Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2002, Page 3
o b -- o o % <3
BREYTTUR RETTUR TIL
ENDURGREIÐSLU
TANNLÆKNAKOSTNAÐAR
-ábending til örorkulífeyrisþega
í kjölfar dóms Hæstaréttar frá 19. desember
2000 urðu breytingar á greiðslu tekjutiygg-
ingar hjá allmörgum örorkulífeyrisþegum.
Þannig eru dæmi um öiyrkja sem áður fengu
ekki tekjutryggingu en fá nú skerta eða
óskerta tekjutryggingu greidda. Aðrir sem
fengu skerta tekjutryggingu fá nú greidda
óskerta tekjutryggingu.
Þessar afturvirku breytingar hafa áhrif á rétt-
indi til greiðsluþátttöku Tiyggingastofnunar í
kostnaði við tannlækningar. Örorkulífeyris-
þegar sem fengu breytingu á tekjutiyggingu
við dóminn kunna að eiga rétt á endur-
greiðslu eða hækkun endurgreiðslu vegna
tannlæknakostnaðar á tímabilinu 1. janúar
1997 til 1. mars 2001. Þar sem reglur um
greiðsluþátttöku TR breyttust 20. janúar
1999 hafa breytingar á tekjutryggingu
örorkulífeyrisþega mismunandi áhrif á rétt-
indi þeirra til greiðsluþátttöku TR vegna
tannlæknakostnaðar eftir því hvenær tann-
meðferðin fór fram:
Þeir sem höfðu enga tekjutiyggingu á tíma-
bilinu 1. janúar 1997 til 19. janúar 1999, en
fengu vegna dómsins skerta tekjutryggingu
fyrir það tímabil, fá 50% endurgreiðslu í stað
0% vegna tannlæknakostnaðar á tímabilinu
1.1.1997 - 19.01.1999.
Þeir sem höfðu enga tekjutiyggingu á tíma-
bilinu 1. janúar 1997 til 19. janúar 1999 en
fengu vegna dómsins óskerta tekjutryggingu
fyrir það tímabil eiga að fá 75% endurgreiðslu
í stað 0% vegna tannlæknakostnaðar á tíma-
bilinu 1.1.1997- 19.01.1999.
Þeir sem fengu skerta tekjutiyggingu á tíma-
bilinu 1. janúar 1997 til 19. janúar 1999 en
fengu vegna dómsins fulla tekjutiyggingu
fyrir það tímabil hækka úr 50% í 75% vegna
tannlæknakostnaðar á tímabilinu 01.01.
1997-19.01.1999.
Frá 20. janúar 1999 til 1. mars 2001 gildir að
þeir sem höfðu enga tekjutryggingu en fá eftir
dóminn skerta eða fulla tekjutiyggingu eiga
að hækka úr 50% í 75% vegna tannlækna-
kostnaðar á því tímabili.
Vinsamlegast snúið ykkur til þjónustumið-
stöðvar Tryggingastofnunar með frumrit
ógreiddra reikninga eða hafið samband í
síma: 560-4460.
Athugið að reikningum sem eru eldri en
fjögurra ára verður að skila til Trygginga-
stofnunar í síðasta lagi 1. júlí 2002.
Tryggingastofnun ríkisins
AÐILDARFÉLÖG ÖRYRKJABANDALAGS ÍSLANDS
Alnæmissamtökin á íslandi Málbjörg
Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra MG-félagið
Blindravinafélag Islands MND-félagið
Daufblindrafélag íslands MS-félag íslands
Félag aðstandenda Alzheimersjúklinga Parkinsonsamtökin
Félag heyrnarlausra Samtök psoriasis- og exemsjúklinga (SPOEX)
Félag nýrnasjúkra SÍBS - Samband ísl. berkla- og brjóstholssjúklinga
Foreldrafélag misþroska barna Samtök sykursjúkra
Foreldra- og styrktarfélag heyrnardaufra Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra
Geðhjálp Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
Geðverndarfélag Islands Styrktarfélag vangefinna
Gigtarfélag Islands Tourette-samtökin
Heyrnarhjálp Landssamtök áhugafólks um flogaveiki (LAUF) Umsjónarfélag einhverfra
TÍMARIT ÖRYRKJABANDALAGSINS 3