Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1999, Blaðsíða 49
Leiðrétting
Ritstjóra varð heldur betur á í
messunni, þegar hann var í of
miklum flýti og tímaleysi að skrifa um
hið ágæta þing SÍBS - hið 31. í röð-
inni. Hann þykist að vísu geta kennt
öðru um sumt, en ekki þó viðmælanda
mínum, skólafélaga mínum frá Eiðum
fyrir margt löngu, Jóni Þór Jóhanns-
syni, sem ritstjóri gjörði í greininni
meðábyrgan fyrir öllu saman. Og
koma hér síðbúnar leiðréttingar.
Einn mætan mann vantaði í upp-
talningu á stjórn SÍBS, meðstjórn-
andann Hannes B. Kolbeins og í raun
undarlegt að gleyma svo vörpulegum
manni sem ritstjóri átti að vita að
þarna væri innanborðs.
I handriti ritstjóra stendur skýrum
stöfum að “fjárhagsstaða” SÍBS sé
góð svo sem rétt er, en einhvers staðar
í meðförum hefur þetta breyst í “fjár-
hagsaðstoð”, og biðst ritstjóri einlæg-
lega undan því að hafa látið að því
liggja að SÍBS lifði á bónbjörgum.
S vo er það nú myndin góða, mynd
af núverandi stjórn SIBS, fengin á
síðustu stundu inn í prentsmiðju og á
þeirri mynd er varastjórnin (og Hann-
es B. Kolbeins auðvitað) með ásamt
aðalstjórn, en hennar hvergi í texta
getið, en hana skipa: Sigrún Bjarna-
dóttir, Thelma Grímsdóttir og Vil-
hjálmur Vilhjálmsson.
Svona nokkuð gjörir maður auð-
vitað ekki, en allra lakast þótti mér
þó þegar ég gjörði minn gamla, góða
skólafélaga Jón Þór Jóhannsson að
skrifstofustjóra SÍBS þar sem ég veit
gjörla að hann er fulltrúi stjórnar
SIBS, á a.m.k. að vera það fullkunn-
ugt.
“Bráðræðið hefnir sín,” sagði
gömul vinkona mín eystra löngum við
mig í bernsku, en ekki sýnist sú
aðvörun hennar hafa skilað sér betur
en þessi afglöp bera um vitni.
En afsökunarbeiðni skal borin
fram til allra hlutaðeigandi.
H.S.
Svör við gátum
1 ■ Dagsferð.
2. Snigillinn.
3. Og.
4. Maðurinn óstöðugur, flaskan
stöðug.
5. Andann.
6. Bær.
Sigurlaugur Elíasson skáld og
myndlistarmaður:
Tvö Ijóð
Lækningalauf
Krukkan með
Ijónslappanum
lífgar þó altént
upp á hilluna,
gefur kofaþilinu
græðandi styrk.
En jafnsléttan orðin mér
nógu drjúg fyrir fæti,
illfærukynnin
endurnýja ég ekki.
Telaufið
hef ég tínt mér
meira til gamans
horfi á krukkuna,
hita víst ekki
teið í sumar.
Undir Svartfelli
Úr miðri skriðu
fylgist ég með henni
hverfa út úr skarðinu
tindurinn verður henni léttur.
Sólin lýsir skinin
hreindýrsbeinin
við hlið mér.
Hefði einhvern tíma
viljað fara lengra
en nú rek ég aðra
á fjöll.
Bíð hér með beinunum.
Sigurlaugur Elíasson.
Um höfundinn: Sigurlaugur lauk námi við MHI 1983 og seinna námi
í uppeldis - kennslufræðum við HI. Hann hefur sent frá sér 6 ljóðabækur,
sú síðasta hét Skjólsteinn og kom út á sl. ári. Þessi ljóð tvö eru úr
handriti sem fengið hefur nafnið Græna skyggnishúfan og mun koma
út í ár. Ljóðin voru áður birt í Meginstoð, málgagni MS félagsins, þar
slæddust prentvillur inn í annað Ijóðanna.. Ljúft er að fá þessa tæru
ljóðrænu birta hér.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
49