Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1999, Qupperneq 37

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1999, Qupperneq 37
Hlerað í hornum Málfræðingurinn var veikur og vinur hans spurði hvernig honum liði. “Mér líður ekki, ég líð,” var svarið. * * * “Eiga mömmurnar líka stráka, amma?”, spurði sú litla. “Já væna mín”. “En til hvers eru þápabbarnir?” * * * Maður var að koma úr veislu og var spurður um veislugesti. Hann taldi þá upp og bætti við: “Svo var það ég og konan mín og við hjónin bæði.” * * * Gesturinn: “Hvers vegna ertu svona lítill drengur minn?” Stráksi: “Ætliþaðséekkibaraafþví að ég er hálfbróðir.” * * * Kaupmaður sem seldi föt, grunaði konu sína um framhjáhald. Nú þurfti hann að ferðast til útlanda. Hann bað vin sinn að senda sér skeyti, ef hann kæmist að einhverju. Svo kom skeyt- ið: Skyrtur hækka, buxur lækka og skinnavara mikið notuð. * * * Kona ein rak tvo asna á undan sér. Þá mætti henni ungur maður sem sagði: “Góðan daginn, asnamóðir.” “Góðan daginn, sonur sæll,” svaraði konan. * * * Jón: “Það get ég með sanni sagt að ósatt orð hefur ekki komið yfir mínar varir”. Pétur: “Þú segir það nú líklega satt því þú talar allt í gegnum nefið.” * * * Goggi litli sá hvernig amrna hans tók útúrsérgervitennurnarogsagði: “Og taktu nú úr þér augun amma mín.” * * * Börn að metast um foreldra sína. “Pabbi sagði mér sjálfur.” “Mamma sjálf sagði mér.” “Pabbi er miklu sjálfari.” * * * “Nú er ég andskotanum hissari”, sagði konan. * * * Gunnar ók á ofsahraða á nýja bílnum sínum og allt í einu heyrði hann og sá að lögreglubíll með blikkandi ljósum nálgaðist. Arangurslaust reyndi hann að stinga af og endirinn sá að hann beygði út í kant. Lögreglumaðurinn spurði Gunnar hvernig hann vildi skýra þennan hraðakstur og þá svaraði Gunnar hinn rólegasti: “Konan mín stakk af með löggu í síðasta mánuði og ég hélt að hann væri kominn til að skila henni aftur”. * * * Eiginkonan var að horfa út um stofu- gluggann og sagði hrifin við eigin- manninn sem sat niðursokkinn við sjónvarpið yfir fótboltaleik. “Komdu, Nonni og sjáðu hvað sólarlagið er yndislega fallegt”. Þá sagði Nonni: “Ég má ekki vera að því kona. Taktu það heldur upp á spólu fyrir mig”. * * * Maður einn hitti ritstjóra þessa blaðs og hafði urn það mörg orð að hann hefði heldur betur verið að hugsa til hans undanfarið. Rétt á eftir fór hann að afsaka sig út af hverju hann hefði ekki haft sam- band og sagði: “Ég hefi ekki lengi hugsað neina heilbrigða hugsun”. BREYTING TIL BÓTA s Anýafstöðnu þingi var gjörð breyting á 12. gr. laga um almannatryggingar en sú grein fjallar um eitt grundvallaratriða trygginganna, örorkumatið. I stað eldra ákvæðis byggðu á vinnugetu að miklu leyti verður mat nú byggt á læknisfræðilegum staðli og því njóti allir sem metnir eru 75% öryrkjar þeirra réttinda er því fylgir. Lengi hefur það verið brýnt baráttumál að breyta þessu í þá veru sem nú er lögfest þ.e. að tekjur þeirra sem sannarlega eru 75% öryrkjar valdi því ekki, svo sem viðgengist hefur, að viðkom- andi fái 65% mat, missi þannig örorkuskírteini sitt og þau réttindi sem því þá fylgja. Þetta er sann- girnis- og réttlætismál, því full- komlega er séð fyrir skerðingum annars staðar í lögum um almanna- tryggingar og mundum við segja vel það. Auðvitað má segja að ekki sé allt fullljóst nú um þann staðal sem á verður byggt en það sem nú liggur fyrir lofar góðu, en eðlilega skiptir miklu hvernig staðallinn verður byggður upp, hversu mark- tækur hann verður í framkvæmd og svo ekki síður hversu honum verður beitt. s Ilagabreytingunni fólst einnig áhersla á endurhæfingu, m.a. með þeim hætti að heimilt er tryggingayfirlækni að setja það skilyrði að umsækjandi um örorku gangist undir sérhæft mat á möguleikum til endurhæfingar og viðeigandi endurhæfingu áður en til örorkumats kemur. Hér á bæ er eflingu endurhæf- ingar vissulega fagnað, því hún skiptir mjög miklu fyrir svo marga s.s. Hringsjá - Starfsþjálfun fatl- aðra, Reykjalundur og fleiri góðar stofnanir hafa svo sannarlega sannað. Við vitum enda að Trygginga- stofnun ríkisins hefur beitt sér fyrir þessum málum í þá veru að auka möguleika fólks til bæði heilsu- farslegrar og ekki síður starfslegrar endurhæfingar. Öryrkjabandalag Islands treystir á góða framkvæmd þessara nýju ákvæða, vonar um leið að aukin áhersla á endurhæfingu skili sér í fleiri og enn betri endur- hæfingartilboðum fyrir okkar fólk og enn til viðbótar skal því treyst að framkvæmdin verði slík að ekki sé um of vikið til hliðar hinum oft alvarlegu félagslegu aðstæðum, sem sannarlega geta verið hinir verstu örorkuvaldar. Framkvæmdin mun taka gildi 1. sept. nk. og að sjálfsögðu mun- um við vel með fylgjast framvindu allri og höfum til þess enn betri aðstæður nú með virkri aðild bandalagsins að samráðsnefndinni þar sem fulltrúar Tryggingastofn- unar og samtaka fatlaðra funda a.m.k. mánaðarlega. Ef rétt er að öllu staðið, sem ekki skal hér efast um, er þessi breyting til mikilla bóta. H.S. fréttabréf öryrkjabandalagsins 37

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.