Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Blaðsíða 15
EYJAN 15DV 22. MAÍ 2020 Heilsárshús verða sífellt vinsælli. Þetta fallega hús stendur við Borgarbraut á Hellu og er til sölu. Svipuð þróun og 2008 Viðar Böðvarsson er fram­ kvæmdastjóri og eigandi Fold­ ar fasteignasölu. Hann segir þetta álíka þróun og í kjölfar bankahrunsins: „Það kom eilítið á óvart þarna í kjölfar bankahrunsins að sala á venjulegum íbúðum datt niður, sem var þvert á spár. Það hefur hins vegar ekki gerst enn þá í þessum efnahagsþrengingum sem rekja má til kórónaveirunnar, en hins vegar merkjum við töluvert meiri áhuga á sumar­ húsum, alveg eins og gerðist strax árið 2008 og náði fram til 2009. Fólk bar þá lítið traust til bankanna og vildi fjárfesta í fasteignum, en meðan hinn hefðbundni fast­ eignamarkaður tók dýfu, þá tók sumarhúsamarkaðurinn við sér. Þetta breyttist síðan eftir 2009 þegar hinn hefð­ bundni fasteignamarkaður tók við sér,“ segir Viðar. Hann segir ljóst að áhrif kóróna­ veirunnar á flugsamgöngur og ferðalög hafi töluvert að segja um aukinn áhuga nú: „Sumarhús á Spáni hafa verið að seljast ótrúlega vel undanfarin ár og hefur markaðurinn hér heima liðið nokkuð fyrir það. Núna eru eflaust fáir að spá í sumarhús erlendis, eru eflaust smeykari við slíkar fjárfestingar sökum þeirrar óvissu sem ríkir í flugsamgöngum og þróuninni vegna COVID­19. Í staðinn horfa þeir til sumarhúsa hér heima.“ Dýrara að byggja Fjölmargar sumarbústaða­ lóðir eru í boði á Suðurlandi og Vesturlandi, þar sem helstu sumarbústaðabyggðirnar eru. Viðar telur þó að meira sé um að fólk kaupi tilbúna bústaði í stað þess að byggja, þar sem slíkt sé dýrara um þessar mundir: „Það varð nokkur stöðnun í verði á sumarhúsum 2018 og sérstaklega í fyrra, enda nokkur samkeppni við íbúðir á Spáni sérstaklega. Það kom nokkuð langt tímabil þar sem nánast enginn var að byggja sumarhús eftir hrun. Það hefur aðeins breyst, en mér finnst menn meira vera að byggja fyrir sjálfa sig, heldur en almennan markað. Við sjáum það líka ágætlega á brunabótamati sumarhúsa hversu hár byggingarkostn­ aðurinn er og gegnumsneitt er hann talsvert hærri en verð á sumarhúsum í dag. Það segir okkur svolítið hvernig staðan er, að það sé ódýrara að kaupa en að byggja.“ Viðar segir hið sama gilda um tilbúin sumarhús sem að­ eins eigi eftir að koma fyrir á staðnum, því þegar kaupverð lóðar sé reiknað ásamt tengi­ gjöldum, hita og rafmagni og öðrum tilfallandi kostnaði, verði reikningsdæmið gjarn­ an óhagstætt. Breitt verðbil Að sögn Viðars er allur gang­ ur á kostnaði sumarhúsa. Verðið fari helst eftir stærð, staðsetningu og nálægð við þjónustu: „Þú getur fengið bústað allt frá 10 milljónum upp í 100, það eru alveg til dæmi um það. Algengasta verðbilið er líklega frá 15­25 milljóna, en svo er líka stór hluti á milli 30­40 milljóna.“ Meðalfermetraverð sumar­ húsa á Suðurlandi hækkaði um allt að 30 prósent milli áranna 2015 og 2018, en staðnaði nokk­ uð í fyrra samkvæmt verðsjá Þjóðskrár Íslands. Svipaða sögu má segja af Vesturlandi, en það svæði er þó aðeins Það varð nokkur stöðnun í verði á sumarhúsum 2018 og sérstaklega í fyrra, enda nokkur samkeppni við íbúðir á Spáni sérstaklega. Þorsteinn Magnússon löggiltur fasteignasali hjá Árborgum fast- eignasölu Sigurður Gunnlaugsson framkvæmda- stjóri og eigandi Torgs fasteigna- sölu Viðar Böðvarsson framkvæmda- stjóri og eigandi Foldar fasteigna- sölu ódýrara en Suðurland. Þar er Skorradalur dýrasta svæðið. Dýrasta svæðið á Suðurlandi er við Þingvallavatn, en þar á ríkið forkaupsrétt á bústöðum innan þjóðgarðsins þegar þeir bjóðast til sölu og hefur nýtt sér þann rétt til að framfylgja stefnu sinni um fækkun bú­ staða á svæðinu, svo varðveita megi náttúrulega og uppruna­ lega ásýnd þjóðgarðsins. Eitt stærsta og vinsælasta sumarhúsasvæðið er í Gríms­ nesi, en þar má finna bæði marga dýrustu og ódýrustu bústaðina á svæðinu, ýmist við Kiðjaberg eða Hraun­ borgir. Samkvæmt fasteignavef Morgunblaðsins eru 332 sumarhúsaeignir á Suður­ landi og Vesturlandi. Dýrasta eignin er 170 fermetra hús við Kambsbraut í Öndverðarnesi, en ásett verð er 89 milljónir. Stærsta húsið sem er til sölu er rúmir 380 fermetrar, í Reykholti í Borgarfirði, en þar er ekki gefið upp verð heldur óskað eftir tilboði, líkt og við fjölmargar aðrar eignir. n DRÁTTARBEISLI Hágæða beisli, föst eða losanleg, fyrir flestar gerðir fólksbíla og jeppa. Upplýsingar um verð og afgreiðslutíma hjá Bílanaust. www.bilanaust.is STÓRVERSLUN DVERGSHÖFÐA 2 Dalshrauni 17 220 Hafnarfirði 110 Reykjavík S. 535 9000 S. 555 4800 Vatnagörðum 12 104 Reykjavík S. 535 9000 Furuvöllum 15 600 Akureyri Hafnargötu 52 260 Reykjanesbæ Hrísmýri 7 800 Selfossi Sólvangi 5 700 Egilsstöðum S. 421 7510 S. 482 4200 S. 535 9085 S. 471 1244

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.