Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2002, Blaðsíða 12
FARSÍMAR
Farsrmar geta létt öllum lífið,
fötluðum sem ófötluðum.
Ýmsir þægilegir eiginleikar
gera notkunina einfalda og
aðgengilega. Má þar nefna raddstýrt
val númera úr minni símans. Nokkrar
gerðir síma hafa þess konar minni og
fer þeim fjölgandi. Ýtt er á einn
takka, síminn svarar með tóni og not-
andinn getur síðan sagt nafn þess sem
hann ætlar að hringja í. Síminn
endurtekur nafnið til að tryggja að
hringt sé í rétt símanúmer. Númerið
velst síðan sjálfvirkt. Minni sem
geyma raddskipanir eru mismunandi
mörg eftir símategundum. I nokkrum
gerðum síma er einnig hægt að kalla
fram valmyndir á skjáinn með radd-
skipunum. I sumum gerðum hand-
frjálsra bílaeininga er aukaminni fyrir
raddskipanir.
Handfrjáls búnaður, höfuðtól og
handfrjálsar bílaeiningar eru fáan-
legar í talsverðu úrvali. Þegar hand-
frjáls búnaður er notaður má stilla
símann þannig að hann svari sjálf-
virkt þegar hringt er í hann. I flestum
tilvikum er hægt að ákveða eftir hve
margar hringingar síminn svarar. Þá
er einnig hægt að fá höfuðtól sem eru
með takka á snúrunni sem ýtt er á til
að svara.
Símarnir eru ekki
aðgengilegir öllum
Þrátt fyrir þessa kosti sem upp hafa
verið taldir er mörgum fötluðum ein-
staklingum ókleift að notfæra sér
þessi þægindi. Hvorki blint né
þroskaheft fólk getur nýtt sér ýmsa
kosti símanna. Símaskráin, sem
boðið er upp á, er flestum úr þessum
hópum óaðgengileg og þessir ein-
staklingar geta sjaldnast sett radd-
skipanir í símana án aðstoðar. Far-
símaframleiðendur hafa nú vaknað til
vitundar um að allstór hluti markað-
arins sé ónýttur. Telja sumir að 15 -
25% almennings geti ekki nýtt sér
símana til fullnustu. I Bandaríkjunum
eru gerðar mun strangari kröfur til
farsímaframleiðenda og er þar settur
ýmiss konar aukabúnaður í símtækin.
I Evrópu er þessum búnaði hins vegar
sleppt.
Ný tækni - nýjar víddir
Nú er verið að þróa ýmiss konar
tækni til þess að gera símana auð-
veldari í notkun. Finnar hafa t.d.
þróað búnað sem gerir blindum ein-
staklingum kleift að senda og lesa
SMS-skilaboð og skoða styrk raf-
hlöðunnar. Gallinn á gjöf Njarðar er
sá að viðbótarbúnaðurinn kostar um
100.000 kr. Nokkrar gerðir farsíma
eru með stórum skjá sem auðveldar
sjóndöpru fólki að nota þá.
Farsímaframleiðandinn Nokia hef-
ur á boðstólum sérstakt höfuðtól fyrir
þá sem nota heyrnartæki. Tólið er þá
hengt urn hálsinn og er þá hægt að
tala í farsímann og nota heyrnartækið
samtímis án þess að farsíminn trufli
heymartækið.
Þá er einnig kominn á markaðinn
svonefndur Bluetooth búnaður sem
tengir símann þráðlaust við ýmsan
aukabúnað. Þegar eru komin þráðlaus
höfuðtól og handfrjálsar bílaeiningar.
Sífellt aukast þeir möguleikar sem
SMS skilaboðin bjóða upp á. Auk
venjulegra SMS sendinga á milli
síma er hægt að senda skilaboð í
GSM síma frá tölvu af netinu og eig-
endur GSM-síma geta fengið tölvu-
póst sendan beint í símann. Þá er
einnig hægt að koma á spjalli með
SMS þar sem tveir notendur geta
spjallað saman á svipaðan hátt og
gert er á netinu.
Með VIT þjónustunni er hægt að
nálgast ýmsar upplýsingar, leita í
símaskrá, sjá helstu fréttir, fylgjast
með viðskiptaheiminum, sjá brottfar-
ar- og komutíma flugvéla og margt
fleira. Sífellt er verið að bæta við
þessa þjónustu.
Með svokölluðum WAP símum er
hægt að fara á netið, inn á þær heima-
síður sem sérstaklega eru gerðar fyrir
þessa þjónustu, lesa fréttir, leita í
símaskrá og jafnvel sinna viðskiptum
í gegnum símann.
Með tilkomu enn nýrrar tækni sem
þegar er komin, GPRS, er hægt að
vera með sítengingu við netið og
getur hraðinn þá verið frá 20 - 46 kb
á sekúndu, eftir álagi.
SMS-skilaboðin hafa opnað nýjar
leiðir fyrir heymarlausa til þess að
eiga samskipti sín á milli og við aðra.
Nýlega veittu Evrópusamtök fatlaðra
verðlaun fyrir hönnun farsíma,
Communicattor, en hann er í raun
tölva með hentugu lyklaborði. Með
tölvu þessari geta heymarlausir sem
aðrir átt samskipti sín á milli og
framið ýmiss konar aðgerðir á netinu.
Var tæki þessu sérstaklega hrósað
vegna hagnýts gildis og skemmti-
gildis.
Nú er verið að opna nýja þjónustu í
GSM farsímakerfinu þar sem hægt er
að sjá hvar farsími er staddur. Þessi
þjónusta er kölluð Radar og með
henni er send fyrirspum um stað-
setningu. Sá sem fær fyrirspumina
þarf að staðfesta að hann leyfi að
þetta símanúmer sjái hvar hann er
staddur. Þaðan í frá má handhafi
þessa númers sjá staðsetninguna og
eru þær fyrirspurnir afgreiddar án
þess að sá sem leitað er að verði þess
var. Hann getur þó séð hverjir hafa
leitað hans og hvenær sem er getur
hann afturkallað leyfið.
Þá hefur finnski farsímaframleið-
andinn Benefon sett á markaðinn far-
síma með innbyggðu GPS stað-
setningartæki. A símanum er neyðar-
hnappur sem notaður er til að senda
neyðarkall og sendir síminn þá ná-
kvæma staðsetningu.
Með þeirri nýju tækni sem er nú að
koma fram eiga eftir að opnast ótelj-
andi nýir möguleikar sem væntanlega
eiga eftir að verða hluti af daglegu lífi
fólks innan skamms.
Einar Oddgeirsson
12