Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Blaðsíða 27
35 ára bústaður fékk allsherjar yfirhalningu Eydís Eyjólfsdóttir tók sumarbústaðinn sinn í gegn fyrir nokkrum árum. Bústaðurinn var byggður árið 1983 og hafði ekki tekið neinum breytingum síðan þá. Það var allt upprunalegt í honum og tók Eydís hann svo sannarlega í nefið. Hún segir að lykillinn að því að halda kostnaðinum í lágmarki sé að gera sem mest sjálf og eiga góða að sem geta hjálpað. Skemmtilegt verkefni „Pabbi minn er smiður sem er kominn á eftirlaun. Hann á heiðurinn af því að þetta „makeover“ var gert eins vel og vandlega og raunin varð. Hann er einstaklega útsjónar- samur og snillingur í að hanna fallegar innréttingar í lítil rými. Ég lagði upp með ákveðið útlit sem hann var sammála mér um. Úr varð skemmtilegt verkefni okkar feðgina sem hann verkstýrði með sinni þekkingu og reynslu,“ segir Eydís. Bústaðurinn er 54 fermetrar. „Allt ferlið hófst í nóvember 2017 og tók í það heila eitt og hálft ár. Mest lá á í byrjun að mála að innan og breyta eldhúsinu. Annað kom svo smám saman bara,“ segir Eydís. „Það ætlaði aldrei að stytta upp rigninga- sumarið 2018 og það var ekki fyrr en í ágúst sem við gátum loksins málað bústaðinn að utan, það var stór og góð breyting, punktur- inn yfir i-ið.“ Í heildina kostaði yfirhalningin um hálfa milljón, en það var allt efniskostnaður. „Það er heilmikill sparnaður í því að vinna sem mest sjálfur og eiga góða að,“ segir Eydís. Breytingarnar Eydís fer yfir allar þær breytingar sem voru gerðar á bústaðnum. „Allur bústaðurinn var málaður að innan, í ljósgráu og hvítu. Við ákváðum að halda þverbitunum dökkum sem gaf ákveðinn stíl. Héldum einnig gólfefninu í bústaðnum, nema inni á baði þar sem við fjarlægðum gamlan dúk og settum vínyldúk í staðinn. Eldhúsið var alveg tekið í gegn, ný eldhúsinnrétting og ný tæki, bættum einnig við uppþvottavél. Settum nýjar innréttingar á ganginn og forstofuna. Tókum niður vegg, bættum einangrun í veggi. Við settum nýja innrétt- ingu inn á bað og keyptum nýtt klósett, sturtugler og handklæðaofn. Við styrktum svo undirlag heita pottsins og endurnýj- uðum timburvegginn í kring þar sem þurfti. Svo máluðum við allan bústaðinn að utan og þakið, og endurnýjuðum þá glugga sem var komin móða í,“ segir hún. Góð ráð Eydís gefur þeim ráð sem eru að hugsa um að taka sumarbústaðinn í gegn. „Ég mæli til dæmis með að fá ráðgjöf sérfræðinga í málningarverslun áður en ákveðið er að mála, það var margt sem ég vissi ekki og hefði verið auðvelt að klúðra. Eyða mestu í að taka eldhúsið í gegn, þannig að gaman sé að elda og auðvelt sé að ganga frá. Flýta sér hægt. Með því að verja tíma í bústaðnum sérðu smám saman hvaða breytingar eru bestar. Plana, forgangsraða og njóta þess að sjá umbreytinguna,“ segir hún. Hvað er alveg nauðsynlegt að hafa í bú- staðnum að þínu mati? „Þægindi og smá lúxus. Algjör nauðsyn að hafa uppþvottavél, heitan pott, internet og router fyrir sjónvarp. Þetta á að vera staður til að slaka á og njóta og maður á einskis að sakna, bara sömu þægindi og heima, með þeim plús að vera nálægt náttúrunni og í burtu frá stressi.“ Byggði útieldhús á einum degi Eva Ósk Guðmundsdóttir byggði útieldhús við sumarbústaðinn. Hún er að læra lands- lagsarkitektúr við LBHÍ og hafði áður teiknað nokkrar gerðir af útieldhúsum fyrir verkefni. „Við erum með frekar lítið sumarhús og oft þegar vinir okkar koma í heimsókn getur orðið ansi þröngt inni. Okkur vantaði geymslu og þurrkaðstöðu fyrir eldivið því við kyndum bústaðinn með kamínu. Þetta varð því tvöfaldur ávinningur, stækkuðum eldunaraðstöðuna um helming og fengum gott pláss undir eldivið,“ segir Eva Ósk. Einföld smíði Eva Ósk smíðaði og málaði eldhúsið á einum degi. Maðurinn hennar smíðaði svo þakið og setti báruplastið á. „Ég teiknaði það upp í SketchUp til að ein- falda mér verkið upp á að öll mál stæðust. Maðurinn minn var búinn að smíða fjórhjóla- geymslu svo ég ákvað að nota bakhliðina á henni til að hafa eldhúsið á. Ég var þá komin með vegg sem ég notaði og smíðaði eldhúsið á honum. Ég vildi að það sæist sem minnst í grillið, þannig að ég smíðaði utan um það, og hafði hlera að framan svo ég gæti tekið grillið út og sett inn yfir veturinn,“ segir hún. Eva Ósk segir að kostnaðurinn hafi alls ekki verið mikill, þar sem hún notaði gagn- varða furu í allt eldhúsið og þetta hafi verið mjög einfalt í smíði. „Það sem var kannski dýrast er að ég notaði báruplast í þakið á eldhúsinu,“ segir hún. Hvað er alveg nauðsynlegt að hafa í sumarbústaðnum að þínu mati? „Frábært útisvæði er það sem mér þykir skipta mestu í sumarbústöðum, að það sé góð tenging milli úti- og innisvæða. Góðir pallar í kringum húsin, gott skjól án þess að skyggja á útsýni, útieldhús, hvítvínsskýli og heitur pottur. Mér þykir útisvæðið skipta meira máli í okkar bústað heldur en stærð sumarhússins. Við notum bústaðinn lang- mest frá apríl til október og erum rosalega mikið úti þegar við erum þar. Við byggðum okkur líka „hvítvínsskýli“, yfirbyggða úti- stofu sem er að hluta opin en að hluta lokuð. Við notum svæðin mjög mikið og þetta stækkar notkunarsvæðið, að hafa góða staði til að njóta úti með fjölskyldu og vinum.“ Eva Ósk og fjölskylda nota útieldhúsið mikið. MYNDIR/AÐSENDAR Baðherbergið er bjartara yfirlitum eftir breytingu. MYND/AÐSEND Dagsbirtan fær að njóta sín. MYND/AÐSEND FYRIR BREYTINGAR SUMARHÚS SÉRBLAÐ 9 DV 22. MAÍ 2020

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.