Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1999, Side 31

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1999, Side 31
Sigurður Óskar Pálsson: MEÐ AUSTANGJÓLUNNI * síðari misserum hafa fallið til hjá mér nokkur stef undir limruhætti. Limrur eru þau þó ekki, enda þarf meira til þess en bragarháttinn einn, að samsetningur standi undir því nafni. Afþessum sökum hef ég tek- ið mér til handar- gangs orðið fimmla sem mér þykir geta hæft þessum fimm línu hætti þegar hann stenst ekki kröfur limrunnar. Eftir- farandi fimmlur tengjast efni fjölmiðla á einn eða annan hátt. I þættinum Stutt í spunann var nýlega greint frá hjónum sem kváðu heita Já og Jæja og hafi ég skilið rétt var það frúin sem bar síðara nafnið. Einhverra hluta vegna fór ég að reyna að setja mér fyrir sjónir hugsanleg endalok þessarar merku tvenndar- myndunar þegar þar að kæmi: Þau hétu Já og Jæja og Jæja var alltaf að hlæja. Hún hló og hló uns hún hreinlega dó. Þá sagði Já bara: jæja. Staðlað bros (Ný þuluásjóna í áglápinu.) Hún síæfði sjónvarpsbrosið svo er best varð á-kosið og hún brosir við oss eins og bjóði hún koss. Samt er það svolítið frosið. í fréttum frá síðasta heimsmeist- aramóti í frjálsum íþróttum greindi einn fréttamanna vorra frá því að til- tekin stúlka hefði orðið ástmögur þjóðar sinnar fyrir frammistöðu sína á íþróttaleikvanginum. Þetta þótti mér merkilegt að heyra, vægast sagt, af því að mögur þýðir sonur en alls ekki dóttir, sbr. gælunafn vort á Jónasi Hallgrímssyni. I fáfræði minni sýnd- ist mér að stúlka gæti því aðeins orðið ástmögur að hún yrði svo heltekin af ást að hún missti alla matarlyst um langa hríð og væri að svo komnu máli lítt fær til afreka á íþróttavöllum. En eins og kerlingin sagði forðum: “Það sem aldrei hefur komið fyrir áður getur alitaf gerst aftur Konan var kvikleg og fögur, á kreik fóru afrekasögur, og gleði það vakti er gunnfáni blakti. Af ást var hún orðin mögur. Hitt er svo annað mái að nýmóðins kyngreining hefur skotið víðar upp kolli en á sviði íþróttanna í seinni tíð. Fyrir ekki ýkjalöngu heyrði ég virðulegan kvenprest útlista það í ljósvakafjölmiðli að Guð væri kven- kyns. Þessi fræði komu ögn flatt upp á mig og samrýmdust illa lífsseigum bernskuhugmyndum mínum um þann aldna, gráskeggjaða Guð sem bjó uppi í himninum langt, langt fyrir ofan Sólarfjallið og ég trúði að mjög líktist honum afa mínum sem kominn var um áttrætt þegar ég mundi hann fyrst. Þar að auki ruglaði þetta fyrir mér myndinni af heilagri þrenningu. Var heilagur andi þá kvenkyns og Jesú- bamiðíjötunnistelpa? Þessarvanga- veltur ieiddu til niðurstöðu, sem ýmsar frómar sálir kunna að telja ókristilegar: Ganga úr gömlum skorðum ýmis gildi í fornhelgum orðum. Þessi guðfræði geisar um lönd: Getin af heilagri önd var frelsarinn forðum. Nú um litla hríð hefur orðið nokkur uppstytta í þeirri tísku, a.m.k. í ríkis- sjónvarpinu, að stjómendur skemmti- þátta hiæja mikiu meira en venjulegir áhorfendur fá komið í verk meðan gamanið varir og þá oft með stómm munngöpum og jafnvel bakföllum sem minna á krampaflog. Ekki er þó langt síðan þetta stef kom í huga minn undir þessháttar skemmtan: Ég horfði á herra Gap og heldur lítt bætti mitt skap, er hann glennti að mér ginið á sér, að sjá í það Ginnungagap. í útvarpsfréttum að kvöldi þess 8da apríiis Í997 greindi frá Hún- vetningi og Skagfirðingi, er verið höfðu að silungsveiðum uppi á heið- um og komu þá auga á ref sem snóp- aði þar álengdar að útigangsgemlingi með drápsfasi. Að eigin sögn sórust þeir þegar í fóstbræðralag gegn viliidýrinu og stökktu því á flótta en kvöddu til flugbjörgunarsveit að flytja sauðkindina til byggða. Var hetjusaga þessi listilega orðfærð af hálfu frétta- manns og varð tilefni þessa stefs: Refur á heiðum fann Húnvetning og hitti þar einnig Skagfirðing; lagði á flótta, frá sér af ótta og fórst að lokum úr hlaupasting. Enn úr íþróttafréttum Er “mundaði fót sinn” við markið rharksækna hetjan, sparkið var makalaust mark því að meistaraspark átti mundaður fótur á markið. S.Ó.P Smellin sending Þessari litlu vísu var gaukað að ritstjóra rétt eftir áramótin. Tilefnið mun hafa verið það að menn voru að ljúka við að steypa upp fyrir prestsbústað úti á landi. Mótin fyllast meðan drottins andi mildur svífur yfir þessu landi, heiður og hreinn. Horfi ég yfir handaverk að lokum hér var steypt úr fjöldamörgum pokum utan um einn. Sigurður Óskar Pálsson FRÉTTABRÉF ÖRYRKJ AB ANDALAGSINS 31

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.