Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2002, Blaðsíða 29

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2002, Blaðsíða 29
Styrkir Námssjóður Sigríðar Jónsdóttur Umsókn um styrki Stjórn Námssjóðs Sigríðar Jónsdóttur auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Styrkir eru veittir til öiyrkja til hagnýts náms, bóklegs eða verklegs, svo og til náms í hvers konar listgreinum. Einnig er heimilt að styrkja þá sem vilja hæfa sig til starfa í þágu þroskaheftra. Umsóknum skal skilað til Öryrkjabandalags íslands, Hátúni 10, 105 Reykjavík, fýrir 8. maí nk. Styrkumsóknir má einnig senda í myndsíma 530 6701 eða netfang obi@obi.is. Allar nánari upplýsingar gefur formaður sjóðsstjórnar, Hafliði Hjartarson, í vinnusíma 562 1620 eða Guðríður Ólafsdóttir í vinnusíma 530 6700. Styrkjum verður úthlutað í júníbyrjun. Stjórn Námssjóðs Sigríðar Jónsdóttur. Vaxpotturinn sem er mikið notað- ur til að hita og mýkja liðina. tíma og þá hendir það að fólk komi of seint í endurhæfingu. Síðan eru líka dæmi þess að gigtin hellist yfir fólk og þá getur það ekki hreyft sig fyrir kvölum. Anna segir dæmi þess að konur hafi komið til sín svo að segja beint af fæðingar- deildinni. A meðan á meðgöngu stendur og við fæðingu þá losnar ákveðið hormón sem kemur gigtinni af stað. Anna segir mikilvægt að viðhorf til gigtarsjúkdóma breytist og gigtar- sjúklingum verði sýndur meiri skiln- ingur en hingað til. Þetta er ekki „bara gigt“ heldur alvarlegur sjúkdómur sem herjar á fleiri en margan grunar. Þess vegna er nauðsynlegt að benda fólki á mikilvægi endurhæfingar og fræðslu um liðvemd. Eftir að gigtarsjúklingar hafa fengið endurhæfingu er mikilvægt að þeir fari eftir leiðbeiningum sem þeir fá til að geta haldið áfram að fást við dag- leg störf. I leiðbeiningum frá iðjuþjálfum Gigtarfélagsins stendur að sjúkling- urinn verði að: -skipuleggja tíma sinn -nota liðina í miðstöðu og nota stór gnp -forðast að lyfta þungu og læra að lyfta rétt -nota frekar stóra liði en litla -forðast stöðuvinnu -kunna réttar hvfldarstöður -viðhalda/auka hreyfigetu og vöðva- styrk -nota viðeigandi hjálpartæki -nota spelkur eftir þörfum K.Þ. Hlerað í hornum Maður einn var að dást að hreina loft- inu í sveitinni við lækni einn sem var borgarbam. “Það er nú annað en rykið og svælan hér”, sagði hann. Læknirinn sagði: “Góða loftið í sveitunum stafar nú bara af því að þar eru aldrei opnaðir gluggar, svo óloftið kemst ekki út úr húsunum”. Prestur einn var vanur að halda mjög langar og leiðinlegar stólræður. Eitt sinn talaði hann svo lengi að djákninn einn sat eftir. Loks leiddist honum líka, lagði kirkjulykilinn á prédikun- arstólinn og hvíslaði: “Viljið þér ekki loka kirkjunni þegar þér farið, því nú fer ég” *** Afinn, Óskar Björnsson segir frá: Sonarsonur okkar sem er rúmlega tveggja og hálfs árs kom til okkar kvöld eitt og settist inn í stofu. Skyndilega spurði hann mig hvort ég vildi sjá “meiddið” á öðrum fætinum. Ég jánkaði og bretti hann þá upp annarri skálminni og var plástur þar undir. Þá segi ég við hann: “Já, ég sé “meiddið”. Þá segir sá stutti: “Nei, afi, þú sérð ekki “meiddið”, því það er undir plástrinum”. Auglýsing í útvarpinu: Fundur í Skotveiðifélaginu í kvöld. Félagar. Hittið vini ykkar. *** Öldruð kona kom til læknisins síns og hann hafði á orði að langt væri um liðið frá því hún hefði komið til sín. Þeirri öldruðu brá við og sagði: “Ja, þér verðið margfaldlega að afsaka mig, herra læknir, en það er bara svo langt síðan ég hefi verið veik”. TlMARIT öryrkjabandalagsins 29

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.