Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1999, Blaðsíða 47
Ráðstefna
MG félagsins
Hinn 5. marz sl. hélt MG félag íslands hina merkustu ráðstefnu um
endurhæfingu MG sjúkra. Ráðstefnuna sóttu um 80 manns og tókst
hún hið bezta.
Olöf S. Eysteinsdóttir formaður félagsins setti ráðstefnuna, þakkaði
Helga Hróðmarssyni sérstaklega aðstoð alla og tilnefndi svo Garðar
Sverrisson ráðstefnustjóra. Gunnar Bragi Sveinsson aðstoðarm.
félagsmálaráðherra flutti kveðjur ráðherra og heillaóskir. Finnbogi
Jakobsson, taugasérfræðingur kynnti MG sjúkdóminn. Finnskur
taugasálfræðingur, Tarja Ketola, flutti erindi um endurhæfingu MG sjúkra
í Finnlandi og nafna hennar Salminen sagði frá reynslu MG sjúklings.
Síðan voru umræður og fyrirspurnir. Nánari fréttir af ráðstefnunni
bíða næsta blaðs.
H.S.
ÖRVI
Merki Örva.
• •
Frá Orva
Adögunum bárust hér á borð
fróðlegar, tölulegar upplýsingar
um starfsprófun og starfsþjálfun í
Örvaáárinu 1998.
Aðeins skulu hér færðar á blað
fáeinar tölur til fróðleiks lesendum.
62 nýttu sér reglubundna þjónustu
Örva á árinu, en til samanburðar voru
þeir 52 á árinu áður og enn færri árin
á undan.
Til viðbótar tók Örvi svo 10 ein-
staklinga í sumarvinnu.
Flestir þeirra sem í Örva eru hafa
greindarraskanir en einnig koma aðrar
fatlanir til.
Flestir skjólstæðingar voru úr
Kópavogi eða 24, 17 úr Hafnarfirði,
13 úr Reykjavík og 8 úr öðrum
nágrannasveitarfélögum.
I tölum um aldursdreifingu kemur
fram að 21 er á aldrinum 21-30 ára,
20 eru á aldrinum 31-40 ára, 10 frá
16-20 ára og 11 eru eldri en fertugir.
Þjálfunartími í Örva er allt frá eins
-3ja mánaða starfsprófun en hana
nýttu 10 sér og upp í nokkur ár, flestir
þó á bilinu frá 3ja til 12 mánaða eða
20.
Og svo að útskriftum vikið.
I atvinnu eða í annað atvinnuúr-
ræði fóru 16, þar af 4 í verndað úrræði,
3 hættu vegna heilsuleysis, og ein
vegna barnsburðar, 5 hættu að eigin
ósk, 3 fóru í skóla og tilboð hentaði
ekki einum.
Alls voru útskriftir 29, en 2 komu
aftur í Örva að loknum 3ja mánaða
reynslutíma. Þama er greinilega vel
að verki staðið og farsæld góð í fyrir-
rúmi.
Þeim í Örva er alls góðs árnað um
leið og framkvæmdastjóranum,
Kristjáni Valdimarssyni, eru þakkaðar
ágætar og fræðandi upplýsingar.
H.S.
Hlerað í hornum
Kennarinn var að skila af sér úrslitum
í stærðfræðiprófi og var hyggju-
þungur mjög: “Ef svona heldur fram
þáfellura.m.k. 70% af bekknum”. Þá
skellti einn nemandinn upp úr og
sagði hlæjandi: “Það eru nú ekki einu
sinni 70 í bekknum”.
* * *
Bóndi var að segja nágranna sínum
frá: “Konan mín fór með mjólkur-
brúsana á brúsapallinn, rann þar til og
missti einn brúsann yfir sig. En það
var mikil guðs mildi að ekki fór dropi
niður af mjólkinni.” “En hvað með
konuna?”, spurði nágranninn. “Ja,
hún liggur nú brotin á spítala,” sagði
bóndi.
* * *
Leiðtogi sértrúarsafnaðar eins var afar
umvöndunarsamur við þá sem hann
umgekkst. Einn daginn mætti hann
nágranna sínum vel drukknum og hóf
umvöndunarræðu sína svo: “Ja, ekki
eigum við eftir að vera saman á himn-
um, Ragnar”.
“Jæja,” sagði sá kófdrukkni, “hvað
hefurðu nú gert af þér.?”
* * *
Sá litli var 5 ára gamall og var að fara
í sunnudagaskólann í fyrsta sinn.
Presturinn fór eðlilega að fræða
börnin um Jesúm Krist, sem bömin
mörghversögðustþekkja vel. Sálitli
var ekki nógu viss um Jesúm en hann
var nokkuð frakkur og til að láta nú
prestinn vita að hann vissi nú sitt af
hverju þá gall allt í einu í honum yfir
hópinn: “En ég veit hver Mikki mús
er.”
* * *
Nemandinn var með alls kyns fíflalæti
í bekknum og kennarinn hastaði á
hann með þessum orðum: “Arni, af
því þú ert nú einu sinni ekki kennari
hér þá skaltu hætta að láta eins og
fffl.”
* * *
Við endursendingar á pósti er ævin-
lega merkt við hvers vegna viðkom-
andi bréf eða blað hafi ekki komist til
skila. Endursent Fréttabréf var annars
vegar merkt í dálkinn: Látinn, en
einnig: Farinn, ekki vitað hvert.
* * *
Orð geta haft ólíka merkingu, oft
ræður starfsetning því hver merking
á að vera, sem auðvitað kemur ekki
fram í mæltu máli. Þannig var lögð
hin versta merking í orðið skýtur þeg-
ar hún Stína var að dást að veiði-
mennsku mannsins síns, hans Bjössa.
“Hann Bjössi minn skýtur, ég steiki.”
* * *
Kórstjórnandinn var að æfa fyrir
konsertinn, sem átti að slá í gegn í
kaupstaðnum. Hins vegar mættu
menn illa á æfingar, en þó brást það
ekki að Konráð kaupmaður mætti.
Eitt kvöldið þegar óvenjuilla var mætt
fór kórstjórinn að hæla Konráð fyrir
mætingarnar, en þá sagði Konráð:
“Mér finnst ég nú verða að mæta á
æfingarnar fyrst ég kemst ekki á
konsertinn sjálfan”.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
47