Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1999, Síða 17

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1999, Síða 17
og túlk - hefur gefið henni nýja von. Skemmtanir og söngvarar hafa líka gert sitt - þó hún hafi skemmt sér mest 30. júlí 1996, þegar Leonard Dicaprio heimsótti hana og skrifaði sérstakan texta til hennar. „Til sérlega fallegrar stúlku. Ég get fundið hvað vilji þinn er sterkur. Astarkveðja Leo.” Sang roðnaði þegar hún sá hver kominn var í heimsókn. „Hann sagði að ég væri mjög falleg,” segir hún. Vegna þess að Sang yfirgaf heimili sitt þegar hún var einungis 8 ára, vegna fimleikaskóla, hefur harmleikur hennar aðskilið hana frá foreldrum sínum. Þau hafa tekið sér ótímabundið leyfi frá störfum til að vera hjá henni í íbúðarálmu sem sjúkrahúsið á. Þar eru þau hjá henni og halda henni félagsskap og eru að læra hvemig eigi að hjúkra henni eftir að hún yfirgefur Mount Sinai snemma í næsta mánuði. Sang segist munu halda áfram æfingunum í hálft til eitt ár áður en hún snýr aftur til Kína. Til að búa sig undir framtíðina mun Sang læra ensku og ætlar í framhaldsskóla, annað hvort í New York eða í Kína. Hún ætlar sér líka að læra á tölvu með aðstoð hjálpar- tækja og hefur nú fengið tilboð um vinnu. „Með slíka möguleika framund- an,” segir Sang, ,.þá er í lagi þó ég geti ekki framar notað fæturna á mér, vegna þess að það eru svo margir hlutir sem ég ennþá get gert.” Þýtt af Ingólfi Erni Birgissyni úr People. EFTIRMÁLI: Þegar Ingólfur Örn kom með þessa ágætu þýðingu til ritstjóra þá lét hann þess getið að Christopher Reeve, Sang Lan og hann sjálfur hefðu öll haft sama lækni, engan annan en Kristján Tómas Ragnarsson. Skemmtileg tilviljun eða hvað. HEFUR I>Ú HUGLEITT AÐ? “Þótt íslenska ríkisstjórnin haíi verið ein sú fyrsta sem lét þýða Grundvallarreglur Sameinuðu þjóðanna um málefni fatlaðra, þá er ekki nóg að þýða þær. Það þarf líka líka að framfylgja þeim.” Bengt Lindquist, umboðsmaður fatlaðra hjá Sameinuðu þjóðunum. Desember 1997. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 17

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.