Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2002, Blaðsíða 43
NNDR
Nordic Network
on Disability Research
Norræn ráðstefna um fötlunarrannsóknir
22.-24. ágúst, 2002 Grand Hótel Reykjavík
NNDR
Ráðstefnan er haldin á vegum NNDR, Nordic Network on Disability
Research, sem eru samtök norrænna félagsvísindamanna sem vinna
að fötlunarrannsóknum. NNDR eru ung samtök sem halda árlegar
ráðstefnur til skiptis á Norðurlöndunum.
Þetta er í fyrsta sinn sem ráðstefna samtakanna er haldin hér á landi
og því einstakt tækifæri fyrir íslendinga að kynnast því helsta sem er
að gerast í fötlunarrannsóknum á Norðurlöndunum.
Fyrir hverja er ráðstefnan?
Ráðstefnan á erindi til allra sem hafa áhuga á framþróun á sviði
fötlunar og tengjast fötlun í lífi sínu og starfi. Það er von íslensku ráð-
stefnustjómarinnar að ráðstefnan verði mikilvægt innlegg í umræðu
um líf og aðstæður fatlaðra og hvetji til frekari rannsókna á því sviði
hér á landi.
íslensku ráðstefnustjómina skipa fræðimenn frá Háskóla íslands,
Kennaraháskóla íslands, Háskólanum á Akureyri og fulltrúum frá
samtökum fatlaðra: Landssamtökunum Þorskahjálp
og Öryrkjabandalagi íslands.
Tungumál ráðstefnunnar er enska
Merktu við í dagbókinni þinni - ekki missa af þessari
mikilvægu ráðstefnu
Aðalfyrirlesarar eru leiðandi fræðimenn frá Norðurlöndum og
Bretlandi.
Fólk sem hyggst kynna rannsóknir sínar á ráðstefnunni þarf að
senda inn ágrip (abstract) fyrir 1. apríl. Eyðublað er á heimasíðu ráð-
stefnunnar.
Heimasíða ráðstefnunnar er: http: / /www.nndr.dk/iceland2002
Þar má fá allar frekari upplýsingar um skráningu, dagskrá, aðalfyrir-
lesara, eyðublað fyrir ágrip og fleira.
TÍMARIT ÖRYRKJABANDALAGSINS
43