Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1999, Qupperneq 35
INNLITIÐ
Guðrún K. Þórsdóttir tekin tali
Hingað leit inn á dögunum
framkvæmdastjóri Félags
aðstandenda Alzheimer-
sjúklinga, Guðrún K. Þórsdóttir og
ritstjóri greip tækifærið og spurði
hana spjörunum
úr, einkanlega í
ljósi þess að þá
stóð einmitt fyrir
dyrum vígsla
hennar til djákna,
sem fór svo fram
hinn 7. feb. sl.
Guðrún hefur
áður verið kynnt
hér sem fram-
kvæmdastjóri
FAAS, en þar áður var hún forstöðu-
kona Foldabæjar sem einnig fékk sína
kynningu hér.
Guðrún á að baki fjölbreyttan
námsferil. Flún er með sjúkraliðapróf,
BA próf í sálarfræði, grunnnám í
viðskiptagreinum og nú haustið 1998
lauk hún djáknanámi. Guðrún hefur
verið kölluð til þjónustu í Áskirkju í
25% starf sem djákni, hún hefur
einnig verið kölluð til djáknastarfs hjá
FAAS samhliða framkvæmdastjóra-
starfi en þar er hún alls í 50% starfi.
Ritstjóri innti nánar eftir djáknastarf-
inu sem slíku og Guðrún segir fyrir-
myndina að sínu starfi vera frá Nes-
kirkju, þar hefur djákni verið í hluta-
starfi, byggt upp heimsóknarþjónustu
og haldið utan um sjálfboðaliðastarf.
Þetta hefur gefið afar góða raun, en
Guðrún leggur áherslu á það að vel
þurfi að halda utan um sjálfboða-
liðana, en þeir eru metnir sem afar
dýrmætir starfskraftar, fá auðvitað
sjálfir mikið út úr sínu starfi, sem er
algengast 1-2 tímar í heimsóknar-
þjónustu og öðm slíku hálfsmánaðar-
lega. Einkaviðtöl djákna eru við
skjólstæðinga sem sjálfboðaliða.
Guðrún segist ætla að hafa starfið
í Neskirkju að fyrirmynd í sínu
starfi, segist verða að vinna mikið
undirbúningsstarf svo allt fari síðan á
sem bestan veg. Til viðbótar vonast
hún svo eftir að fá að taka þátt í
helgihaldi a.m.k. einu sinni í mánuði
og verða þannig betur sýnileg
söfnuðinum. Guðrún segist samhliða
starfinu hjá FAAS gjaman vilja veita
öryrkjum sérstaklega sína þjónustu og
er það mál í athugun hjá Öryrkja-
bandalaginu og greint frá síðar.
I framhaldi af þessu er Guðrún innt
nánar eftir starfinu sem og fram-
kvæmdum hjá FAAS. Hún segir frá
gjöfinni góðu, húseigninni að Austur-
brún 31, sem nú er byrjað að taka í
gegn, búið er að skipta um þak og
glugga og einangra efri hæðina,
aðeins nú beðið eftir leyfi til þess frá
borginni að teikningar inni verði
samþykktar í ljósi þess líka að þarna
verði ákveðin starfsemi í framtíðinni.
Þegar það leyfi eða samþykki er
fengið, sem ugglaust verður staðreynd
þegar blað þetta kemur út, þá verður
lokið við allt sem gjöra þarf á efri
hæðinni, en margt sem þar verður
gjört s.s. pípulagnir og raflagnir
jafnhliða tekið í húsinu öllu.
Guðrún gjörir ráð fyrir því að skrif-
stofa FAAS komist þarna í gagnið í
vor.
Hún segir að þjónusta sín hjá
FAAS sem djákni yrði þá með vísan
samastað þar, sem öllu skipti og ekki
væri verra að aðsetrið væri í umdæmi
Áskirkju og saman færi þessi þjónusta
því eins vel og kostur væri.
Og svo er ekki annað en fara að
undirbúa þetta sem allra best,
svo þjónustan megi sem fyrst verða
fólki til gagns og góðs. Nú svo bíður
neðri hæðin þess að nægilegt fjár-
magn fáist til að hún verði hæf til
þeirrar starfsemi sem þar er áætluð,
en draumurinn er um dagvist fyrir
FAAS fólk með sveigjanlegan við-
verutíma, sömuleiðis fyrir helgar-
hvíldir, aðstaða fyrir eina og eina
helgi, en þó ekki fyrir fleiri en fjóra í
einu.
Ritstjóri hefur áður fjallað hér um
þennan draum og vonandi verður
hann að virkileika sem fyrst, því eitt
er víst, þörfin er heldur betur fyrir
hendi. Guðrúnu er alls góðs árnað í
því sem hún hefur verið kölluð til og
FAAS eru sendar hlýjar óskir um að
allt starf megi sem best til blessunar
verða, því vandamálin eru mörg og
mikið verk framundan.
H.S.
Guðrún K.
Þórsdóttir.
“Aðeins lítið brot af öllum þeim milljörðum
sem ríkissjóður hefur bætt við sig í
skatttekjum á þessu ári og því næsta myndi
duga til að gera hér nauðsynlegar úrbætur.”
Úrforystugrein Dags.
Desember 1998.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
35