Bændablaðið - 19.03.2020, Blaðsíða 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. mars 2020 39
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
ALTERNATORAR í flestar
gerðir dráttarvéla
Áhugasamir er bent á vegr.is
Netfang: vegr@vegr.is
Vélsmiðja Grundarfjarðar
Flytjum inn iðnaðarhús og skemmur
í öllum stærðum gerðum.
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Um viðskipti með bújarðir
Sextíu ár eru frá stofnun Veiði
klúbbsins Strengs. Umsvif hans
hafa á stundum verið höfð á
orði í umræðu um viðskipti með
bújarðir þar sem sitt sýnist hverj
um. Strengur er líka meðal þeirra
sem yrðu fyrir áhrifum nýrra
tillagna að lagabreytingum sem
meðal annars gerðu sölu jarða yfir
ákveðnum stærðarmörkum háðar
leyfi ráðherra.
Margir álíta tillögurnar, sem
áhrif hafa á fjölda bújarða og þar
á meðal flestar jarðir á Austur- og
Norðausturlandi, úr hófi íþyngjandi.
Og fleiri kunna að verða fyrir
áhrifum en ætla hefði mátt að
óathuguðu máli.
Fyrirætlanir Strengs hafa verið
ágætlega kynntar síðustu misseri.
Markmið okkar eru skýr, að stöðva
hnignun Atlantshafslaxins, sem nú
flokkast sem tegund í hættu, með
sjálfbærni að leiðarljósi og með
aðgerðum til langs tíma, og til góða
fyrir nærsamfélagið. Verkefnið
nefnist Verndarsvæði laxa á
Norðausturlandi og snýst um villta
laxastofna í ám Norðausturlands.
Engar áætlanir eru um útvíkkun út
fyrir það svæði.
Líkt og margir vita þá er
upphafs maður verkefnisins breski
fjárfestirinn Jim Ratcliffe og því stýrt
af Streng. Verkefnið er fjármagnað í
bland af landareignum Jims Ratcliffe
á Íslandi og tekjur af sölu Strengs
á veiðileyfum í ám verkefnisins.
(Frekari upplýsingar eru á www.
verndarsvaedi.is.)
Strengur og margir aðrir hafa gert
athugasemdir við frumvarpsdrögin í
samráðsgátt stjórnvalda. Sumar eru
mjög gagnrýnar á tillögurnar. Þar
á meðal er umsögn Bændasamtaka
Íslands frá 11. mars. Í henni er bent
á að allar hömlur á sölu fasteigna,
þ.á m. jarða, séu til þess fallnar
að afmarka kaupendahópinn og
rýra þ.a.l. verðmæti jarðanna.
„Lægra verðmæti þýðir svo
aftur minna veðrými. Að mati
Bændasamtakanna er nauðsynlegt
að fram fari sjálfstæð rannsókn á því
hvaða áhrif takmarkandi reglur sem
þessar geta haft á virði og veðhæfi
jarða sem og afleiðingar fyrir þá
sem eiga þær m.t.t. skuldbindinga
þeirra,“ segir þar. Samtökin
gagnrýna einnig hversu mikið vald
ráðherra er fært og vara við því að
takmarkanir á sölu fasteigna stangist
á við eignarréttarákvæði 72. gr.
stjórnarskrárinnar.
Álit í þessa veru er að finna í
mörgum öðrum athugasemdum
sem skilað hefur verið inn. Þá
er vert að benda á álit Gunnars
Þorgeirssonar, nýkjörins formanns
Bændasamtakanna, sem birtust í
grein hans í Bændablaðinu 5. mars.
Hann bendir á að ekki sé síður
mikilvægt að ríkið skilgreini stefnu
um hvað gera eigi við ríkisjarðir.
„Því þær eru fjölmargar og standa
ósetnar og hafa mjög mikil áhrif
á búsetumynstur í hinum dreifðu
byggðum,“ segir hann.
Rökræða má hvort breyting-
arnar sem forsætisráðherra leggur
til gagnist í baráttunni gegn
fækkun í bændastétt. Vandkvæði
land búnaðarins eru vel þekkt.
Forsíðufrétt Bændablaðsins 24.
október síðastliðinn fjallað um
vandann sem stafar af þeim fjöl-
mörgu býlum sem fallið hafa úr
nýtingu í kjölfar erfða þar sem nýir
eigendur hafa ekki hug á búskap.
Umræða um þetta heldur áfram.
Markmið frumvarpsdraganna falla
hins vegar vel að náttúruverndar- og
uppbyggingarstarfi verndars væðisins
á Norðausturlandi. Þau snúast meðal
annars um að stuðla að því að nýting
lands og réttinda sé við landkosti
og með hags muni samfélagsins að
leiðarljósi, og stuðli að fjölbreyttum
og samkeppnishæfum landbúnaði,
náttúru vernd, viðhaldi og þróun
byggðar og um leið þjóðfélagslega
gagnlegri og sjálfbærri landnýtingu.
