Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1999, Side 14
Af stjórnarvettvangi
Fundur var haldinn í stjórn
Öryrkjabandalags íslands
hinn 15. des. sl. og hófst kl.
16.45 í fundarsal að Hótel Loftleiðum.
Alls mættu fulltrúar 20 félaga, en
7 voru fjarstaddir.
Formaður, Haukur Þórðarson setti
fund og stjómaði honum. Hann bauð
alla velkomna, þó einkum þá er nú
sátu stjórnarfund í fyrsta sinn, þau:
Bjöm Tryggvason frá Málbjörg, Gerði
Sæmundsdóttur frá FAAS, Matthías
Kristiansen frá Foreldrafélagi mis-
þroska barna, Málfríði Gunnarsdóttur
frá Foreldra- og styrktarfélagi heyrn-
ardaufra og Þorlák Ómar Einarsson
frá Tourette - samtökunum.
1. Yfirlit formanns: Formaður
Haukur Þórðarson, fór yfir þau mál
helst sem framkvæmdastjórn hafði
fjallað um frá síðasta stjórnarfundi.
Erindi hafði borist frá Svæðis-
skrifstofu Reykjavíkur um tilrauna-
verkefnið: Atvinna með liðveislu. Fól
í sér beiðni um stuðning af einhverju
tagi m.a. fjárhagslegan. Fundurhafði
verið haldinn með fulltrúum frá fram-
kvæmdastjórn og Svæðisskrifstofu til
frekari útskýringar málinu. Vísað til
afgreiðslu við gerð fjárhagsáætlunar
næsta árs.
Fundur hafði og verið haldinn með
stjórn Hússjóðs um samþykkt þá um
búsetumál sem aðalfundur gerði, m.a.
um möguleika Hússjóðs til að veita
öryrkjum viðbótarlán - 10% til
viðbótar 90% láni íbúðalánasjóðs.
Formaður greindi frá aðalfundi
Islenskrar getspár 19. nóv. sl. þarsem
5 fulltrúar mættu frá ÖBÍ. Stjórnar-
menn ÖBI í Islenskri getspá eru þeir:
Vífill Oddsson og Þórir Þorvarðarson.
Núverandi formaður stjórnar Islenskr-
ar getspár er Eggert Magnússon frá
ISI. Lottótekjur minnkuðu á reikn-
ingsárinu, en bjartsýni er um að aukast
kunni á ný.
Hann gat þessu næst um 3. des.
alþjóðadag fatlaðra, ávarp ÖBÍ þann
dag, sem gerð hefðu verið góð skil af
fjölmiðlum svo og hefðu greinaskrif
verið sem og viðtöl. Formaður gat
einnig um aðild okkar að afmælis-
dagskrá í Ráðhúsi Reykjavíkur 10.
des. sl. í tilefni af 50 ára afmæli
Mannréttindayfirlýsingar SÞ. Mann-
réttindaskrifstofa íslands stóð að
dagskránni en við þar með beina
aðild. ÖBI var svo með sérstakan
upplýsingabás í Ráðhúsinu, en dag-
skrá dagsins tókst mjög vel.
I tilefni af þessu kom fram að
mannréttindayfirlýsingin er hvorki til
á hljóðbók eða táknmáli.
Formaður rakti svo nokkuð hug-
myndir og umræður um alþjóð-
lega ráðstefnu hér á landi í framhaldi
af komu Bengts Lindquists hingað
fyrir ári.
Rakti einnig bréfaskipti milli aðila
og það að utanríkisráðuneytið hefði
vísað á félagsmálaráðuneytið um
framkvæmd. Utanríkisráðuneytið
hins vegar staðið við greiðslu fram-
lagsokkartilstarfaBengts. Formaður
greindi svo frá mótmælum okkar og
fleiri samtaka við greiðslu húsaleigu-
bóta eftir á svo og skattlagningu
þeirra.
Hann gat þessu næst um erfiða
stöðu Vinnustaða ÖBÍ og þrátt fyrir
gjörð þjónustusamnings með nokkru
viðbótarframlagi frá ríkinu þá yrðu
þeir áfram í gjörgæslu. Samkeppni
innflutts, ódýrs varnings hefði leikið
vinnustaðina grátt.
Haukur minnti á mótmæli okkar
við niðurskurði á lögbundnum fram-
lögum til Framkvæmdasjóðs fatlaðra
sem send hefðu verið formanni fjár-
laganefndar og ráðherra félagsmála.
Kynnti umsagnir um þingmál, já-
kvæðar um tillögu til þingsályktunar
um endurskoðun laga um sjúklinga-
tryggingu, lagafrv. um skattfrelsi
húsaleigubóta og lagafrv. um leið-
réttingu skaðabótagreiðslna.
Hann gat um kosningu í stjórn
Hússjóðs. Kosningu hlutu Emil
Thóroddsen, Hafliði Hjartarson,
Helgi Hjörvar og Jóhannes Agústs-
son. Ur stjórn voru felld þau Ólöf
Ríkarðsdóttir og Tómas Helgason
sem bæði áttu langt og farsælt starf
að baki, Tómas allt frá stofnun. Þau
ættu miklai' þakkir skildar. í stjórn
Starfsþjálfunar fatlaðra voru kjörin:
Margrét Margeirsdóttir, Ólafur H.
Sigurjónsson og Ólöf Ríkarðsdóttir.
Helgi Seljan óskaði eftir að ganga þar
úr stjórn og Ólafur kjörinn í hans stað.
I stjórn Sjóðs Odds Ólafssonar var
kjörin Asgerður Ingimarsdóttir og
Helgi Seljan til vara. I stjórn Grein-
ingar- og ráðgjafarstöðvar nkisins var
kjörinn: Ólafur H. Sigurjónsson. Til
vara: Hafdís Gísladóttir. I Stjómar-
nefnd um málefni fatlaðra: Helgi
Seljan aðalmaður. Tilvara: Guðríður
Ólafsdóttir.
Að lokum sagði formaður frá
14