Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1999, Blaðsíða 24

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1999, Blaðsíða 24
Frá athöfn í Iðnó. ALÞJÓÐADAGUR FATLAÐRA Ekki ætti að þurfa að segja lesendum þessa blaðs frá því hvenær alþjóðadagur fatlaðra er, en skv. ákvörðun Sameinuðu þjóð- anna þá er 3.des. ár hvert alþjóðadagur fatlaðra. Öryrkjabandalag Islands sendi frá sér ítarlegt ávarp í tilefni dagsins sem birtist í Morgunblaðinu og þar birtust einnig þennan dag greinar og viðtöl tengd þessum bar- áttudegi. Víðar svo sem í Ríkisútvarp- inu voru ávarpi okkar gjörð góð skil. Sjálfsbjörg og Þroskahjálp veittu viðurkenningar þennan dag, Sjálfs- björg fyrir gott aðgengi, Þroskahjálp fyrirtæki sem stendur sig vel í atvinnumálum fatlaðra. Fyrst að Þroskahjálp I ár var það Eðalfiskur í Borgarnesi sem viðurkenninguna hlaut og var vel að komið. Guðmundur Ragnarsson kvað þetta í sjötta sinn sem slík viður- kennning væri veitt, enda segðu Meginreglur SÞ að atvinna væri ein forsenda mannréttinda allra, ekki síst fatlaðra. Atvinnumálanefnd Þroska- hjálpar veitir viðurkenninguna eftir tilnefningum Svæðisskrifstofu og tilraunasveitarfélaga. Ottó B. Arnar í atvinnumálanefnd Þroskahjálpar lýsti ánægjulegu framlagi Eðalfisks til atvinnumála fatlaðra og Jóhann Arnfinnsson formaður nefndarinnar afhenti fram- kvæmdastjóra Eðalfisks listgrip góð- an gjörðan af fötluðum í Asgarði - handverkstæði. Ragnar Jónsson framkvæmdastjóri þakkaði viður- kenninguna sem hann kvað vera hvatningu til dáða. Þetta framtak ber að þakka. Aðgengisviðurkenningar Sjálfsbjargar Eins og greint hefur verið frá hér í blaðinu allnokkrum sinnum á um- liðnum árum hefur Sjálfsbjörg haldið 3. des. vel í heiðri með athöfn sem fram hefur farið þann dag og verðug viðurkenning þá veitt fyrir gott aðgengi, annars vegar vegna nýbygg- inga, hins vegar vegna endurbóta. Nú var þessi góði siður viðhafður í fjórða sinn og að þessu sinni var athöfnin í Iðnó- nýuppgerðu og glæsi- legu. Það var Sigurður Einarsson, fram- kvæmdastjóri Sjálfsbjargar - lands- sambands sem setti samkomuna og stjórnaði henni. Flutti kveðju Arnórs Péturssonar sem var á sjúkrahúsi. Hann sagði að svo undarlegt sem það nú væri þá væri alltaf hið blíðasta veður þegar viðurkenning væri afhent, en annað gilti um Þránd í Götu - skammarverðlaunin, þá brygðust veðurguðir ókvæða við. Steinunn Jóhannesdóttir leikkona og rithöfundur las þessu næst Leppa- lúðakvæði Hallgnms Péturssonar sem hún fór á kostum með, en kvæði þetta listilega gjört fyrir skömmu fundið. Þar hefði Hallgrímur sem ungur prest- ur í Hvalnesþingum kveðið til barna sinna og allnokkur aðvörun verið í fólgin. Guðmundur Magnússon for- stöðumaður Dagvistar Sjálfs- bjargar kvað Sameinuðu þjóðirnar nú hafa að kjörorði gjört: Aðbrjótaniður hindranir og augljósustu hindrana- dæmin væru óaðgengilegar bygging- ar, svo ekki væri nú að hanabjálkunum vikið. Hitt kjörorð SÞ væri: Að kynna fötluðum rétt sinn og þar með réttinn til upplýsingar, hann vissu hreint ekki allir og ríkisvaldið ekki staðið við sitt í þeim efnum. I meginreglum Sam- einuðu þjóðanna er líka ákvæði um að allir skuli njóta sómasamlegs við- urværis og allir vissu að hvergi nærri væri við það staðið, jafnvel sjálfsögð mannréttindi brotin. Guðmundur kvað viðurkenningar veittar ýmist til nýrra eða nýlegra bygginga þar sem allar kröfur væru uppfylltar og helst vel það. Hins vegar lagfæringar á eldri byggingum m.t.t. aðgengis fatlaðra. 24
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.