Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2002, Qupperneq 36

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2002, Qupperneq 36
LESBLINDA Lesblinda - þröskuldur í námi Marta Birgisdóttir Miðvikudaginn 26. sept- ember stóð Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúd- enta, fyrir ráðstefnu um málefni lesblindra stúdenta. Markmið ráðstefnunnar voru margþætt m.a að vekja athygli yfirstjórnenda og annarra starfs- manna Háskóla Islands á eðli og afleiðingum þeirrar hömlunar sem dyslexia eða lesblinda er. Þá gafst stúdentum einnig kostur á því að kynna sér hvaða úrræði námsráðgjöf hefur fyrir lesblinda stúdenta og hvaða stuðning Lánasjóður íslenskra námsmanna getur veitt stúdentunr með dyslexíu. Frummælendur á ráð- stefnunni komu úr ólíkum áttum og höfðu ýmislegt fram að færa en þeir voru Jónína Kárdal, námsráðgjafi við Háskóla Islands, Hjalti Hugason, formaður kennslumálanefndar HI, Rannveig G. Lund, forstöðumaður lestrarmiðstöðvar Kennaraháskól- ans, Steingrímur Ari Arason, fram- kvæmdastjóri LIN og Marta Birg- isdóttir, mastersnemi í landafræði. Mörg sjónarmið komu fram og voru fundargestir um margt fróðari á eftir. Töluvert hefur áunnist í málefnum lesblindra við Háskóla íslands. Þó er margt sem má fara betur. Nemendur þurfa að láta vita af sér Jónína Kárdal, námsráðgjafi við Háskóla Islands, kynnti stuðn- ingskerfi fyrir fólk með lesblindu og annars konar fötlun sem hannað var í kjölfar samþykkta háskólaráðs 1995. Jónína lagði áherslu á að til þess að nemendur fengju stuðning væri nauðsynlegt fyrir þá að láta vita af sér. Til þess eru tvær leiðir. I fyrsta lagi er hægt að gera grein fyrir því að stuðnings sé þörf þegar umsóknareyðublaði um skólavist er skilað inn. I öðru lagi er hægt að óska eftir viðtali við starfsmenn námsráðgjafar. Jónína sagði að þetta stuðningskerfi ætti að jafna aðstöðu nemenda eins og t.d að nemendur megi hljóðrita fyrirlestra, fara á námstækninámskeið og fá hljóð- bækur á Blindrabókasafni Islands. Nemendur hafa aðgang að Að- gengissetrinu í Þjóðarbókhlöðunni en þar er tölvubúnaður ætlaður fötluðu fólki. Reyndar sagði hún seinna að það væri aðeins um eina tölvu að ræða sem allir lesblindir nemendur hafa aðgang að. Árið 1995 voru átján lesblindir nemendur við skólann en árið 2000 voru þeir orðnir sjötíu og tveir. Jónína vill sjá í framtíðinni betra aðgengi, breytt viðhorf gagnvart les- blindum, aukna upplýsingagjöf og meiri samvinnu innan og utan H.I. Jónína fékk spurningu úr salnum um hvort skólinn væri tilbúinn að taka á móti fleiri lesblindum nemum og hvort einhverjar ráðstafanir væru fyrirhugaðar. Staðreyndin er sú að það eru sjö þúsund nemendur við skólann en aðeins 4,25 stöðugildi við námsráðgjöfina en þar reyndu menn að gera sitt besta. Jónína sagði að það væru ýmsar stíflur í kerfinu sem þyrfti að losa, en mikilvægast væri að vísa lesblindum nemendum veginn til að þeir gætu aflað sér gagna sjálfir. Einnig taldi hún nauðsynlegt að vera í góðu per- sónulegu sambandi við nemendur. A hraða snigilsins Hjalti Hugason, formaður kennslu- málanefndar Háskóla Islands, sagði nauðsynlegt að málefni lesblindra 36

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.