluborð og undir það
tekið með góðu lófataki. Öll var
heimsókn þessi hin ánægjulegasta og
sannleikurinn sá að nú hafa öl!
kjördæmi verið heimsótt nema
Vestfirðir, þar sem hið ágætasta starf
er unnið, einkum í
þágu þroskaheftra.
Ritstjóra hefur
í hug flogið
hvort ekki ætti að
vera með hátíð
slíka til áminn-
ingar og hvatning-
ar að vori, í stað
jólatrés yrði um
gróðursetningu að
ræða og þá að
sjálfsögðu farið
fyrst á Vestfirði.
En þetta er aðeins
hans hugmynd
sem hér með er
varpað fram til umhugsunar og efnda
ef mönnum svo sýnist.
Hafi það fólk allt sem að kom í
Reykjanesbæ og tók svo vel á móti
okkur alúðarþakkir fyrir alla velvild
og góðan hug til málefna þeirra sem
Frá fundinum á eftir.
við berjumst fyrir. Kveikt var ljós -
tendrað tréð lýsti lýð um hátíðimar og
hefur vonandi vakið til umhugsunar
um þau mörgu málefni sem á bak við
Ijósadýrðina eru og sinna þarf.
H.S.
• • /
Haukur Þórðarson form. OBI:
Avarp á Samstöðuhátíð
Góðir Suðurnesjamenn í Reykjanesbæ.
Oryrkjabandalag íslands
hefur haldið þeim sið
allmörg ár að boða til sam-
stöðuhátíðar í desember ár hvert, í
svörtu skammdeginu, hér og þar um
landið, og kveikt
ljós á jólatré.
Upphaflega
ástæðan fyrir
samstöðuhátíð-
um ÖBÍ var sú að
á sínum tíma upp-
hófust átök um
viss borgaraleg
réttindi, nánar til-
tekið búseturétt-
indi ákveðins
hóps öryrkja. Þetta var ungt fólk,
fatlað á sinn hátt, og átti að hrekja það
frá heimili sínu. Til þess að sporna
gegn því efndi ÖBÍ m.a. til sam-
stöðuhátíðar, og töldu menn það hafa
lagt nokkur lóð á vogarskálina málinu
til lausnar. Málinu lauk farsællega,
að flestra mati, fyrir þá fötluðu. Þótti
mönnum síðan tilgangur í því að halda
áfram samstöðuhátíðum.
Suðurnesin og íbúar þeirra hafa
löngum haft til að bera dálítið sér-
stæða ímynd í hugum landsmanna,
allavega mínum. Stutt á fiskimið, bát-
ar, sjómenn sem eru með afbrigðum
veðurglöggir, brim, fjara og klettar,
Stjáni blái. Fátækt og ríkidæmi,
vinnusemi og gott vit til líkama og
sálar.
Hvort sem þessi mynd mín af
Suðurnesjamönnum er í sam-
ræmi við reynd og raunveruleika eða
ekki, þá er hitt víst að hvar sem menn
búa, í hvaða plássi sem er, fyrirfinnst
þessi óendanlegi breytileiki mann-
lífsins þegar kemur að færni manna
til athafna, átaka, gerðar og fram-
kvæmda, bæði þessari líkamlegu
færni og þeirri andlegu og geðrænu.
Öryrkjabandalagið er þeirra sem
búa við skerta færni af þessum
margvíslega toga, og á þeim bæ,
þ.e.a.s. hjá Öryrkjabandalaginu, vita
menn betur en flestir að oftar en ekki
má draga úr - jafnvel eyða - áhrifum
skerðingar með viðeigandi þjálfun,
kennslu, réttri aðstöðu, aðlöguðu
umhverfi o.s.frv. Þetta gildir hvort
heldur sem um meðfædd atvik er að
ræða eða atvik síðar til komin á ævi
vegna sjúkdóma eða slysa.
Við í Öryrkjabandalagi íslands
fögnum því að geta verið í dag
ámeðalykkarhéríReykjanesbæ. Við
þökkum framtak ykkar í málefnum
fatlaðra á svæðinu, við óskum ykkur
góðs gengis varðandi málaflokkinn,
ekki hvað síst þegar að því kemur -
takið eftir að ég segi ekki ef að því
kemur heldur þegar að því kemur -
að sveitarfélagið tekur að sér fram-
kvæmd málaflokksins. Við þökkum
samveruna og óskum öllum gleðilegra
jóla.
Haukur Þórðarson
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
13