Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2002, Blaðsíða 14

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2002, Blaðsíða 14
Gunnar Guðmundsson við störf sín hjá Samskipum. FATLAÐIR FAI TÆKIFÆRI TIL AÐ NÝTA TÆKNINA - segir Gunnar Guðmundsson starfsmaður Samskipa Síminn á skiptiborðinu hjá Sam- skipum hringir látlaust. Símaverð- imir virðast hinir þolinmóðustu og reyna að veita öllum sem hringja sem besta þjónustu. Herbergið sem starfs- fólkið er í er ekki stórt. Þar eru fyrir hendi fullkomnustu tæki sem völ er á fyrir skipti- borð. En það eru ekki öll fyrirtæki með blindraletursskjá og talgervil á sínu skipti- borði. Gunnar Guðmundsson hefur starfað við símavörslu hjá Samskipum í 10 ár og segir nú frá því hvernig tölvan hefur leikið stórt hlutverk í hans starfi. Jaws-forritið er sérstakt forrit fyrir blindraletur og talgervil sem er í tölvunni sem hann notar. Gunnar, sem er fæddur 1936, slasaðist alvarlega þegar hann var 10 ára gamall. Hann missti framan af hægri handlegg og sjón á báðum augum. Gunnar hóf störf hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga árið 1959. Síðan, eins og flestir vita, var kerfið stokkað upp og síðustu tíu árin hefur hann starfað á skiptiborðinu hjá Samskipum. A vegum fyrirtækisins starfa um 900 manns og þar af um 400 erlendis. Símavörðurinn þarf að vera vel að sér um fyrirtækið og vita í hvaða deild hver vinnur sem beðið er um í síma. Gunnar segir sjálfur að hann þekki orðið fyrirtækið vel þrátt fyrir miklar breyt- ingar og öra stækkun þess undanfarin ár. Gunnar hefur rnikinn áhuga á að nýta sér tölvuna sem hjálpartæki og segir að fatlaðir eigi að notfæra sér tæknina eins og hægt sé. „Þjóðfélagið er orðið tölvuvætt og það er nauðsynlegt fyrir fatlaða að fá góða tölvu- kennslu", segir Gunnar. Allt í gegnum tölvuna Öll símsvörun hjá Samskipum fer fram í gegnum tölvur með Windows stýrikerfi og var sérstakur tal- og blindraletursbúnaður tengdur tölvu Gunnars. Innanhússímkerfið er mjög flókið og segir Gunnar að hann gæti ekki stundað þetta starf nema með hjálp tölvunnar. „Aður fyrr var þetta allt mjög ein- falt. Maður ýtti bara á einn takka og þá var hægt að gefa samband inn til starfsmanna. Núna er þetta miklu flóknara en tölvan leysir málin", segir Gunnar. Starfsfólkið á símanum svarar fyrir fjögur fyrirtæki og kemur nafn fyrirtækisins sem hringt er í upp á skjánum. Þetta nafn sér hitt 14

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.