Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2002, Blaðsíða 33

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2002, Blaðsíða 33
Upplýsingar frá Hjálpartækjamið- stöð Tryggingastofnunar ríkisins Hjálpartækjamiðstöð Tryggingastofnunar (TR) annast stærstan hluta stuðnings hins opinbera við öflun hjálpartækja. Þjónusta hjálpartækjamiðstöðvar TR nær til þeirra einstaklinga sem búa heima, eru sjúkratryggðir á Islandi og þurfa hjálpartæki til langs tíma. Sjúkrahús og stofnanir sjá vistmönnum sínum fyrir öllum hjálpartækjum að undan- skildum hjólastólum sem hjálpar- tækjamiðstöð TR veitir. Heyrnar- og talmeinastöð Islands annast af- greiðslu á hjálpartækjum fyrir heyrnarskerta og Sjónstöð Islands vegna sjónskerðingar. Svæðisskrif- stofur málefna fatlaðra annast skv. lögum um málefni fatlaðra af- greiðslu styrkja vegna hjálpartækja til atvinnu eftir 18 ára aldur og vegna náms eftir 16 ára aldur. Grunnskólar sjá um hjálpartæki sem nemendur þurfa í grunnskólum. Umsóknum um hjálpartæki til hjálpartækjamiðstöðvar TR hefur fjölgað mikið síðastliðin ár. Þessa aukningu má rekja til ýmissa þátta, svo sem að öldruðum fer fjölgandi, almennt er meira um að sjúkir og fatlaðir búi í heimahúsum, sjúklingar eru útskrifaðir fyrr af sjúkrahúsum, sambýlum fyrir fatlaða hefur fjölgað svo og er fólk betur upplýst um rétt sinn. Einnig gerir ný tækni fólki kleift að búa heima sem ekki var mögulegt fyrir nokkrum árum. Tækni- og upplýsingaöld Við búum á tækni- og upplýsinga- öld og aukin krafa er gerð til tækja og upplýsingamiðlunar. Hjálpar- tækjamiðstöð er falið að tryggja hag- stæð innkaup með útboðum á hjálpartækjum og þar hefur verið haft til hliðsjónar hvemig nágranna- þjóðir okkar hafa unnið að þessunt málum. Auknar öryggis- og gæða- kröfur em gerðar til hjálpartækja og tekur hjálpartækjamiðstöðin mið af þeim evrópsku og alþjóðlegu kröf- um og stöðlum sem settir hafa verið. Til að koma upplýsingum á fram- færi gefur TR út bæklinga, m.a. um BJÖRK PÁLSDÓTTIR hjálpartæki, jafnframt því sem ýmsar upplýsingar eru á heimasíðu stofn- unarinnar www.tr.is. Þar er að finna upplýsingar um hjálpartækjamiðstöð og er notendum sérstaklega bent á að þar má sjá reglur stofnunarinnar um hjálpartæki. Einnig koma þar fram tengingar við hjálpartækjastofnanir annars staðar á Norðurlöndum og er margt fróðlegt að sjá á heimasíðum þeirra. Að auki gefur hjálpartækja- miðstöðin út upplýsingahefti þar sem sjá má hvaða hjálpartæki hefur verið samið um í útboðssamningum svo og hverjir eru seljendur tækj- anna. Þessum heftum hefur verið dreift til starfsfólks heilsugæslu- stöðva, endurhæfingarstofnana, end- urhæfingardeilda, samningsaðila svo og einstakra notendafélaga eins og við á hverju sinni. Á síðastliðnum vetri bauð hjálpar- tækjamiðstöðin stjórn SEM sam- takanna og stjórn Sjálfsbjargar, land- sambands fatlaðra, á fund til upp- lýsingamiðlunar og umræðna um hjálpartæki. Gert er ráð fyrir fram- haldi á slíkum fundum og með fleiri félögum. Einnig höfum við að beiðni ýmissa félaga fatlaðra komið á fundi þeirra og rætt um hjálpartæki, kynnt reglur TR um hjálpartæki og starf- semi hjálpartækjamiðstöðvarinnar. Fyrirtækjum sem selja hjálpartæki hefur fjölgað mjög á undanfömum árum og er aðgengi að hvers konar upplýsingum um hjálpartæki mun meira nú en fyrir fimm til tíu árum og er það vel. Nokkur þeirra eru með heimasíðu með ýmsum upplýsingum um vörur og þjónustu. Að frum- kvæði samtaka fatlaðra var haldin hjálpartækjasýning í febrúar 2000 í Perlunni og var hjálpartækjamiðstöð TR einn af undirbúningsaðilum hennar. Tókst vel til og er vonandi að framhald verði á slíku sýningarhaldi. Nýtt tölvukerfi hjálpartækjamiðstöðvarinnar Hjálpartækjamiðstöðin tók í notkun nýtt tölvukerfi sl. sumar sem mun stuðla að enn betri þjónustu miðstöðvarinnar. Með nýju tölvu- kerfi verður nú m.a. tryggt að um- sækjandi sjálfur fái alltaf sent svar- bréf við umsóknum um hjálpartæki, en áður var svarbréf TR oftast sent beint til viðkomandi söluaðila sem liður í pöntun á hjálpartækinu. Að auki fær nú sá heilbrigðisstarfs- maður, sem hefur verið umsækjanda til aðstoðar við umsókn, afrit af svar- bréfi svo og söluaðili þegar það á við. Gert er ráð fyrir að fínpússun og aðlögun kerfisins fari fram næsta misserið. Þá er von á nýju um- sóknareyðublaði vegna þessa nýja kerfis og mun það verða á heimasíðu TR ásamt öðrum eyðublöðum. Nýir samningar um þvagleggi TR hefur samið við fimm fyrirtæki um kaup á þvagleggjum og þvag- pokum frá og með 1. júlí sl. fyrir skjólstæðinga stofnunarinnar. Fyrir- tækin eru A. Karlsson hf., Austur- bakki hf., Eirberg ehf., Ismed ehf. og Rekstrarvörur hf. og munu þau sjá um afgreiðslu á umræddum vörum til skjólstæðinga TR. Starfsfólk hjálpartækjamiðstöðv- arinnar veitir leiðbeiningar og upp- lýsingar um hjálpartæki og rétt til þeirra og hvetur fólk til að hafa sam- band við miðstöðina ef með þarf. Björk Pálsdóttir, iðjuþjálfi, forstöðumaður hjálpartækjamiðstöðvar TR TÍMARIT ÖRYRKJABANDALAGSINS 33

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.