Bændablaðið - 19.03.2020, Blaðsíða 1
6. tölublað 2020 ▯ Fimmtudagur 19. mars ▯ Blað nr. 559 ▯ 26. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
Þrátt fyrir veirufaraldurinn COVID-19 hefur töluverður fjöldi ferðamanna heimsótt Ísland undanfarnar vikur. Fjöldi erlendra ferðamanna var m.a. að skoða Gullfoss í glampandi sól og fallegu
veðri um síðustu helgi. Létu þessir gestir okkar smá frost ekki á sig fá, þó það hefði sín mögnuðu áhrif með mikilfenglegri listsköpun í fossinum sjálfum. Mynd / Hörður Kristjánsson.
Bændur þurfa að standa vörð
um fæðuöryggi þjóðarinnar
– Oft var þörf en nú er nauðsyn, segir Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands
Við bændur þurfum að standa
vörð um fæðuöryggi þjóðarinnar
eins og okkur er frekast unnt. Oft
var þörf en nú er nauðsyn. Aldrei
áður hefur hlutverk bænda verið
mikilvægara í samfélagslegu til-
liti,“ segir Gunnar Þorgeirsson,
for maður Bændasamtaka Íslands.
„Við lifum í dag á sérstökum
tímum, aldrei áður í sögu lýðveldis-
ins hefur verið sett á samkomubann
allrar þjóðarinnar. Ferðamönnum
fækkar, veitingastaðir fá færri gesti,
takmarkað aðgengi er að þjónustu
og svo mætti lengi telja. Ekki er
fyrirséð hversu lengi við þurfum
að reka okkar samfélag við þessar
takmarkanir.”
Bændur hugi líka
að eigin heilbrigði
„Nauðsynlegt er fyrir bændur lands-
ins að huga að eigin heilbrigði og
huga að nærsamfélaginu. En eins
og Víðir Reynisson yfirlögreglu-
þjónn sagði þá erum við öll al-
mannavarnir. Ég vil benda fram-
leiðendum landbúnaðarafurða á
vef Bændasamtakanna þar sem
búið er að safna saman leið-
beiningum fyrir framleiðendur
í samvinnu við Matvælastofnun
um hvernig þeir skulu haga
störfum sínum ef til sýkingar
kemur.“
Bændasamtökin settu saman
tvo hópa strax í síðustu viku
vegna COVID-19. Um er að
ræða viðbragðsteymi Bænda-
samtaka Íslands og starfs hóp
sem kanna á með afleysinga þjónustu
í samvinnu við Búnaðarsamböndin
og Samtök ungra bænda. Upp-
lýsingar um þessa hópa má nálgast
á vef Bænda samtakanna.
Framleiðsla matvæla
verði hnökralaus
„Á þessum tímum er nauðsynlegt
að við sinnum okkar búum af alúð
svo framleiðsla matvæla verði
hnökralaus. Einnig vil ég skora á
bændur að sinna nágrannagæslu
í sínum sveitum og vera í góðu
sambandi við nágranna þannig að
einangrun verði ekki íþyngjandi
fyrir samfélögin í heild sinni. Enn
og aftur sannast að við sem þjóð
verðum að standa vörð um eigin
framleiðslu matvæla og afurða
svo við verðum sem sjálfbærust á
þeim afurðum sem við neytum dags
daglega. Íslenskt, já takk,“ segir
Gunnar Þorgeirsson.
Afleysingaþjónusta við bændur
Guðbjörg Jónsdóttir, verkefna stjóri
hjá Bændasamtökum Íslands, segir
að afleysingaþjónustan sé fyrst og
fremst hugsuð sem bakhjarl fyrir
einyrkja, eða þar sem fáir standa
að búrekstri.
„Margir eru þegar með bak-
hjarla hjá ættingjum, nágrönn-
um eða eru þegar með starfs-
mann sem getur sinnt afleys-
ingu. En það eru til bændur
sem eru í þessari stöðu og
það er líka hætta á að þessir
fyrrgreindu aðilar geti veikst
af COVID-19 á sama tíma
og viðkomandi bóndi sökum
tengsla. Þetta er því fyrst og
fremst hugsað sem öryggisnet
og til að styðja við andlega líðan
bænda, til að þeir viti af þessum
stuðningi sem þeir geti leitað til ef
á þarf að halda.
Verkefnið hefur líka félagslegt
gildi og má nefna að Samtök ungra
bænda (SUB) hafa komið sterkt inn
og boðið fram sína aðstoð,“ segir
Guðbjörg.
Getur gagnast Almanna -
vörnum ef illa fer
Guðbjörg segir að ef allt fari á
versta veg þá geti þessi listi gagnast
Almannavörnum og þá sé búið að
vinna ákveðna forvinnu.
„Hugmyndin er að auglýsa
eftir aðilum til starfa sem geta
tekið tímabundna afleysingu að
sér. Auglýst verður á vef Bænda-
samtak anna, Bændablaðinu og
öðrum vefmiðlum, þar sem allar
umsóknir og fyrirspurnir fara á
netfangið afleysing@bondi.is.
Jafnframt verður leitað sérstaklega
til félagsmanna SUB og nemenda í
LbhÍ, auk þess er fyrirhugað að senda
fyrir spurn til Vinnumálastofnunar
um hvort að þar sé fólk á skrá sem
hefði áhuga. Þegar komnir verða
einstaklingar á skrá sem eru tilbúnir
til starfa verður opnað fyrir þjónustu
við bændur. Nánara skipulag og
útdeiling verk efna verður á höndum
starfandi búnaðarsambanda úti um
landið.
Í hópnum sitja auk mín fram-
kvæmda stjórar búnaðar sam band-
anna; þau Anton Torfi Bergsson,
Anna Margrét Jónsdóttir, Sigurgeir
Hreinsson og Sveinn Sigur munds-
son, auk varaformanns SUB,
Steinþórs Loga Arnarssonar,“ segir
Guðbjörg Jónsdóttir.
/HKr./smh
Gunnar Þorgeirsson. Guðbjörg Jónsdóttir.
Landsmót hestamanna verð-
ur haldið 6.–12. júlí á Hellu og
undirbúningur gengur vel
2 26
Hönnuði Fuzzy-
gærukollsins er
boðið á EXPO 2020
í Dubai í haust
Sólheimar í Grímsnesi fagna
90 ára afmæli á árinu
28–29