Bændablaðið - 19.03.2020, Blaðsíða 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. mars 2020 41
LESENDABÁS
„Hvað á ég að gera við þessi innfluttu blóm?“
Það var að venju hátíðleg stund
að vera viðstaddur setningu
Búnaðarþings mánudaginn 2. mars
sl. í Súlnasal Bændahallarinnar.
Þar voru fluttar ræður og
sveitastúlkan Soffía Óðinsdóttir
söng eins og engill. Bændur og
velunnarar þeirra fylltu salinn
og stundin var svolítið rafmögnuð.
Ég sat Gunnari Þorgeirssyni garð
yrkjubónda til hægri handar en hann
áformaði að bjóða sig fram til for
ystu fyrir íslenska bændur. Ég hafði
ekki hugmynd um þær hugrenningar
hans fyrir þingið. Hins vegar gerð
ist það í ræðu landbúnaðarráðherra,
Kristjáns Þórs Júlíussonar, að ráð
herra tók að skamma huldumann, ég
þekkti strax til „kauða“. Nú bað ég
skapara minn að hefna strax ósvífni
ráðherra og ekki síst af því honum
fórst eins og Gunnari Lambasyni
forðum í frásögninni af Njálsbrennu.
„Um allar sagnir hallaði hann mjög
til og ló frá víða.“
Öfugmæli ráðherrans
En hér er hinn umdeildi kafli
ræðunnar og vita allir sem þekkja
til að er alls ekki sannur eða réttur.
En ráðherra sagði eftirfarandi:
„Eitt af því furðulega sem
hendir þann sem hér stendur, er
að funda oft í viku með öflugu
starfsfólki á landbúnaðarskrifstofu
ráðuneytisins en lesa svo á sama
tíma fullyrðingar frá ýmsum sem
teljast velgjörðarmenn íslensks
landbúnaðar, að þetta sama fólk
sé ekki til. Þannig er ýmist fullyrt
að landbúnaðurinn sé í skúffu í
ráðuneytinu eða skrifstofan hafi
verið lögð niður. Menn virðast
halda að ef þeir fullyrði þessa
þvælu nógu oft þá verði til nýr
sannleikur. Staðreyndin er hins
vegar sú að landbúnaðarskrifstofa
ráðuneytisins hefur verið efld til
muna á þessu kjörtímabili, meðal
annars með innkomu Búnaðarstofu
í ráðuneytið, en þeir starfsmenn
hafa nú verið færðir undir skrifstofu
landbúnaðar og matvæla. Sú
skrifstofa er nú orðin öflugri og
kraftmeiri en hún hefur verið
undanfarin ár og er nú fjölmennasta
fagskrifstofa ráðuneytisins. Og þrátt
fyrir að ég sé ekki þeirrar gerðar að
tala mikið fyrir fjölgun opinberra
starfsmanna er staðreyndin engu að
síður sú að aldrei áður, aldrei áður
hafa fleiri sérfræðingar unnið að
landbúnaðarmálum í Stjórnarráði
Íslands eins og einmitt á þessum
tímapunkti.“
Flestar fullyrðingar ráðherrans
eru skrum eða klár skáldskapur sem
auðvelt er að sannreyna. Því næst
tók til máls Haraldur Benediktsson
alþingismaður og flutti ljúfa ræðu,
nokkurs konar varnarræðu fyrir
ráðherrann sinn og Alþingi. Nú
þarf ekki annað en að vitna í annan
leiðtoga flokks hans, eða Þorstein
Pálsson, sem skrifaði m.a. þetta í
Fréttablaðið:
„Það er rétt hjá Guðna Ágústssyni
að atvinnustarfsemi í sveitum
landsins er umkomulaus á Alþingi
eins og sakir standa. Því þarf að
breyta.“
Blóm, nýsjálenskur
lambahryggur og kínversk
lopapeysa
Eitt er víst að ráðherra er ekki
að fjölga sérfræðingum með því
að flytja Búnaðarstofu undan
MAST úr Hafnarfirði í ráðuneytið.
Þeir starfsmenn fluttu með lög
bundin verkefni og voru að
störfum annars staðar. Þennan
Búnaðarþingsdag voru þeir enn
í forstofu iðnaðarráðuneytisins,
en þó ekki komnir lengra en að
lyftunni. Lögformlega eiga verkefni
þeirra að vera utan ráðuneytis og
Bændasamtakanna.
Eftir ræðuna tók ráðherra venju
samkvæmt að veita landbúnaðar
verðlaun bændunum í Garði, sem
reka Kaffi Kú, og blómabændum á
Espiflöt í Biskupstungum. Um leið
og ráðherra afhenti Heiðu Pálrúnu
Leifsdóttur blómvönd með kossi
sagði hún með særðri röddu:
„Ekki veit ég hvað ég á að gera
við þessi innfluttu blóm?“ – Þögn
sló á samkomuna. Ég hallaði mér
að foringjaefninu og hvíslaði:
„Hefði þetta verið sauðfjárbóndi
hefði hann sjálfsagt fengið
nýsjálenskan lambahrygg? Og bætti
við:
„Manstu þegar iðnaðarráðherrann
gaf kónginum lopapeysuna og
kóngsi gladdist en rak upp neyðaróp
og sagði: „Made in China.“
Vinir bænda eru í hverju eldhúsi
Nýrri bændaforystu er óskað
velfarnaðar í baráttunni. Ég tel
hana skipaða öflugu fólki. Hún var
ákall bænda og grasrótar sveitanna í
baráttu til að takast á við framtíðina.
