Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1999, Qupperneq 44
með að verða meira til umræðu eftir
að fatlaðir búa í auknum mæli í
heimabyggð.
Ofthefurheyrstsetningin. Enþað
er bara einn fatlaður hér, eða það er
enginn fatlaður hér og þess vegna
hefur ekkert verið gert til að laga
aðgengið.
Gott aðgengi er einfaldlega grund-
vallaratriði og þar að auki sjálfsögð
mannréttindi auk þess sem reglu-
gerðar- og lagaákvæði eru til staðar
sem allir þurfa að þekkja til að fylgja
málum eftir.
Almenn íþróttafélög;
Fleiri fatlaðir munu búa í heima-
byggð og því þarf að skapa aðstæður
til að fatlaðir fái íþróttatilboð við hæfi
um land allt. Þrátt fyrir að til staðar
séu íþróttafélög fatlaðra víða um land
eru þau ekki til í öllum bæjarfélögum.
Iþróttafélög fatlaðra eru sett upp þar
sem þörf er talin á en æskilegast er
að fatlaðir fái einnig íþróttatilboð
innan almennra íþróttafélaga.
í fámennum byggðarlögum er t.d.
ekki alltaf grundvöllur fyrir sérstök-
um íþróttafélögum fatlaðra og IF hef-
ur í mörgum tilvikum haft beint sam-
starf við þjálfara félaga á smærri stöð-
um vegna fatlaðra einstaklinga. Þjálf-
arar og kennarar þurfa því að vera til-
búnir til að taka á móti fötluðum ein-
staklingum í auknum mæli jafnt í
íþróttafélögin sem íþróttaskólana. IF
hefur reynt að útvega fræðsluefni
erlendis frá og nú nýlega var kynnt
spennandi fræðsluefni frá Astralíu
sem kynnt verður hér á landi.
Fleiri fatlaðir í almenna
skóla í heimabyggð:
Boðskiptaleiðir.
Boðskipti verða á milli fleiri aðila,
því nauðsynlegt að skapa skilvirkt
boðflæði á milli ÍF og þeirra sem hafa
umsjón með fötluðum nemendum.
Sérstaklega ef þessir nemendur fá
þessar upplýsingar ekki á öðrum vett-
vangi, eru t.d. ekki félagar í íþrótta-
félögum fatlaðra.
Nauðsynlegt er að upplýsinga-
flæði frá ÍF og til ÍF sé til staðar á
milli aðila sem málið varðar. Meiri
hætta er á að fötluð börn og unglinga
“týnist” í kerfinu og að erfiðara verði
að ná til þeirra t.d. þegar fram koma
tilboð sem þeim henta og/eða tilboð
um þátttöku í verkefnum sem tengjast
fötluðum börnum og unglingum.
Hjálpartæki
Ný hjálpartæki eru þróuð á ári
hverju til notkunar í íþróttastarfi og
ljóst er að til að fatlaðir geti orðið virk-
ir í skólaíþróttum þarf að gera ráð fyrir
því að einhver hjálpartæki séu til stað-
ar. Þær upplýsingar sem IF hefur
aðgang að á þessu sviði geta ekki
síður nýst sjúkraþjálfurum og öðrum
þeim sem vinna að endurhæfingu
fatlaðra almennt.
Alþjóðasamstarf
Málefni fatlaðra eru alþjóðleg þ.e.
eina leiðin til að afla sér nýrra upp-
lýsinga er oft að leita til aðila erlendis
sem fást við sömu málefni. Internetið
er þarna mikilvægur þáttur og sparar
rnikinn tíma þegar leitað er upplýs-
inga um ýmis málefni. Fyrir IF hefur
reynst ómetanlegt að geta sótt upp-
lýsingar erlendis á auðveldan og fljót-
legan með hjálp tölvupósts og
Intemetsupplýsinga. Þrátt fyrir að IF
sé tilbúið að aðstoða eins og unnt er
varðandi upplýsingar verður án efa oft
urn að ræða sérhæfð mál og persónu-
leg samskipti og því mikilvægt að
bein samskipti geti átt sér stað á milli
skóla innanlands og aðila erlendis.
Sérmenntað starfsfólk
Aukinn fjöldi fatlaðra í skólum
kallar á þörf fyrir fleira sérmenntað
starfsfólk og/eða fólk sem hefur
sérþekkingu á málum hvort sem um
er að ræða íþróttakennslu eða aðra
tíma.
IF hefur verið með námskeið í
íþróttum fatlaðra fyrir IKI svo og KHÍ
hin síðari ár og því líkur á að fleiri
séu meðvitaðir um að fatlaðir eiga að
vera virkir í tímum eins og aðrir nem-
endur en það hefur oft skort á slíkt
Félagsstarf aldraðra -
aðgengi öryrkja
Oft erum við hér á bæ innt eftir því hvaða möguleika öryrkjar eigi á
því að taka þátt í hinu líflega og fjölbreytta félagsstarfi aldraðra.
Einkum er það eldra fólk sem þó hefur ekki náð löggildingu í aldri sem
um þetta spyr.
Við höfum áður glögglega gjört grein fyrir því að í félagsstarfi aldraðra
í Gerðubergi eru engin aldurstakmörk og að sögn Guðrúnar Jónsdóttur
forstöðukonu þar af því fyrirkomulagi góð reynsla. Nú munu sækja
félagsstarf aldraðra þar 10-20 manns undir löggiltum aldri, öryrkjar sem
eðlilega sækja í þann góða félagsskap sem þar er.
Eins hefur hér verið greint frá því að annars staðar í félagsstarfi aldraðra
í borginni megi sækja um sérstaka undanþágu til þess að taka þátt í
félagslífinu og þá einkum við öryrkja miðað. I september sl. samþykkti
svo félagsmálaráð Reykjavíkurborgar nýjar reglur um aldurstakmörk í
félagsstarfi aldraðra hvað vissa þætti áhrærði og er samþykkt
félagsmálaráðs svohljóðandi:
1. Að fella niður aldurstakmörk í þá þætti félagsstarfsins sem nóg
pláss er í s.s. spil, bingó og þess háttar.
2. Að halda áfram reglu um 67 ára lágmarksaldur og búsetu í Reykjavík
til fæðiskaupa, námskeiða og hvers kyns kennslu sem eru verulega
niðurgreidd.
Við viljum með leyfi félagsmálaráðs vekja á þessu sérstaka athygli
því vitað er hversu dýrmætt mörgum það er að mega með slíkri þátttöku
rjúfa oft mikla félagslega einangrun.
Tvímælalaust teljum við þetta spor í rétta átt, vonum að einhverjir
megi njóta vel og vitum að þeim verður vel tekið í þeim þáttum
félagsstarfsins sem getið er um í lið 1 í samþykktinni. Þið, sem viljið
notfæra ykkur þetta, eigið leikinn. Og svo er Gerðubergið áfram með
sína góðu möguleika.
H.S.
44