Bændablaðið - 19.03.2020, Blaðsíða 25
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. mars 2020 25
Um er að ræða 390,5 fm. stálgrindarhús sem byggt var árið 1986,
ásamt 94,2 fm. sambyggðri íbúð sem einnig var byggð árið 1986
og 28 fiskeldiskerjum sem eru 20 rúmmetrar hvert.
Húsið er klætt að utan með bárujárni og bárujárn er einnig á þaki.
Gluggar og gler eru í lagi að sögn eiganda. Gólfplata er steypt og hitalögn
er í allri plötunni. Anddyri er flísalagt og einnig kaffistofa. Í kaffistofunni
er eldri innrétting. Eldissalurinn er með 30 kerjum sem eru 2 rúmmetrar
hvert. Innaf eldissalnum er klaksalur með 18 sjö bakka rennum. Búið
er að setja tvo yfirbyggða gáma utan við klaksalinn og er þar einnig
klakaðstaða. Verkstæði er í enda hússins. Húsið er upphitað með affalli
hitaveitunnar á svæðinu.
Lóðin er 60.000 fm. leigulóð. Á lóðinni standa tvö dæluhús byggð 1986
sem eru 7,8 fm. hvort auk rafstöðvarhúss sem er 14,4 fm. byggt árið
1987. Rafstöðin er nýleg og er um 60-70 kw.
Fiskeldisstöðin Laugar í Rangárþingi ytra
Hallgrímur Óskarsson,
löggiltur fasteignasali.
Símar 480 2902 eða 845-9900
GRÆNT ALLA LEIÐ
Taktu þátt – www.byggdir.is
www.byggdir.is/english
Mundu eftir könnuninni
Byggðafesta og búferlautningar: Íslensk sveitasamfélög
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
KEÐJUR OG
KEÐJUVIÐGERÐAREFNI
GOTT ÚRVAL
Nánari upplýsingar gefur:
Grétar Hrafn Harðarson
S: 892-1480
Nf: gretarhrafn@simnet.isLYSTUGT FÓÐUR, ÖRUGGT FÓÐUR
ALÞINGI&EIGNARHALD Á JÖRÐUM
Frumvarp um breytingar á jarðalögum:
Auka á gagnsæi í eignarhaldi á landi
Frumvarp forsætisráðherra um
breytingu á lögum um eignarráð
og nýtingu fasteigna er komið úr
samráðsgátt stjórnvalda og fer nú
til frekari vinnslu, en 12 umsagnir
bárust um frumvarpið. Markmið
þess er meðal annars að styrkja
löggjöf um jarðir, land og aðrar
fasteignir og í því felast bættir
möguleikar stjórnvalda á yfirsýn
og stýringu slíkra málefna.
Frumvarpið felur í sér breytingar
á fjórum lagabálkum; um
eignarrétt og afnotarétt fasteigna,
þinglýsingalögum, lögum um
skráningu og mat fasteigna og
jarðalögum. Breytingarnar á
jarðalögum eiga við um allt land
utan þéttbýlis sem skipulagt hefur
verið fyrir landbúnað og aðra
starfsemi. Þær eiga einnig við um
öll lögbýli án tillits til þess hvort þau
séu í dreifbýli eða þéttbýli.
Undanþágur erlendra
aðila til eignarréttar á Íslandi
Í gildandi lögum er gert ráð fyrir
að ráðherra sé heimilt að veita
aðilum undanþágu sem ekki eru
íslenskir ríkisborgarar eða eiga hér
lögheimili og eru utan Evrópska
efnahagssvæðisins, til að eignast
land eða hafa afnotarétt af landi.
Tiltekin eru tvö tilvik þar sem
ráðherra getur vikið frá þessum
skilyrðum. Annað er ef umsókn
kemur frá þeim sem hefur rétt til að
stunda atvinnurekstur hér á landi og
vill öðlast eignarrétt eða afnotarétt
yfir fasteign til beinnar notkunar
í atvinnustarfsemi sinni eða til að
halda þar heimili. Hitt tilvikið segir
einfaldlega: „ef annars þykir ástæða
til,“ sem þykir of matskennt orðalag.
