Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1999, Síða 30
Af Húsbyggingarsjóði
Þroskahjálpar
ann 8. janúar sl. tóku Lands-
samtökin Þroskahjálp á móti
6 nýjum félagslegum leiguíbúðum
að Skúlagötu 46 í Reykjavík. Af
því tilefni var til ágætrar athafnar
boðið og mætti þar margt manna
til formlegrar vígslu og samfagn-
aðar með íbúðirnar, meðal þeirra
nokkrir verðandi íbúar í hinum
glæsilegu og vel búnu íbúðum.
Þarna verða 5 íbúar við hinar
ákjósanlegustu aðstæður og svo er
ein íbúð fyrir starfsmann, sem veit-
ir íbúunum fimm ákveðna þjón-
ustu, en henni mun hægt að breyta
í viðbótaríbúð fyrir fatlaða.
I máli manna kom fram mikil
ánægja með framkvæmd þessa, en
ávörp og kveðjur fluttu: Guð-
mundur Ragnarsson form. Þroska-
hjálpar, Jón Sævar Alfonsson
form. Húsbyggingarsjóðs, Páll
Pétursson félagsmálaráðherra,
Lára Björnsdóttir félagsmálastjóri
Reykjavíkur, Halldór Júlíusson og
Salóme Þórisdóttir frá Svæðis-
skrifstofu Reykjavíkur, Haukur
Þórðarson form. ÖBI, Gunnar
Sandholt frá fjölskyldudeild
Félagsmálast. og aðalverktakinn
Viðar Daníelsson. Blómakveðjur
fagrar bárust m.a. frá Öryrkja-
bandalagi íslands og Húsnæðis-
nefnd Reykjavíkur.
Húsnæðið að Skúlagötu 46 er
381.5 fm, hið vistlegasta og
hugsað fyrir þörfum fatlaðra alveg
sérstaklega. Af þessu tilefni var
tekið hús á þeim mæta baráttu-
manni Þroskahjálpar allt frá
stofnun, Jóni Sævari Alfonssyni,
sem eins og áður greinir er for-
maðurHúsbyggingarsjóðs samtak-
anna. Ritstjóri hefur lengi sam-
ferða Jóni verið m.a. á vettvangi
Stjórnarnefndar um málefni fatl-
aðra, en þar hefur hann setið frá
upphafi 1980 að tveim árum und-
anskildum.
Þar að auki og ekki amalegt, þá
er Jón Sævar Austfirðingur eins og
ritstjóri, sem telur það að sjálf-
sögðu báðum til tekna, og þykir nú
Jóni Sævari eflaust nóg sungið að
sinni.
Fyrst spyr ég Jón um tildrög og
tilurð Húsbyggingarsjóðsins.
Jón Sævar Alfonsson.
Hann segir mér að sjóðurinn hafi
verið stofnaður árið 1990 og til-
drögin þau að Jóhanna Sigurðar-
dóttir sem þá var félagsmála-
ráðherra vildi gjöra sérstakt átak í
íbúðamálum fatlaðra, bæði vegna
margra umsókna þá um sambýli og
eins hinu að þá væri halddrýgst að
hjálpa þeim íbúum sambýlanna
sem færir væru um það til að kom-
ast í sjálfstæða búsetu.
Fékk hún því framgengt að 20
lánsloforð fengust úr félagslega
kerfinu og þá kom upp spurningin
um það, hverjir skyldu með forsjá
þessara lánsloforða og væntanlega
framkvæmd fara. Þá var það sem
hin ágæta baráttukona Asta B.
Þorsteinsdóttir kom með þá hug-
mynd að stofna skyldi húsbygg-
ingarsjóð til þess m.a. að unnt væri
aðnýtaþessilánsloforð. Ogmenn
létu eggjan Astu ekki bíða fram-
kvæmdar lengi, því sjóðurinn varð
að veruleika og fyrstu íbúðirnar
voru keyptar í febrúar 1991 þegar
það lá fyrir að 38 gætu flutt af sam-
býlumþáí 14-21 þjónustuíbúð.
Fjármögnun íbúðanna felst í
90% lánum úr félagslega
kerfinu og 10% styrk frá Fram-
kvæmdasjóði fatlaðra og Jón
Sævar leggur á það áherslu að
þessi 10% séu ekki reiknuð inn í
leiguna þannig að af þeim ástæð-
um sé leigan í raun 90% af raun-
verði, en íbúar eru leigjendur og
meðalverð leigugjalda á fm. er 320
kr. Það er ákveðið lögmál hjá
Þroskahjálp að koma ekki nálægt
neinum rekstri og þess vegna eru
íbúðimar, sem vel að merkja eru
eign Þroskahjálpar, í rekstri hjá
svæðisskrifstofum eða þá sveitar-
félögum. Og þá er það aðalspum-
ingin, hversu margar íbúðir hafa
þannig verið keyptar eða byggðar
og því svarar Jón greiðlega: Alls
em húseignir nú 19 að tölu með
52 íbúum og tvær eru í burðar-
liðnum með alltaf 2 íbúa svo og
voru keyptar 3 íbúðir nú í des-
emberlok í Blásölum í Kópavogi.
Svo hugað sé að hvar íbúar í
íbúðum Húsbyggingarsjóðs búa á
landinu þá eru þeir 22 á Akureyri,
í Reykjavík 12 íbúar, í Hafnarfirði
7 íbúar, á Dalvík 4 íbúar, 3 í
Kópavogi, 2 á Seltjarnarnesi, á
Egilsstöðum 1 og í Fellabæ 1.
Jón Sævar vill taka fram að
Þroskahjálp hafi fengið fleiri
lánsloforð en þau hafi verið fram-
seld til sveitarfélaga sem nýti
þessar íbúðir fötluðum til góða.
Jóni Sævari er þakkaður mikill
og mætur fróðleikur og eitt er víst,
hann lætur ekki fremur en fyrri
daginn deigan síga í baráttu sinni
fyrir bættum hag fatlaðra. Megi
honum og hans sjóði vel farnast í
framtíðinni.
H.S.
30