Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2002, Blaðsíða 7

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2002, Blaðsíða 7
AÐGENGI sérstaklega tekið á málefnum fatlaðra bama. Bamasáttmálinn er í raun eini alþjóðasáttmálinn sem tekur á mál- efnum fatlaðra þar sem fötlun er bannfærð sem ástæða mismununar. 23. gr. 1. Aðildarríki viðurkenna að and- lega eða líkamlega fatlað barn skuli njóta fulls og sómasamlegs lífs, við aðstæður sem tryggja virðingu þess og stuðla að sjálfsbjörg þess og virkri þátttöku í samfélaginu. 2. Aðildarríki viðurkenna rétt fatl- aðs barns til sérstakrar umönnunar, og skulu þau stuðla að því og sjá um að barni sem á rétt á því, svo og þeim er hafa á hendi umönnun þess, verði eftir því sem föng eru á veitt sú að- stoð sem sótt er um og hentar barninu og aðstæðum foreldra eða annarra sem annast það. 3. Með tilliti til hinna sérstöku þarfa fatlaðs barns skal aðstoð sam- kvæmt 2. tölul. þessarar greinar veitt ókeypis þegar unnt er, með hliðsjón af efnahag foreldra eða annarra sem hafa á hendi umönnun þess, og skal hún miðuð við að tryggt sé að fatlaða bamið hafi í raun aðgang að og njóti menntunar, þjálfunar, heilbrigðis- þjónustu, endurhæfingar, starfsundir- búnings og möguleika til tóm- stundaiðju, þannig að stuðlað sé að sem allra mestri félagslegri aðlögun og þroska þess, þar á meðal í menn- ingarlegum og andlegum efnum. 4. Aðildarríki skulu í anda alþjóð- legrar samvinnu stuðla að því að skipst sé á viðeigandi upplýsingum um fyrirbyggjandi heilsugæslu og læknisfræðilega, sálfræðilega og starfræna meðferð fatlaðra barna, þ. á m. með dreifingu á og aðgangi að upplýsingum um endurhæfingar- aðferðir, menntun og atvinnuhjálp, er miði að því að gera aðildarríkjum kleift að bæta getu sína og færni og auka reynslu sína að þessu leyti. Hvað þetta snertir skal tekið sérstakt tillit til þarfa þróunarlanda. 24. gr. I. Aðildarríki viðurkenna rétt barns til að njóta besta heilsufars sem hægt er að tryggja, og aðstöðu til læknismeðferðar og endurhæfingar. Aðildarríki skulu kappkosta að tryggja að ekkert barn fari á mis við rétt sinn til að njóta slíkrar heil- brigðisþjónustu. 25. gr. Aðildarríki viðurkenna að barn sem þar til bær stjórnvöld hafa falið öðmm til umönnunar, vemdar eða meðferðar vegna líkamlegrar eða andlegrar vanheilsu eigi rétt á að meðferð þess og allar aðrar aðstæður sem að vistinni lúta sæti athugun reglulega. A.H. ORLOFSHÚSí MUNAÐARNESI Útleiga á sumarhúsi Öiyrkjabandalag íslands hefur ákveðið að leigja eitt sumarhús í eigu BSRB í Munaðamesi eins og undanfarin ár. Leigutíminn er frá 7. júní - 20. september. Hverjir eiga rétt á að leigja sumarhúsið? Sumarhúsið stendur þeim til boða sem eru metnir til 75% örorku og eiga ekki rétt á orlofshúsum annarra samtaka. Hver vika kostar 10.000 kr og skal leigan greidd tveimur vikum fyrirfram. Þeir sem hafa hug á að taka sér sumarhús á leigu næsta sumar hafi samband við Guðríði Ólafsdóttur, félagsmálastjóra, eða Amþór Helgason, framkvæmdastjóra Öryrkjabandalags íslands. Sími: 530 6700. Netföng: felagsmal@obi.is frkvstj@obi.is Orlofshús allt árið! Þá hefur BSRB boðið Öiyrkjabandalagi íslands að félagsmenn aðildarfélaga þess geti leigt sumarhús á öðrum tímum ársins á sömu kjörum og félagsmenn aðildarfélaga BSRB. Þannig gefst gullið tækifæri til þess að njóta yndis og útivistar í kyrrð íslenskrar náttúm allt árið. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Öryrkjabandalagsins. ti'marit öryrkjabandalagsins 7

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.