Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1999, Qupperneq 51
• •
Ofugmælavísur
frá Elínu fengnar
Hún Elín Þorbjarnardóttir gjörir það ekki endasleppt við Fréttabréf
ÖBI, en því hefur hún áður lagt hið ágætasta lið svo sem lesendur
þekkja. I þetta sinn sendi hún Elín öfugmælavísur sem birtast nú og í
næsta blaði. En hún lét ekki þar við sitja, því hún sendi okkur einnig
gátur og ekki nóg með það. Hlerað í hornum fékk bærilegan liðsauka
frá Elínu enda sagði ég við Kristínu okkar Jóns, systurdóttur hennar:
Það er ekki amalegt að hafa komist í handraðann hennar Elínar.
Allra best er ull af sel
og æðardúnn í þvöru,
maðkar syngja mikið vel
og mýsnar éta tjöru.
Hrossatað og hár af sel
helst er börnum gefið,
mjólkin logar mikið vel
og marfló best í nefið.
Best er að hafa birki í Ijá
bönd úr sandi flétta,
harðar eggjar hnefum slá,
hátt úr lofti detta.
Hundar elska hrafninn mest,
hleypur jarðföst þúfa,
tófa er í tryggðum best,
tálsömust er dúfa.
Best er að vera bráður í raun
og býta illt við marga,
véla af öðrum verkalaun
og voluðum lítið bjarga.
Blý er best í beitta þjöl,
boginn stein má rétta,
á fjöllum vaxa flestöll söl,
í fjörunni berin spretta.
Eitur er best í augnarann
ýrt með dropa feitan,
það er hollt fyrir þyrstan mann
að þamba kopar heitan.
Gott er að láta salt í sár
og seila fisk með grjóti,
best er að róa einni ár
í ofsaveðri á móti.
í bróðerni við borð ég sá
bíta af sama diski
krumma, örn og ketti þrjá,
kom vel saman hyski.
Hálfdauðan ég sauðinn sá
saltaðan hjá tröllum,
hestar skeiða um höfin blá,
hoppa skip á fjöllum.
Kisa spinnur bandið best,
baulur kunna að saga,
hrafninn oft á sjónum sést
synda og fiska draga.
Leitin oftast lánast best
að Ijúka í flýti störfum.
Atorkan er allra verst
í afreksverkum þörfum.
Hafa þeir dún í hafskipin,
hreina gler í möstrin stinn,
elta steina eins og skinn,
ólar rista í fuglsbeinin.
Og meira af svo ágætu efni
næst.
Ágætt safn í einum pakka
Elín hingað sendi mér.
Sendinguna þýtt ég þakka,
þetta gæða fóður er.
Úr Mannrétt-
indayfirlýsingu
Sameinuðu
þjóðanna
Inngangsorð
Það ber að viðurkenna, að hver maður
sé jafnborinn til virðingar og réttinda,
er eigi verði af honurn tekin, og er
þetta undirstaða frelsis, réttlætis og
friðar í heiminum.
16. gr.
3. Fjölskyldan er í eðli sínu frumein-
ing þjóðfélagsins, og ber þjóðfélagi
og ríki að vernda hana.
22. gr.
Hver þjóðfélagsþegn skal fyrir
atbeina hins opinbera eða alþjóða-
samtaka og í samræmi við skipulag
og efnahag hvers ríkis eiga kröfu á
félagslegu öryggi og þeim efnahags-
legu, félagslegu og menningarlegu
réttindum, sem honum eru nauðsyn-
leg til þess að virðing hans og þroski
fái notið sín.
25. gr.
1. Hver maður á kröfu til lífskjara,
sem nauðsynleg eru til verndar heilsu
og vellíðan hans sjálfs og fjölskyldu
hans. Telst þar til matur, klæðnaður,
húsnæði, læknishjálp og nauðsynleg
félagshjálp, svo og réttindi til öryggis
gegn atvinnuleysi, veikindum, örorku,
fyrirvinnumissi, elli eða öðrum áföll-
um, sem skorti valda og hann getur
ekki við gert.
2. Mæðrum og börnum ber sérstök
vernd og aðstoð. Öll börn, skilgetin
sem óskilgetin, skulu njóta sömu
félagsverndar.
27. gr.
1. Hverjum manni ber réttur til þess
að taka þátt í menningarlífi þjóð-
félagsins, njóta lista, eiga þátt í fram-
förum á sviði vísinda og verða aðnjót-
andi þeirra gæða, er af þeim leiðir.
Oryrkjabandalag
Islands
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
51