Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1999, Page 40

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1999, Page 40
DÁGÓÐSTUND IDVOL s síðasta tölublaði Fréttabréfsins var birt frásögn af Alþjóðlega geð- heilbrigðisdeginum lO.okt. þar kom m.a. fram að daginn áður, 9.okt. var formlega tekið í notkun athvarf fyrir geðfatlaða í Kópavogi, athvarf sem hlaut það ágæta heiti: Dvöl. Þar var svo opið hús 10. okt. þar sem fólk kynnti sér aðstöðu alla. Kristín okkar Jóns- dóttir fór þarna á vett- vang 9. okt. og flutti kveðjur og heillaóskir Öryrkjabanda- lagsins. En í framhaldi af þessu var því heitið að gjöra athvarfi þessu góð skil síðar, þegar nokkur reynsla væri komin á starfsemina. Ritstjóri hafði því samband snemma í janúar við þá ágætu konu, Helgu Þorleifsdóttur félagsráðgjafa hjá Félagsmálastofnun Kópavogs, en Helga er einmitt tengiliður Kópavogs- bæjar við Dvöl og þekkir þar allt út oginn. Þaðvarsvoárlamorgunshinn 15. jan. að ritstjóri naut fylgdar Helgu til heimsóknar í Dvöl eftir að hafa rætt stuttlega við þau Hrafn Sæmundsson sem ævinlega er vakinn og sofinn í velferðarmálum, nú með heill aldr- aðra í huga fyrst og síðast. Dvöl er í Reynihvammi 43 í Kópavogi og það skemmtilega er að húsið, sem er um 150 fm. og byggt 1932, hafði áður þetta hlýlega heiti Dvöl. Það vargreinilegt að í snjó og hálku eins og var þennan dag, þá mætti aðgengið vera betra, enda var það í raun eina umkvörtunarefni hús- ráðenda, sem sögðu að brekkurnar, hálkan og snjórinn yllu því að færri dvalargestir birtust. En umhverfið allt er hið skemmtilegasta, stór trjágarður við húsið og útsýni hið fegursta. Sem sagt, þarna er áreiðanlega ágætt að eigadvöl. Þaðfórsvoekkimillimála þegar til alúðarfullrar móttöku hús- ráðenda er litið að hjartarúmið er í góðu samræmi við húsrýmið. Forstöðukona Dvalar er Sigríður Bjarnadóttir hjúkrunarfræðingur í fullu starfi, Sigurbjörg Lundholm sem kemur frá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra er í 80% starfi og síðar bættist í þeirra hóp í heimsókninni Þórunn Selma Þórðardóttir sem er í 50% starfi í eldhúsi og við þrif. Að Dvöl standa 3 aðilar: Kópa- vogsdeild Rauða kross íslands, Kópavogsbær, sem á húsið og Svæð- isskrifstofa málefna fatlaðra á Reykja- nesi. Þær stöllur vildu og taka fram að hið besta samband væri við Vin, athvarf geðfatlaðra á Hverfisgötunni í Reykjavík. Húsið er rúmgott, 150 ferm. með útihúsum, þvottahúsi og geymslu. Rétt til að gefa svo hug- mynd um húsnæðið þá er þarna lítið eldhús með góðri eldunaraðstöðu, enda er þarna boðið upp á heitan mat í hádeginu. Þarna gætu matast í einu allt að 10 manns. Nú svo er sérstakt slökunar- og hvíldarherbergi sem er vinsælt og mikið í notkun, þá setu- stofa og borðstofa í opnu rúmgóðu rými, svo er þarna herbergi með listaaðstöðu sem býður upp á mikla möguleika og margir nýtt sér hana. Sem innskot þá voru ritstjóra sýnd nokkur málverk með ljómandi lista- handbragði og skemmtilegt var að virða fyrir sér kyrr- láta mynd og fallega og svo aðra ólgandi og upptætta gerðar af sama manni í mjög ólíku hugar- ástandi vægast sagt og hógværðartil- fínning kyrrðarinnar annars vegar og til- finningaólga hins óróa hugar hins vegar endurspegl- uðust ljóslega í myndunum. Þá er hin svokallaða bláa stofa, sem vel að merkja hefur verið blá frá upphafi, en það vissu þær stöllur ekki þegar þær ákváðu bláa litinn nú. Þetta er nú í raun reykherbergi eða þá sem aðstaða til að slappa af og þaðan einmitt er útsýnið allra best. Þaðan er svo hægt að fara upp á loft í lítið herbergi undir súð, sem leyndar- málaherbergi er kallað. Upphaflegur eigandi hússins, kona ein, átti það nefnilega til að fara þangað til þess að njóta næðis hjá kistunni sinni, sem þar geymdi margt minningatengt og enginn fylgdi henni þangað upp. Nú hverfa sumir öðru hvoru upp í þetta leyndarmálaherbergi, notalegt að leggja sig þar eða sitja í ró og næði, þar eru hljómflutningstæki einnig til afþreyingar. Þær upplýstu um það að þar fyndust stundum týndir gestir og allt gott um það að segja. Nú svo er að lokum smáskrifstofuaðstaða á hæðinni fyrir forstöðukonu og annað starfsfólk, svona afdrep í athvarfinu. Athvarfið hóf sem sagt starfsemi sína með opnu húsi 10. okt. sl. Það er opið alla virka daga frá kl. 9 til kl. 16. Fyrst og fremst er athvarf- ið ætlað fyrir Kópavogsbúa, en margir koma einnig frá Reykjavík. ær sögðu aðsóknina vissulega mega meiri vera og það yrði hún 40

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.