Í frumvarpinu er lagt til að breyta
orðalaginu í þessum ákvæðum.
Ráðherra verður þannig heimilt að
veita undanþágu í tveimur tilvikum;
þegar um umsókn er að ræða frá
einstaklingi eða lögaðila sem er
nauðsynlegt að öðlast eignarrétt
eða afnotarétt yfir fasteign ásamt
fasteignaréttindum sem tilheyra
henni til beinnar notkunar í
atvinnustarfsemi sinni. Hins vegar
samkvæmt umsókn frá einstaklingi
ef hann telst hafa sterk tengsl við
Ísland, svo sem vegna hjúskapar við
íslenskan ríkisborgara.
Á lögbýlum verði
landbúnaður stundaður
Meðal helstu atriða í breytingum á
jarðarlögum er að í fimmtu grein
frumvarpsins er gert ráð fyrir
breytingum á ákvæðum varðandi
lögbýli, þannig að til þeirra verði
einungis stofnað til starfsemi
á sviði landbúnaðar – sem er
samkvæmt skilgreiningu hvers
konar varsla, verndun, nýting og
ræktun búfjár, ferskvatnsdýra,
lands og auðlinda þess til
atvinnu- og verðmætasköpunar,
matvælaframleiðslu og þjónustu er
tengist slíkri starfsemi.
Í sjöundu grein er gert ráð
fyrir samþykki sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra fyrir ráðstöfun
á beinum eignarrétti eða afnotarétti
jarða til lengri tíma en fimm ára yfir
fasteignum sem falla undir gildissvið
laganna. Þeim sem ber skylda til að
afla þessa samþykkis ráðherra er
skipt í þrjá flokka. Í fyrsta lagi ef
fasteign er lögbýli og þannig háttar
til að viðtakandi réttar og tengdir
aðilar eiga fyrir lögbýli, eitt eða
fleiri, sem eru samanlagt 50 hektarar
eða meira að stærð, í öðru lagi ef
fasteign er 350 hektarar eða meira
að stærð og í þriðja lagi ef þannig
stendur á að viðtakandi réttar og
tengdir aðilar eiga fyrir fasteign eða
fasteignir sem eru samanlagt 10.000
hektarar eða meira að stærð.
Undanþága verður frá þessum
ákvæðum ef eign er ráðstafað til
nákominna.
Upplýsingaskylda lögaðila jarða
Þá er í sjöundu grein frumvarpsins
gert ráð fyrir upplýsingaskyldu lög-
aðila jarða, að veita stjórnvöldum
upplýsingar um eignarhald sitt;
annars vegar erlendir lögaðilar og
hins vegar íslenskir lögaðilar sem
eru að þriðjungi eða meira í beinni
eða óbeinni eigu erlends lögaðila.
Forsaga þess að frumvarpið
er komið fram er að 16. júní
2017 skipaði sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra nefnd
um endurskoðun eignarhalds á
bújörðum. Var henni falið að gera
tillögur að úrræðum til að viðhalda
ræktanlegu landbúnaðarlandi og
búsetu í sveitum landsins. Í skýrslu
starfshópsins sem gefin var út 31.
ágúst 2018 kom fram það álit að til
að ná ofangreindum markmiðum
kæmi helst til greina að gera nánar
tilteknar breytingar á jarðalögum og
ábúðarlögum.
Atriði sem hópurinn lagði til að
tekin yrðu til nánari athugunar lutu
meðal annars að því að lögfesta
skilyrði um búsetu á landi eða
byggingu lands í landbúnaðarnotum,
skilyrði um fyrirfram samþykki
stjórnvalda fyrir aðilaskiptum
að slíku landi og að ákvæði í
jarðalögum fyrir lausn lands úr
landbúnaðarnotum og landskiptum
yrðu afmörkuð með skýrari hætti.
Skoða má frumvarpið og
umsagnirnar á vef samráðsgáttar
stjórnvalda, samradsgatt.is. /smh
Katrín Jakobsdóttir forsætis ráð
herra.