Bændablaðið - 19.03.2020, Blaðsíða 29

Bændablaðið - 19.03.2020, Blaðsíða 29
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. mars 2020 29 skemmri tíma,“ segir Sigurjón og bætir við að rekstur Sólheima sé viðkvæmur og það megi lítið út af bregða í starfseminni. „Í dag er reksturinn í jafnvægi og nýtur þess skilnings sem nauðsynlegur er meðal hagaðila til að tryggja áframhaldandi blómlegt starf á þessum stað sem er í raun eitt af óskabörnum þjóðarinnar en við finnum fyrir því að Sólheimar njóta mikils trausts og velvildar meðal alls almennings.“ Glæsileg afmælisdagskrá fram undan Í tilefni af 90 ára starfsafmæli Sólheima hefur afmælisnefnd verið að störfum frá því fyrir áramót sem leidd er af Magnúsi Ólafssyni, varaformanni stjórnar Sólheima. Metnaðarfull dagskrá er að taka á sig mynd og eins og krist­ allast hefur í starfsemi Sólheima frá upphafi mun menning og listir leika þar stórt hlutverk. Fyrirhugað er að menningar­ veisla Sólheima verði sett 6. júní með glæsilegri afmælis­ dagskrá sem mun lifa fram í lok ágúst með veglegum tónleikum í Sólheimakirkju alla laugardaga í sumar. Sögusýning í myndum og máli sem unnin er í samstarfi við Reyni Pétur um starf Sesselju á Sólheimum og framlag Lionsklúbbsins Ægis til starfsins allar götur frá árinu 1957. Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra verður við­ staddur vígslu Péturstorgs til að heiðra störf Péturs Sveinbjarnarsonar fyrir Sólheima, en hann stýrði starfi Sólheima í hartnær 40 ár. Við það tækifæri verður afhjúpað nýtt listaverk sem er gjöf listamannsins Sigurðar Guðmundssonar til Sól heima í tilefni afmælisársins. Hátíðarsýning verður í Þjóð­ leik húsinu á leikverki sem nú er verið að æfa með íbúum og starfsmönnum Sólheima og mun eiga skírskotun til sögu og starfs Sesselju á Sólheimum. Ný umhverfissýning verður opnuð í Sesseljuhúsi við setningu menningarveislu í byrjun sum­ ars og forsætisráðherra Íslands, Katrín Jakobsdóttir, mun sækja Sól heima heim þann 4. júlí sem verður dagurinn sem hin form­ legu hátíðarhöld verða haldin í tilefni afmælisins. Vígslubiskup í Skálholti mun svo messa í Sólheimakirkju á sjálfan afmæl­ isdaginn 5. júlí. Þá stendur til að bjóða öll um íbúum í Grímsnes­ og Grafnings­ hreppi í opið hús á Sólheimum og þiggja leiðsögn, kynningu og kaffi ásamt því að félögum í Lionsklúbbnum Ægi verður gert hátt undir höfði. „Þetta er hvergi nærri tæmandi upptalning en gefur þó til kynna að öllu verður tjaldað til til að gera afmælisárið minnisstætt öllum þeim sem kjósa að taka þátt í því með okkur,“ segir Sigurjón Örn, augljóslega spenntur fyrir þeirra glæsilegu dagskrá, sem verður boðið upp á. Næstu 90 árin? Að lokum er Sigurjón Örn beðinn um að skoða í kristalkúluna sína og spá fyrir um hvernig starfsemin á Sólheimum verður eftir önnur 90 ár, eða árið 2110. „Já, þú segir það, ég held að það verði áfram unnið í anda Sesselju næstu 90 árin. Arfleifð hennar er svo sterk og hugmyndir hennar sem eitt sinn þóttu svo framandi eru svo „main stream“ í dag sem gerir það að verkum að Sólheimar munu ekki lengur að þurfa að berj­ ast fyrir tilvist sinni. Ég tel að næstu 90 árin keppist menn við að styrkja starfið enn frekar og nýta þau ótal tækifæri sem búa í sögu og ímynd staðarins. Enginn er spámaður í sínu föð­ urlandi en Sólheimum hefur lengi verið hampað erlendis og til okkar er horft sem eins af fyrstu sjálf­ bæru samfélögum í heimi og fyrir­ mynd þeirra sem á eftir komu. Slík samfélög njóta mikils meðbyrs og skilnings í dag, sem mun án efa efla okkar góða starf. Þörfin fyrir fagmennsku, virðingu, listsköp­ un og kærleika mun áfram eiga sinn stað í hjörtum fólks en það er einmitt það sem Sólheimar standa fyrir og munu gera um ókomna tíð.“ /MHH Vigdísarhús var vígt á Sólheimum á 78 ára afmæli staðarins 5. júlí 2008. Hér er Vigdís Finnbogadóttir, sem húsið er nefnt eftir, og herra Sigurbjörn Einarsson biskup, sem flutti húsblessun, en hann lést 28. ágúst 2008, þá 97 ára að aldri. Frú Vigdís fagnar 90 ára afmæli 15. apríl næstkomandi. Mynd / MHH Reynir Pétur Ingvarsson er líklega þekktasti íbúinn á Sólheimum, en hann gekk hringinn í kringum landið til að safna fyrir íþróttahúsi á Sólheimum. Hér er hann með Hanný sinni á góðri stundu. Mynd / MHH Það er mikið af frábæru listafólki á Sólheimum. Hér er einn listamaðurinn við verk sín. Mynd / MHH KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10 104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is Opnar stöðvar Stöðvar í húsi Stöðvar í gám Aukabúnaður eins og sjálfvirkur skiptirofi og fleira Öflug og góð þjónusta Gerðu kröfur — hafðu samband við Karl í síma 590 5125 eða sendu línu á kg@klettur.is og kynntu þér þína möguleika. Allar stærðir af AJ Power rafstöðvum: Sesseljuhús á Sólheimum. Mynd / HKr. Frá Sólheimum. Myndir / HKr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.