Bændablaðið - 19.03.2020, Blaðsíða 13
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. mars 2020 13
VÖNDUÐ VERKFÆRI FÁST Í SINDRA
Skútuvogi 1 - Reykjavík I Viðarhöfða 6 - Reykjavík I Bæjarhrauni 12 - Hafnarfjörður | Bolafæti 1 - Reykjanesbæ
www.sindri.is / sími 575 0000
VATNSPÍPUTÖNG 150MM
7 skúffur
1/4”, 3/8” og 1/2” topplyklasett
Fastir lyklar, sexkantar, skrúfjárn,
djúpir toppar, höggskrúfjárn,
öfuguggasett, slaghamar,
splittatangir, tangir, bitar og fl.
VERKFÆRASKÁPUR 320 VERKFÆRI
1/4” toppar, E-toppar, hjöruliður,
skrall og bitahaldarar.
1/2” toppar, torx E-toppar og
fleira.
VERKFÆRASETT 1/4” & 1/2” 96 STK
vnr IBTGCAI9601vnr IBTGT-32010
Alhliða topplyklasett
1/4” sexk. toppar 4-14mm
3/8” sexk. toppar 10-19mm
1/2” sexk. toppar 10-32mm
TOPPASETT 1/4” 3/8”1/2” 200 STK
Toppar: 4 - 32mm
Toppar djúpir: 6 - 22mm
E- Toppar: E4 - E20
Framlengingar: 2”, 4”, 5” og 10”
Kertatoppar 16 og 21mm
Fastir lyklar: 6 - 24mm
VERKFÆRASETT 150 HLUTA 1/4” & 1/2”
vnr IBTGCAI150Rvnr KW1037
14 metrar
Með veggfestingu
230 V
3 X 1,5mm
RAFMAGNSKEFLI
SNITTTAPPA OG BAKKASETT
Toppar: 4 - 32mm
Toppar djúpir: 4 - 22mm
E-toppar: E4 - E24
Framlengingar 2”, 4”, 5”, 6” og 10”
Fastir lyklar: 8 - 22mm
VERKFÆRASETT 216 HLUTA 1/4”, 3/8” OG 1/2”
vnr IBTGCAI216Rvnr TRI03315D
7.242 m/vsk
Fullt verð 10.346
19.900 m/vsk
Fullt verð 32.519
4.448 m/vsk
Fullt verð 5.560
4.145 m/vsk
Fullt verð 5.181
3.976 m/vsk
Fullt verð 4.970
vnr 8701150SB
vnr IBTJGAI4001 vnr IBTDJAC0106
vnr 8701180SB vnr 8701250SB
VATNSPÍPUTÖNG 180MM VATNSPÍPUTÖNG 250MM
9.175 m/vsk
Fullt verð 12.234
32.133 m/vsk
Fullt verð 42.845
33.450 m/vsk
Fullt verð 47.785
17.484 m/vsk
Fullt verð 26.899
208.699 m/vsk
Fullt verð 245.529
23.081 m/vsk
Fullt verð 30.775
SKRÚFSTYKKI 6” VÉLAGÁLGI 2T
vnr T32002CE
39.900 m/vsk
Fullt verð 61.816
Samanbrjótanlegur 2 tonna
vélagálgi.
2.000 Kg
Low Profile - Quick lift
Hægt að snúa 360°
Áslaug Alda stýrir seyruverkefni
sex sveitarfélaga á Suðurlandi
Áslaug Alda Þórarinsdóttir
hefur verið ráðin verkefnisstjóri
seyru verkefnisins svokallaða,
sem sex sveitarfélög í
Árnessýslu, auk Ásahrepps í
Rangárvallasýslu standa að.
Áslaug Alda er frá Spóastöðum
í Bláskógabyggð og bý þar núna
með sambýlismanni sínum, Ingva
Rafni Óskarssyni, og sonum
þeirra, þeim Aroni Gauta og
Elvari Andra, sem eru fjögurra ára.
Helstu verkefni Áslaugar Öldu
verða að halda utan um verkefnið
í heild sinni, koma upplýsingum
til fasteignaeigenda ef illa gengur
að losa rotþróna hjá viðkomandi,
taka við ábendingum og öllu því
sem betur má fara í tengslum við
tæmingu, sinna fræðslu og koma
almennum og sértækum upplýs-
ingum til eigenda rotþróa. Þá er
hluti starfsins að sjá um skráningu
í gagnagrunn enda er mikilvægt
að allar upplýsingar séu tiltækar
þegar á þarf að halda svo þjón-
ustan verði góð og hnökralaus.
Sveitarfélögin, sem standa að
verkefninu eru Bláskógabyggð,
Hrunamannahreppur, Skeiða- og
Gnúpverjahreppur, Grímsnes og
Grafningshreppur, Flóahreppur og
Ásahreppur.
„Nýja starfið leggst mjög vel
í mig og er mín helsta starfsstöð
á Borg í Grímsnesi þar sem tekið
hefur verið mjög vel á móti mér
og líður mér strax mjög vel þar.
Ég mun samt koma til með að vera
á flakkinu og er nú þegar búin að
fara og heimsækja allar skrifstofur
sveitarfélaganna, sem eru í verk-
efninu,“ segir Áslaug Alda.
/MHH
Stranddagur
í Flórahreppi
Sveitarstjórn Flóahrepps hefur
samþykkt fjárframlag til þess að
skipuleggja stranddag.
Mun framlagið renna til
vinnuskóla og starfsmanna sveitar-
félagsins til þess að skipuleggja
viðburðinn, ásamt þeim íbúum sem
vilja taka þátt í verkefninu í júní
næstkomandi. Taka þarf tillit til
sjávarfalla og verður tímasetning
nánar ákveðin þegar nær dregur.
Á deginum verður allt rusl á
viðkomandi svæði hreinsað. /MHH
Nýr hótelstjóri, Thelma Theodórs
dóttir, hefur verið ráðin á Foss
hótel Reykjavík, sem er stærsta
hótel landsins með alls 320 her
bergi auk fullkominni funda og
ráðstefnuaðstöðu.
Einnig rekur hótelið Bjórgarðinn
og hinn rómaða veitingastað Haust
Restaurant. Hótelið er hluti af
Íslandshótelum sem er stærsta hót-
elkeðja landsins.
Thelma hefur starfað hjá Íslands -
hótelum frá árinu 2015 þegar hún
kom að opnun Fosshótels Reykjavík
og gegndi þar stöðu aðstoðar-
hótelstjóra til ársins 2018. Þar
kom hún einnig að rekstri Haust
Restaurant og Bjórgarðinum.
Thelma tók í framhaldi við
sem hótelstjóri á Hótel Reykjavík
Centrum í mars 2018 ásamt rekstri
á veitingastöðunum Uppsölum og
Fjalakettinum.
Thelma hefur setið í fagnefndum
Íslandshótela og komið að
stefnumótun og innleiðingum ferla
hjá hótelkeðjunni. Að auki starfar
Thelma sem kennari í hótelstjórnun
og veitingahúsarekstri við Opna
háskólann í Reykjavík í samstarfi
við César Ritz háskólann í Sviss.
/MHH
Fosshótel í Reykjavík:
Thelma er nýr
hótelstjóri
Thelma Theodórsdóttir, nýr hótel
stjóri Fosshótela í Reykjavík.
Mynd / Sigurjón Ragnar
Áslaug Alda, sem stýrir seyruverkefn
inu, en tilgangur verkefnisins er að
standa sameiginlega að söfnun og
meðhöndlun á seyru, sem er síðan
notuð til uppgræðslu á hálendinu.