Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2002, Page 10
AÐGENGI AÐ
LISTSÝNINGUM
GSM-leiðsögn í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu
Síðastliðið haust var efnt til
yfirlitssýningar á verkum
Errós í Listasafni Reykja-
víkur, Hafnarhúsinu við
Tryggvagötu. A þessari sýningu var
bryddað upp á því nýmæli að gestir
gátu kynnt sér ýmislegt efni um lista-
manninn og verk hans með því að
hringja í ákveðið símanúmer. Víða
erlendis geta menn fengið lánuð lítil
segulbandstæki eða annars konar
rafeindatæki með upplýsingum um
sýningar sem þeir eru að skoða. Má
nefna sem dæmi leiðsögn Thorvald-
sen-safnsins í Kaupmannahöfn. Þar
eru menn leiddir um sýninguna,
hverju verki og tilurð þess lýst ítar-
lega auk þess sem gefin eru dæmi um
tónlist þá sem Albert Thorvaldsen
hélt upp á. Þá er einnig leikið á
flautu listamannsins.
Hið sama er að segja um sögufræg-
ar byggingar víða í Evrópu, Banda-
ríkjunum, Kína og Japan. Gestum
gefst kostur á að fá lánuð lítil tæki
með upplýsingum um byggingarnar
þar sem gerð er grein fyrir sögu þeir-
ra og einstökum hlutum þeirra lýst.
Þegar vel tekst til er jafnvel
hljóðmyndin gerð þannig úr garði að
reynt er að skapa andrúm liðins tíma.
Gestir láta þá hugann reika um leið
og gengið er um salarkynni, listaverk
eða aðrir hlutir skoðaðir og rætt þess
á milli við vini og kunningja um það
sem fyrir augu og eyru ber.
Tilraunir til þess að auka aðgengi
ýmissa hópa fatlaðra að listasöfnum
hafa verið gerðar á Norðurlöndum.
Má nefna sem dæmi Atheneum lista-
safnið í Helsinki, en það fékk nú í
haust aðgengisverðlaun Norður-
landaráðs. Þar hefur á undanfömum
árum verið lögð mikil vinna í að gera
kynningar á listaverkum svo úr garði
að safngestir geti notið þeirra. Jafn-
vel hefur verið gengið svo langt að
lýsa einstökum listaverkum með
ákveðnum hljóðhrifum. Auðvitað
verður þetta til þess að gestir safnsins
upplifa túlkun þess sem samdi kynn-
inguna. En um leið er þó komið til
skila ákveðnum hughrifum sem
verkið ber með sér.
Tilraunin í Listasafni
Reykjavíkur
Sérstakur samningur um stuðning
við Listasafn Reykjavíkur er í gildi
við Islandssíma. A vegurn fyrirtæk-
isins hefur verið þróað leiðsögukerfi
sem byggir á því eins og áður segir
að fólk hringir í tiltekið símanúmer
og er þá gefinn kostur á að hlusta á
lýsingar eða umfjöllun um það sem
fyrir augu ber. A Erró-sýningunni
var hægt að velja um 11 frásagnir.
Vöru ýmsir listamenn og listfræðing-
ar fengnir til þess að semja þessar
kynningar og lesa þær inn. Yfirleitt
var hér um að ræða vandað efni sem
talsverð vinna hafði auðheyrilega
verið lögð í. Voru menn þar ýmist
leiddir um einstök verk lista-
mannsins eða fjallað var um tiltekin
tímabil í ævi hans. Þau listaverk sem
fjallað var um eða þeir salir með
verkum ákveðinna tímabila sem
hægt var að fræðast um á sýningunni
voru merkt með dálitlum miða sem á
var mynd af síma. Við gerð þessa
Það væri gaman að vita meira um einstök málverk í salnum.
10