Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2002, Blaðsíða 30

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2002, Blaðsíða 30
Frá Hringsjá starfsþjálfun fatlaðra. Þarf að gera endurhæfingu starfsmiðaðri legi þátturinn og lífsfyllingin ættu ávallt að vera í fyrirrúmi. Sigurður Thorlacius, tryggingayfirlæknir sagði frá stöðu starfsendurhæfingar og hverjar helstu orsakir örorku væru á Islandi, en það eru geðraskanir og stoðkerfisvandi. Þá leiddi hann mál sitt að félagslega þættinum og sagði að menntunarstig væri lægra hjá öryrkjum og at- vinnuleysi mikið. Um fimmtungur þessa hóps þarf að leita aðstoðar vegna framfærslu. Sigurður benti á að endurhæfing væri for- varnarstarf sem kæmi við heilsufars- og félags- lega þætti. Hann nefndi síðan nokkra staði þar sem endurhæfing færi fram eins og Reykja- lund, Hringsjá, Janus endurhæfingu og opin- bera skólakerfið. Hann lagði mikla áherslu á að það vantaði heildarskipulag og samhæfingu í endurhæfingarmálum og nú væri tækifærið til að stilla saman strengi. unnar Kr. Guðmundsson, endurhæfingar- læknir, gerði úttekt á starfsendurhæfingu sem er á vegum Tryggingastofnunar. Hann setti upp skýra mynd af því hvemig kerfið er; ör- yrkinn og vernduðu vinnustaðimir - sá fríski og atvinnumiðlanir og bandstrikið þarna á milli væri íslenska menntakerfið. Þegar fólki hrakar er ekkert framundan nema að fara á örorku- bætur. Kerfin ýta einstaklingnum á milli sín eða eins og Gunnar orðaði það „enginn vill taka króann að sér “! Eðlilega fer lundarfarið að sveiflast og viðkomandi leitar til læknis og sjúkdómurinn er greindur. Vandinn er þá orð- inn meiri en hann þyrfti að vera. En eins og Gunnar benti á eru þetta eðlileg viðbrögð við óeðlilegu kerfi. I staðinn væri hægt að koma einstaklingnum strax til hjálpar og koma hon- um í farveg sem stefnir á uppbyggingu farsæls lífs. Enginn óskar þess að fara á örorkubætur. Þegar fólk er einu sinni komið á bætur þorir það ekki út á vinnumarkaðinn. Kerfin verða að vinna saman, sagði Gunnar, en ekki sitt í hvoru lagi. Það á að meta einstak- linginn, hvetja hann og styðja. Gunnar vill sjá betra kerfi þar sem hæfing getur hafist fyrr og hægt er að brúa bilið milli þessara kerfa. Þegar lögð er fram beiðni um endurhæfingu tekur við langt og flókið ferli á milli lækna og sérfræðinga. Þegar því er lokið taka endur- hæfingarstöðvarnar við eins og Reykjalundur, Hringsjá, Atvinnumiðlun fatlaðra eða Janus endurhæfing. Gerð var könnun á meðal öryrkja um endur- hæfingu og 40 % aðspurðra vissu ekki hvað var í boði. En 80% þeirra sem sóttu þessar endur- hæfingarstöðvar og skóla voru mjög ánægðir með starfsemina. Gunnar tók sérstaklega fram að einstæðar nræður á örorkubótum þyrftu sér- staklega á hvatningu að halda. Næstur tók til máls Sven-Olof Krafft, endur- hæfingarlæknir og yfirlæknir Trygginga- Málþing um starfsendurhæfingu var haldið á Grand Hótel Reykjavík þann 13. nóvember. Að málþing- inu stóðu Alþýðusamband ís- lands, Landssamtök lífeyrissjóða, Samstarfsráð um endurhæfingu, Samtök atvinnulífsins, Tryggingastofnun ríkisins og Vinnumála- stofnun. A málþinginu var rætt um gildi starfs- endurhæfingar og hvemig hægt er að gera hana markvissari hér á landi. Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og trygging- aráðherra setti þingið og fagnaði umræðu um endurhæfingu. Hann benti á að Tryggingastofn- un hafi gert þjónustusamninga við fimm fyr- irtæki á sviði endurhæfingar. Jón sagði að mark- mið endurhæfingar væri að gera einstaklinga færa um að framfleyta sér og sínum eftir að hæfingu væri lokið. Ráðherra sagði að það væri einnig ánægjulegt að lífeyrissjóðirnir væru farnir að taka á þessum málum og benti á það sem nú þegar væri búið að koma á laggirnar eins og vinnusamninga við öryrkja. Hann minnti á að allir ættu rétt á að fá starf við hæfi til að efla sjálfstraust, kjark og þor og að mann- 30

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.