Áframhaldandi hefðbundinn
landbúnaður styður markmið
verndar starfsins og Strengur
vill styðja komandi kynslóðir í
að velja sér bændastarfið. Um
áframhaldandi ábúð hafa því verið
útbúnir langtímaleigusamningar.
Við kaup hefur íþyngjandi skuldum
á stundum verið létt af rekstri búa
og rekstur þeirra vænlegri á eftir.
Staðreyndin er að búskapur hefur
ekki lagst af á neinni jörð sem
keypt hefur verið í tengslum við
verkefnið, og raunar verið tekinn
upp aftur á einni þar sem hann var
að leggjast af.
Að okkar mati takmarkast
jákvæðar afleiðingar verndar-
svæðisins ekki við verndar- og
uppbyggingarstarfið, heldur gagnast
þau nærsamfélaginu einnig stórlega,
þar með talið bændum. Markmiðið
er að verkefnið verði sjálfbært, að
allar tekjur renni aftur til verkefnisins
og áframhaldandi uppbyggingar og
þannig verði það uppspretta starfa
og umsvifa á svæðinu til langrar
framtíðar. Tilgangurinn starfsins er
skýr, að stöðva á sjálfbæran máta
hnignun Atlantshafslaxins, þannig
að gagnist nærsamfélaginu um leið.
Gísli Ásgeirsson,
framkvæmdastjóri
Veiðiklúbbsins Strengs
LESENDABÁS
Gísli Ásgeirsson.
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
Rétt sýrustig jarðvegs leggur
grunninn að aukinni uppskeru
og endingu túna. Mikilvægar
nytja jurtir eins og vallarfoxgras,
rý gresi, vallarsveifgras, háving
ull og smári þrífast betur í jarð
vegi með hátt sýrustig.
Eldri tún með lágt sýrustig
einkennast af tegundum eins og
hávingul, hálíngresi, axhnoðapunt
og snarrót. Í súrum jarðvegi gefur
sáðgresið eftir og óæskileg fóður-
grös og plöntur verða ríkjandi.
Margar plöntutegundir sem ekki
eru æskilegar í túnum þrífast vel
við lágt sýrustig í jarðvegi og fá
því forskot í samkeppni við þær
plöntutegundir sem eru æskilegar
í túnum.
Sýrustig jarðvegs og
upptaka næringarefna
Æskilegt sýrustig jarðvegs hefur
jákvæð áhrif á aðgengi plantna að
næringarefnum. Þannig fæst betri
nýting á tilbúnum áburði. Einnig
stuðlar æskilegt sýrustig jarðvegs
að auknum rótarvexti plantna, sem
eykur aðgengi að næringarefnum
og vatni. Kölkun eykur einnig
vetrarþol sáðgresis.
Sýrustig jarðvegs og belgjurtir
Smári hefur ýmis jákvæð
áhrif á gæði gróffóðurs. Hann
stuðlar að auknum styrk
próteins, vítamína og steinefna
í gróffóðri. Meðal annars
inni heldur smári þrisvar til
fjórum sinnum meiri kalsíum
en vallarfoxgras, og tvisvar
til þrisvar sinnum meira af
magnesíum. Rannsóknir hafa
einnig sýnt að fóðurupptaka
og mjólkurframleiðslan eykst
með auknu hlutfalli af smára
í gróffóðri.
Til þess að belgjurtir þrífist,
er mikilvægt að sýrustig jarð-
vegs sé hærra en pH 6,0. Ein
af ástæðum þess að belgjurtir
þrífast betur við hátt sýrustig
er að jarðvegsbakteríurnar sem
lifa á rótum þeirra auka virkni
niturbindingar.
Kölkun bætir byggingu
jarðvegs og eykur loftun. Það er
ein af forsendum fyrir starfsemi
hinna ýmsu jarðvegslífvera
sem eykur á umsetningu
næringarefna og bætir þar með
frjósemi jarðvegs.
Ragnhild Borchsenius,
fagstjóri fyrir gróffóður
hjá norsku landbúnaðar
ráðgjafaþjónustunni (NLR),
birti í Budskap 2-2020.
Þýtt af Margréti Ingjalds-
dóttur, söluráðgjafa hjá SS
Kölkun eykur uppskeru
og bætir endingu túna
Mismunandi kröfur tegunda á pH jarðvegs
og næringu Heimild: Ragnhild Renna, NLR Nord-Norge
Tegund pH-krafa Næringarþörf
Vallarfoxgras 6,0 - 6,3 Meðal
Hávingull 5,6 - 5,9 Meðal
Vallarsveifgras 6,0 - 6,3 Mikil
Sandfax 6,0 - 6,3 Mikil
Strandreyr 5,5 - 7,0 Lítil
Túnvingull 5,5 - 7,0 Meðal
Axhnoðapuntur 6,0 - 6,3 Mikil
Fjölært rýgresi 5,6 - 6,3 Mikil
Rauðsmári 6,2 - 6,5 Meðal
Hvítsmári 6,2 - 6,5 Meðal