Gunnar Þorgeirsson er öflugur
forystumaður en hans verkefni
verður tvíþætt, annars vegar að
endurskipuleggja félagskerfið
einn fyrir alla og allir fyrir
einn. Svo verður hann að krefja
Sjálfstæðisflokkinn, sem fer
með landbúnaðarmálin og hina
ríkisstjórnarflokkana um að
reisa stjórnsýslu landbúnaðar
ráðuneytisins og fagstofnanir
landbúnaðarins úr rústum síðustu
13 ára.
Gunnar er í hlutverki síns
breska flokksbróður, Boris
Johnson, og minnir nokkuð á hann.
Verkefni Johnson er að standa við
þjóðarviljann og ganga úr ESB.
Gunnar hefur þjóðarviljann að
baki sér og verkefni hans er að
knýja stjórnmálamennina til að
hlusta og opna augun fyrir því
undanhaldi og þeim vanda, sem
steðjar að sveitunum. Vandi þessi
er að stórum hluta mannanna verk
og ákvarðanir stjórnvalda, sem
veikt hafa landbúnaðinn verulega.
„Síðasti bóndinn slekkur ljósið,“
er fullyrðing sem hangir í loftinu.
Kristjáni Þór Júlíussyni ráðherra
skal ég segja þetta til varnar. Hann
er þægilegur maður og um margt
bera margir fyrirrennarar hans meiri
ábyrgð á því hvernig komið er. En
ég hef ekki séð neitt það til hans
að ég eygi von um stefnubreytingu.
Ráðuneytið hefur kappkostað
að losna við fjósalyktina. Hinn
Kristjáninn, ráðuneytisstjóri, er
sjálfsagt með hug og hjarta að þjóna
hinum ráðherranum sem hann vinnur
fyrir, Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð
Gylfadóttur, og kannski gersneyddur
sýn á landbúnaðinn.
Fáránlegt er að sami ráðuneytis
stjóri sé með tvo ráðherra og mörg
ráðuneyti.
Kristján ráðherra hefur tekið
ákvarðanir og ætlað sér gjörðir
sem ekki eru landbúnaðarráðherra
samboðnar og stundum brugðið fyrir
sig að hann sé í hagsmunagæslu fyrir
aðra þjóðfélagshópa. Landbúnaðar
ráðuneytið er skúffa í hans höndum.
Þar eru ekki uppi nein alvöru áform
um að efla sveitirnar. – „Hefnist
þeim er svíkur sína huldumey,“
sagði skáldið. Landbúnaðurinn og
sveitirnar eru okkar huldumey. Þar
slær hjarta þjóðar. Þar er okkar rót.
Við látum það ekki gerast, að valtað
verði yfir bændur og landbúnaðinn,
sem á nú þúsund tækifæri og
gríðarleg í nýsköpun.
Oft kveikir neyðin ljós viskunn ar
Nú þegar tímar heimsfaraldurs
brestur á segja flestir guði sé lof fyrir
öll matvælin sem íslenskir bændur
framleiða.
Oft kveikir neyðin ljós viskunn
ar, landbúnaðurinn er okkur
Íslendingum lífsnauðsynlegur. Hann
er okkar hornsteinn.
Margir viðmælenda minna telja
nú eina ráðið að stofna hollvina
samtök landbúnaðarins og sveitanna.
Vinir bænda eru í hverju eldhúsi.
Þeirri vináttu fær hvorki mölur né
ryð grandað.
Guðni Ágústsson,
fyrrverandi
landbúnaðar ráðherra.
Guðni Ágústsson.
Nánari upplýsingar gefur:
Grétar Hrafn Harðarson
S: 892-1480
Nf: gretarhrafn@simnet.is
GRÆNU VELFERÐARGÓLFIN Bænda bbl.is Facebook
Afleysingaþjónusta fyrir bændur
vegna COVID-19
Bændasamtökin í samstarfi við aðildarfélög sín vinna að því að koma
á fót miðlægri afleysingaþjónustu fyrir bændur.
Óskað er eftir áhugasömum aðilum til að skrá sig á viðbragðslista með það
fyrir augum að taka að sér tímabundna afleysingu á búum, komi til þess að
bændur veikist vegna COVID–19. Afleysingin er fyrst og fremst miðuð að
því að mæta þörfum einyrkja í landbúnaðarframleiðslu en ekki til að sinna
sérhæfðari störfum á stærri búum.
Bent er á nauðsyn þess að bændur hafi aðgengilega vinnuhandbók komi
til þess að kalla þurfi til afleysingu á búinu.
Skráning er í netfangið afleysing@bondi.is
Nánari upplýsingar á bondi.is og hjá Guðbjörgu Jónsdóttur, verkefnastjóra
hjá Bændasamtökum Íslands, í síma 563-0300 og í netfangið gj@bondi.is